Ákært fyrir amfetamínafbrigði sem olli vanda 23. september 2010 04:00 Fíkniefnin fundust falin undir fölskum botni í ferðatösku mannsins við komuna til landsins.
Ríkissaksóknari hefur ákært tvo karlmenn fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Þeim er gefið að sök að hafa staðið að ólögmætum innflutningi á tæpum fjórum kílóum af svokölluðu 4-flúoroamfetamíni frá Hollandi hingað til lands. Þetta mál, sem kom upp í desember á síðasta ári, vakti mikla athygli því 4-flúoramfetamín, sem er náskylt amfetamíni var ekki á skrá hér á landi yfir ávana- og fíkniefni sem óheimil eru á íslensku forráðasvæði. Manninum sem flutti efnin til landsins var því sleppt úr haldi. Sjálfur bar hann að hann hefði talið sig vera að smygla um það bil einu kílói af lyktarlausu kókaíni. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, hefur nú verið ákærður fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa staðið að ólögmætum innflutningi á rúmum 3,7 kílóum af 4-flúoróamfetamíni, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni hér á landi. Í ákæru segir að hann hafi tekið við efnunum í Hollandi og flutt hingað til lands með flugi frá Berlín að beiðni hins mannsins sem ákærður er í málinu. Tollverðir fundu efnin falin undir fölskum botni ferðatösku við komu mannsins til Keflavíkurflugvallar. Meintur skipuleggjandi er tæplega þrítugur að aldri. Við þingfestingu málsins játaði hið meinta burðardýr að hafa flutt inn ofangreint magn af 4-flúoramfetamíni í umrætt sinn í þeirri trú að um hafi verið að ræða kókaín. Hann gerði fyrirvara um að hið innflutta efni væri ólögmætt. Hinn, sem sakaður er um skipulagningu smyglsins neitaði sök. - jss
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira