Fleiri fréttir

Samgönguráðherra tekur sér skóflu í hönd

Framkvæmdir við breikkun Suðurlandsvegar, Fossvellir - Draugahlíðar, hefjast með hátíðlegri athöfn í dag. Ögmundur Jónasson samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri verða viðstaddir við þetta tækifæri og segir í tilkynningu frá Vegagerðinni að líklegt sé að Ögmundur muni grípa sér skóflu í hönd. Athöfnin mun fara fram klukkan þrjú nokkuð fyrir vestan Litlu kaffistofuna og norðan við vegamót við Bolaöldu.

Hnúfubakur festist í þorskaneti

Stór hnúfubakur flæktist í veiðarfærum netaveiðibátsins Hafborgarinnar í Skagafirði í gær. Ómögulegt var að losa hnúfubakinn þar til búið var að aflífa hann.

Skipstjóri dæmdur fyrir að sigla undirmönnuðu skipi

Karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að hafa siglt skipi sínu undirmönnuðu. Ekki var yfirvélstjóri um borð í skipinu þegar að það sigldi úr höfn þann 12. nóvember í fyrra. Ákærði játaði brot sitt en taldi að skipið hefði verið í góðum höndum þrátt fyrir þetta, vegna reynslu þeirra manna sem voru í áhöfn.

Meintar amfetamínkonur neita sök

Tvær konur, sem eru ákærðar fyrir að hafa smyglað inn til landsins 20,9 kílóum af amfetamínsúlafati, neituðu báðar sök í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Ákærurnar fara til umfjöllunar í þingmannanefnd

Þingsályktunartillögum um ákærur gegn fjórum ráðherrum sem störfuðu í aðdraganda bankahrunsins verður vísað til þingmannanefndar Atla Gíslasonar . Þetta var samþykkt með 38 atkvæðum gegn 16 á Alþingi í morgun.

Lést í fjórhjólaslysi á Grænlandi

Íslenskur karlmaður lést á Grændlandi í gærkvöldi. Maðurinn var starfsmaður Ístaks en fyrirtækið er að byggja virkjun á svæðinu Pakitsoq sem er 60 kílómetrum frá bænum Ilulissat á vesturströnd Grænlands.

Vantraust ef tillögurnar fara í allsherjarnefnd

Árni Þór Sigurðsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, telur að ef þingsályktunartillögum um ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum fyrir brot á ráðherraábyrgð verði ekki vísað til þingmannanefndar Atla Gíslasonar feli það í sér vantraust á störf nefndarinnar.

Atli: Ráðherrunum átti ekki að bregða

Atli Gíslason, formaður þingmannanefndar um niðurstöður Rannsóknarskýrslu Alþingis, segir að þeim fjórum ráðherrum sem lagt er til að verði ákærðir fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð hefði ekki átt að koma á óvart að nefndin væri að skoða þann möguleika. Hann segir að þeir hafi fengið bréf frá nefndinni þar sem kom fram að verið væri að skoða ráðherraábyrgð og vísað sérstaklega í kafla skýrslunnar sem fjalla um þau atriði.

Felldu tillögu um sannleiksnefnd

Meirihluti bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ felldu tillögu minnihlutans um að koma á fót þriggja manna nefnd sem átti að taka út stjórnkerfi og stjórnýslu Reykjanesbæjar. Fyrirmynd nefndarinnar hefði þá verið rannsóknarnefnd Alþingis.

Svipt sjálfræði vegna alvarlegrar átröskunar

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að að ung kona verði svipt sjálfræði í tólf mánuði á meðan hún fær meðferð við átröskun. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar fór fram á sjálfræðissviptinguna en sjúkdómur konunnar er kominn á mjög alvarlegt stig og er það mat meðferðaraðila að án meðferðar sé hún í lífshættu.

