Innlent

Forsetinn fundaði með Putin

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er staddur í Rússlandi. Mynd/ Stefán.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er staddur í Rússlandi. Mynd/ Stefán.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundaði í dag með Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, í Rússlandi í dag. Þar eru þeir staddir á Alþjóðaþingi um Norðurslóðir sem haldið er í Moskvu.

Í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu kemur fram að Putin hafi lagt áherslu á það að efla samstarf þjóðanna tveggja á komandi árum. Ólafur Ragnar átti fund með Dmitry Medvedev, forseta Rússlands, í gær og lýsti þá hinn síðarnefndi yfir áhuga á því að heimsækja Ísland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×