Innlent

Betur verði hugað að umfangi og afrakstri

Í stærri kannabismálum sem komið hafa á borð ákæruvaldsins hefur verið um heilu ræktunarstöðvarnar að ræða, með fullkomnum tækja- og tæknibúnaði, segir Daði Kristjánsson saksóknari.
Í stærri kannabismálum sem komið hafa á borð ákæruvaldsins hefur verið um heilu ræktunarstöðvarnar að ræða, með fullkomnum tækja- og tæknibúnaði, segir Daði Kristjánsson saksóknari.
Ríkissaksóknari hefur ritað lögreglustjórum í landinu bréf þar sem hann hvetur þá til að kynna sér nýgengna dóma í Hæstarétti þar sem refsing var þyngd yfir tveimur kannabisræktendum í átta og tólf mánaða óskilorðsbundna fangelsisrefsingu úr þriggja mánaða skilorðsbundinni fangelsisrefsingu.

Í bréfinu bendir ríkissaksóknari meðal annars á að í öðru málanna hafi kannabisræktandanum einungis verið gefin að sök varsla fíkniefna og ræktun plantna án þess að það hafi verið í sölu- og dreifingarskyni. Um hafi verið að ræða 204 plöntur sem samkvæmt matsgerð geti gefið frá sér tólf kíló af maríjúana og 204 grömm af hassolíu miðað við tilteknar forsendur. Ríkis­saksóknari beinir þeim tilmælum til lögreglustjóra að huga að viðeigandi gagnaöflun varðandi umfang og afrakstur slíkrar ræktunar.

„Það er órökrétt að gera mikinn mun á því í refsingu hvort kannabisefni eða öðru ávana- og fíkniefni er smyglað til landsins frá erlendum framleiðanda og dreift hér á landi eða hvort framleiðsla og dreifing á efni er hjá sömu aðilum hér á landi,“ segir Daði Kristjánsson saksóknari, sem telur að Hæstiréttur hafi í nýgengnum dómum meðal annars fallist á ofangreind sjónarmið. Daði bendir á að til þyngingar þeirra hafi verið á því byggt að líta ætti til þess að mikið magn ávana- og fíkniefna kæmi úr ræktuninni og þeirrar hættu sem það hefði getað leitt til. Einnig ætti að líta til einbeitts brotavilja sakborninga. Þá hafi í öðru málinu verið upplýst að afurðir ræktunarinnar voru ætlaðar til sölu og dreifingar.

„Í þeim málum sem við höfum verið að sjá undanfarið hafa þessar meðalstóru og stærri ræktanir farið fram í húsnæði sem breytt hefur verið í ræktunarstöðvar,“ segir Daði. „Oft á tíðum hefur töluvert mikið verið lagt í aðstöðu til ræktunar. Jafnvel hefur komið fram í málum að þeir sem staðið hafa að brotastarfseminni hafi komið sér upp sjálfvirkum búnaði til að stjórna vökvun plantna og ljósastýringu til að draga úr mannaferðum til og frá húsnæði þar sem ræktun hefur farið fram. Jafnframt hefur verið komið upp sérútbúnu loftræstikerfi og myndavélakerfi til að leyna starfseminni og vakta hana. Brotastarfsemin ber þess merki að vera skipulögð.“ jss@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×