Innlent

Fjölskyldan úr Múlakaffi í Hörpuna

Jóhannes Stefánsson ætlaði sér inn í Hörpuna frá fyrstu skóflustungu og fagnar sætum sigri á öðrum sem sóttust eftir að annast veitingaþjónustu þar. Fréttablaðið/Stefán
Jóhannes Stefánsson ætlaði sér inn í Hörpuna frá fyrstu skóflustungu og fagnar sætum sigri á öðrum sem sóttust eftir að annast veitingaþjónustu þar. Fréttablaðið/Stefán
„Þetta er hápunkturinn á mínum ferli,“ segir Jóhannes Stefánsson, veitingamaður í Múlakaffi, sem varð hlutskarpastur í útboði á veitingaþjónustu í tónlistarhúsinu Hörpunni.

Fjölmargir sóttust eftir að reka veitingaþjónustuna. Jóhannes segir nýtt dótturfyrirtæki Múlakaffis, Hörpudisk, munu annast veitingar fyrir alla ráðstefnu- og tónleikagesti og gesti á öllum öðrum mögulegum viðburðum, eins og árshátíðir og móttökur, sem fara fram í Hörpu. Þess utan muni hann reka bar og veitingastað með opnu eldhúsi á fjórðu hæð byggingarinnar ásamt Leifi Kolbeinssyni, veitingamanni í La Primavera. Jómfrúin verði síðan með bistro á jarðhæðinni.

Harpa verður opnuð 4. maí á næsta ári. Jóhannes segir verkefnið fram undan gríðarlegt enda verði Harpan „aðalstaðurinn“. Pantanir og alls kyns fyrirspurnir liggi fyrir tvö til þrjú ár fram í tímann.

„Ég stend og fell með þessu og verð þarna í forsvari ásamt minni fjölskyldu. Þetta er gífurlegur sigur fyrir okkur og minn feril í veitingamennsku,“ segir Jóhannes sem kveðst hafa ætlað sér inn í Hörpuna frá því daginn sem fyrsta skóflustungan var tekin. „Þótt ég sé harður þá er ég á sextugsaldri og sé nú fyrir mér að geta farið að huga að því að sjá fyrir endann á þessu.“ - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×