Innlent

Bátur laus af strandstað

MYND/Landsbjörg

Bátur með fjóra í áhöfn strandaði í dag rétt sunnan við Raufarhöfn. Björgunarsveitirnar Pólstjarnan frá Raufarhöfn og Hafliði frá Þórshöfn voru kallaðar út auk þess sem björgunarskip Landsbjargar, Gunnbjörg frá Raufarhöfn var á staðnum.

Að sögn lögreglu tókst að losa bátinn og er hann nú við bryggju í Raufarhöfn. Óljóst er með skemmdir á honum en lögreglan segir að hann sé að minnsta kosti enn á floti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×