Mannekla í fiskvinnslu þrátt fyrir atvinnuleysi

Skortur er á starfsfólki í fiskvinnslu í Grundarfirði þrátt fyrir að yfir tuttugu manns á svæðinu séu á atvinnuleysisskrá. Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Guðmundur Runólfsson hf., segir í samtali við Skessuhorn að hann fái ekki fólk til að fylla lausar stöður. Vegna þess hefur fyrirtækið neyðst til að draga úr veiðum og setja fisk á markað og í gáma í stað þess að vinna hann á staðnum.

Atkvæðagreiðsla á Alþingi í dag

Greidd verða atkvæði um það á Alþingi í dag hvort vísa beri málinu um ákærur á hendur fjórum fyrrverandi ráðherrum til allsherjarnefndar.

Undirbúa samningsviðræður um makrílveiðarnar

Samningamenn Íslands og Evrópusambandsins sem hittust til undirbúningsviðræðna um makrílveiðar Íslendinga í gærmorgun, tjá sig ekki um gang viðræðnanna fyrr en að þeim loknum, síðar í dag.

Minna ekið, drukkið og reykt en spáð var

Ríkissjóður var rekinn með 75,6 milljarða króna halla á fyrstu sjö mánuðum ársins. Greidd gjöld námu 318 milljörðum og innheimtar tekjur 261 milljarði. Þar munar 57 milljörðum. Að teknu tilliti til áhrifa rekstrartengdra eigna og skulda ríkisins, sem voru neikvæð um átján milljarða, fæst hin eiginlega staða, svonefnt handbært fé frá rekstri, sem nemur þessum 75,6 milljörðum.

Milljarða einkasjúkrahús út í sandinn

Útlit er fyrir að ekkert verði af stofnun og rekstri einkasjúkrahúss sem áformað var í Reykjavík. Litháíska verktakafyrirtækið Adakris hugðist taka þátt í verkefninu en er hætt við að sögn Sigríðar Þorsteinsdóttur, forsprakka undirbúningsfélags spítalans.

Lokafrestur rann út í ágúst

„Ég er á kafi í að ganga frá skýrslunni. Við erum að ljúka henni,“ segir Maríanna Jónasdóttir, fulltrúi Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra og formaður starfshóps á vegum fjármálaráðuneytisins.

Eftirlýstur innan Schengen vegna skattsvika

Íslenskur karlmaður er eftirlýstur á Schengen-svæðinu vegna gruns um þátttöku hans í fjársvikamálinu, þar sem sviknar voru út um 270 milljónir króna í formi endurgreidds virðisaukaskatts. Hvorki finnst tangur né tetur af þessum fjármunum, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Ljóst er að þeir höfðu verið lagðir inn á reikning en teknir út í reiðufé, smáum upphæðum í senn, þannig að ekki er um neinar millifærsluslóðir að ræða.

Samtrygging velti fjármálakerfinu

Menningarbundnar hugmyndir og orðræða um kyn, karlmennsku og kvenleika léku stórt hlutverk í atburðarásinni sem leiddi til hruns íslenska bankakerfisins að mati dr. Þorgerðar Einarsdóttur og dr. Gyðu Margrétar Pétursdóttur sem unnu kynjafræðilega greiningu á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að beiðni þingmannanefndarinnar. Þorgerður og Gyða Margrét kynntu rannsókn sína á fjölsóttum fyrirlestri í Háskóla Íslands í gær.

Draumurinn enn lokaður og í rannsókn

Lögregla hefur enn til rannsóknar meint lögbrot Júlíusar Þorbergsson, kaupmanns í Draumnum við Rauðarárstíg. Draumurinn er enn lokaður og verður ekki opnaður á ný nema með úrskurði dómara.

Amfetamínkonur ákærðar

Ríkissaksóknari hefur ákært fyrir Héraðsdómi Reykjaness tvær konur, Elenu Neuman og Swetlönu Wolkow, fyrir stórfellt fíkniefnasmygl.

