Sjálfstæðismenn vilja ræða önnur mál 23. september 2010 17:27 Ragnheiður Elín (t.h) sést hér með flokkssystur sinni Unni Brá Konráðsdóttur. Mynd/Anton Brink
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sendi Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, bréf í morgun þar ítrekuð var krafa formanns flokksins frá því í gær um að rædd verði áríðandi mál sem brenna á þjóðinni á meðan þingnefndir fjalla um þingsályktanir um málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum. Ásta hefur ekki svarað bréfinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum. Í umræðum á Alþingi í gær fór Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fram á það við forseta Alþingis að rædd yrðu önnur mál en málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum. „Það er afar brýnt að þingið nýti tímann nú þegar málefni þau er snerta málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum eru komin í farveg og stærstur hluti þingmanna hefur ekki beina aðkomu að því nefndarstarfi," segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins í bréfinu. „Eins og formaður Sjálfstæðisflokksins nefndi í sinni ræðu í gær eru fjölmörg aðkallandi mál sem bíða umfjöllunar á Alþingi, s.s. niðurstaða Hæstaréttar í gengistryggingarmálum, niðurstaða Magma-nefndarinnar svokölluðu og dómur Héraðsdóms Reykjavíkur vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár. Mörg önnur mætti nefna eins og stöðuna í Icesave, atvinnumál og skuldavanda heimilanna." Þá óskar Ragnheiður Elín eftir því að Ásta Ragnheiður beiti sér fyrir því að næstu dagar verði nýttir til þingfunda þar sem ofangreind mál og önnur aðkallandi fái umfjöllun. Hún vill auk þess að Ásta Ragnheiður kalli formenn þingflokka saman til fundar hið fyrsta til þess að fara yfir dagskrá þingsins næstu daga.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Sjá meira