Þetta mál fellir ekki margbarða stjórnina

Hefur landsdómsmálið, og þá sér í lagi skoðun forsætisráðherra á því, áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið? „Þetta mál mun ekki fella stjórnina, jafn margbarin og hún er,“ sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, í samtali við Fréttablaðið seinni partinn í gær.

Aldan hreinsar höfn

Talið er að 700 til 800 þúsund rúmmetrar af gosefnum hafi borist til sjávar með flóðum í Markarfljóti við upphaf eldhræringanna í Eyjafjallajökli. Tvöfalt það magn hafði borist til sjávar samkvæmt mælingum Siglingastofnunar í byrjun ágúst.

Segja öryggisbúnað í Herjólfi ónothæfan

Fullyrt er að sjósetningarbúnaður björgunarbáta um borð í farþegaferjunni Herjólfi sé gamaldags og vart nothæfur í neyð. Búnaðurinn, sem er handvirkur, stenst Evróputilskipun um öryggisbúnað um borð í skipum í millilandasiglingum.

Aðgerðir ríkisstjórnar varðandi HS Orku settar á fulla ferð

„Við erum að vinna í því að ræða næstu skref í þeim málum. Það verður sett á fulla ferð, aðgerðir sem því tengjast," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, aðspurður hvort að ríkisstjórnin ætli að bregðast við niðurstöðum Magma-nefndarinnar. Nefndin komst að því að kaup Magma á HS Orku væri lögleg.

Seldi landa í miðborginni - aftur

Í tilkynningu frá lögreglu segir að kona á miðjum aldri hafi verið handtekin í miðborg Reykjavíkur um helgina. Hún er grunuð um að hafa verið að selja landa en í bakpoka hennar fundust allnokkrir brúsar sem innihéldu heimagert áfengi.

Olíufundur við Grænland skapar tækifæri fyrir Íslendinga

Iðnaðarráðherra segir að olíufundur við vesturströnd Grænlands geti skapað tækifæri fyrir Íslendinga í þjónustu við vinnslu á olíu á svæðinu. Þá verður samstarf við Norðmenn aukið vegna hugsanlegrar olíuvinnslu á Drekasvæðinu.

Heilbrigðisráðherra vill samvinnu við sveitarfélög

Heilbrigðisráðherra segir að sameining heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu dugi ekki ein og sér til að mæta kröfum um niðurskurð. Hann vill aukna samvinnu við sveitarfélög í þessum málum.

Barn féll úr stiga í Garðabæ

Slys varð í Garðabænum nú á sjötta tímanum. Þar féll eins og hálfs árs gamalt barn niður stiga. Búið er að koma barninu í sjúkrabíl og verið er að flytja það á slysadeild.

Ragnheiður Elín: Ég vil ekki hefnd

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi fyrir stundu að Íslendingar þurfi í sameiningu að hugsa hvernig hægt sé að gera landið að því besta í heimi. Hún flutti einnig sögu af vini sínum.

Launin verði þau sömu

Forsætisnefnd Reykjavíkurborgar ákvað 16. september síðastliðinn að kjör fyrstu varaborgarfulltrúa verði færð til fyrra horfs. Kjör þeirra verða því eins og þau hafa verið í fjölda ára, eða 70% af launum borgarfulltrúa eða um 283 þúsund krónur.

Engar arðgreiðslur frá Orkuveitunni

Eigendur Orkuveitu Reykjavíkur ákveðið að fara að tillögu borgarráðs frá því á dögunum og fella arðgreiðslur frá fyrirtækinu tímabundið niður. Í einróma bókun á fundi eigenda segir að alla jafna sé eðlilegt að gera kröfur um arð af OR enda hafi það verið gert frá stofnun fyrirtækisins óháð stöðu þess. Bent er á í tilkynningu frá Orkuveitunni að síðustu tvö ár hafi arðgreiðslur verið lækkaðar um helming og við núverandi aðstæður í rekstri OR sé talin ástæða til að ganga lengra og fella þær alveg niður tímabundið.

SS hættir við Halal slátrun

Ekkert verður af frekari slátrun hjá SS með svokallaðri Halal aðferð múslima, segir Steinþór Skúlason forstjóri SS í samtali við Vísi. Ástæðan er sú að ekki náðust samningar um sölu á kjötinu erlendis og kvartanir sem SS bárust vegna fyrirætlananna.

Justin Bieber of ungur fyrir The Charlies - myndband

Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum að stúlknahljómsveitin The Charlies er flutt til Hollywood enda komin með samning hjá Hollywood Records. Í viðtali við þáttinn StarCam sem hefur verið birt á vefsíðunni Youtube segja þær frá helstu áhrifavöldum sínum í tónlistarbransanum.

Árni Páll: Skýrslan ekki nægur grunnur fyrir ákærur

Árni Páll Árnason, viðskipta- og efnahagsráðherra, segir Rannsóknarskýrslu Alþingis ekki nægjanlega sterka heimild til að reisa á ákærur. Hann lofar skýrsluna sem slíka en segir að í henni sé atburðum jafnvel lýst út frá vitnisburði fárra hagsmunaaðila í stað þess að þar sé birt niðurstaða óháðrar rannsóknar.

Jón vill hitta alla en eftirspurnin er gríðarleg

Regína Ásvaldsdóttir skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra segir að Jón Gnarr borgastjóri sé allur af vilja gerður til þess að hitta sem flesta borgarbúa sem eftir því sækjast. Fulltrúar Frjálslynda flokksins hafa gagnrýnt Jón fyrir að hafa ekki samband og Júlía Hjaltadóttir sagðist á Vísi í dag vera óhress með að hafa beðið í rúman mánuð eftir viðtali hjá borgarstjóra án árangurs.

Handtóku mann fyrir kannabisræktun

Tvítugur karlmaður var handtekinn á Akureyri í gær, grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldi af því var gerð húsleit á heimili hans þar sem hald var lagt á um 20 grömm af kannabisefnum auk tækja og tóla til neyslu þeirra. Auk þess kom í ljós að maðurinn hafði verið að rækta kannabis í íbúð sinni en í litlum mæli þó. Samkvæmt upplýsingum frá

BSRB vill óþvingaða stéttarfélagsaðild

Vegna deilna SFR og Sambands íslenskra sveitarfélaga um stéttarfélagsaðild þeirra starfsmanna sem vinna að málefnum fatlaðra, sem færast nú yfir til sveitarfélaga, vill BSRB ítreka þá afstöðu að starfsmenn geti valið um hvort þeir verði í áfram í SFR eða viðkomandi bæjarstarfsmannafélagi.

Heitavatnslaust í Hafnarfirði

Vegna vinnu við stofnæð verður heitavatnslaust í Hafnarfirði í dag til klukkan 18:00 í Áslands- Valla- og Helluhverfum, Öldutún, Ölduslóð, Hvaleyrarholti og í efri byggðum Setbergs.

Ólína segir Davíð, Halldór og Valgerði vera hina raunverulegu gerendur

Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðnar efasemdir um að réttlætinu verði fullnægt með því að draga fyrir dóm þá fjóra ráðherra sem hluti þingmannanefndar Atla Gíslasonar telur að hafi sýnt af sér vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins haustið 2008 og að ábyrgð þeirra fjögurra sé lögð að jöfnu.

Nýr sveitastjóri tekinn við í Skagafirði

Ásta Björg Pálmadóttir hefur tekið við embætti sveitarstjóra í Skagafirði. Hún tók við lyklum af Ráðhúsinu á Sauðárkróki úr hendi fráfarandi sveitarstjóra, Guðmundar Guðlaugssonar, sem þó mun aðstoða Ástu við að kynnast starfinu til næstu mánaðarmóta.

Sjá næstu 50 fréttir