Kate Winslet stofnar samtök fyrir Sólskinsdrenginn 23. september 2010 06:00 Hún er orðin löng leiðin sem hjónin Margrét Dagmar og Þorsteinn hafa farið með syni sínum Kela og bræðrunum Erik og Unnari síðan Sólskinsdrengurinn var frumsýndur í Smárabíói fyrir tveimur árum. „
Þetta eru algjörlega samtökin hennar Kate Winslet, hún er frumkvöðullinn í þessu verkefni," segir Margrét Dagmar Ericsdóttir, móðir Kela, einhverfa stráksins úr heimildarmyndinni Sólskinsdrengurinn. Breska Óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet í samstarfi við Margréti Dagmar hefur stofnað alþjóðlegu góðgerðasamtökin The Golden Hat Foundation, eða Gullna hattinn, sem eiga að styðja við og styrkja einhverf börn og foreldra þeirra. Verkefnið var kynnt í Bandaríkjunum í gær og var send út fréttatilkynning til allra stærstu fréttaveitna í heimi samtímis. Samtökin eru nefnd eftir ljóði Sólskinsdrengsins Kela en auðjöfurinn Richard Branson kemur einnig að samtökunum því hann hyggst lána Margréti sína færustu ráðgjafa til að skipuleggja starfsemina í þaula.Kate Winslet fékk mikinn áhuga á heimi einhverfunnar eftir að hún talaði inn á Sólskinsdrenginn.Margrét var nánast orðlaus yfir áhuga og krafti Winslet þegar Fréttablaðið náði tali af henni í Austin í Texas þar sem hún býr um þessar mundir. „Við hittumst fyrst þegar hún talaði inn á ensku útgáfuna af myndinni í ágúst 2009. Ég ætlaði ekkert að mæta í þær upptökur en umboðsmaður Kate bað mig sérstaklega um að koma. Við náðum strax mjög vel saman og hún gaf mér tölvupóstinn sinn, bað mig endilega um að vera í sambandi," útskýrir Margrét og bætir því við að hún væri eflaust ekki komin á þennan stað ef ekki hefði verið fyrir þátt forsetafrúarinnar Dorritar Moussaeiff sem eigi mikinn heiður skilinn. Það varð síðan allt brjálað að gera hjá Margréti sem fyrir rælni sendi bara tölvupóstinn sinn til Kate með kærum þökkum fyrir hennar framlag til myndarinnar. „Hún sendi mér tölvupóst á móti og þakkaði mér fyrir að opna fyrir sér heim einhverfunnar."Richard Branson lánar sína færustu ráðgjafa til verkefnisins.Margrét segir að hún hafi alltaf haft það að leiðarljósi að stofna alþjóðleg góðgerðasamtök fyrir einhverf börn. Myndin átti bara að vera byrjunin. „En þegar ég og maðurinn minn flugum á kvikmyndahátíðina í Toronto 11. september í fyrra þá var ég eiginlega búin að gefast upp á því. Þegar ég lenti átti ég tölvupóst frá Kate sem spurði hvort hún gæti ekki gert eitthvað fyrir mig, stofnað samtök eða eitthvað þannig." Og eftir það fór boltinn að rúlla. Heimasíða samtakanna fór í loftið í gær og Margrét trúir varla sínum eigin augum, að hún skuli vera komin á þennan stað eftir frumsýningu myndarinnar í Smárabíói fyrir tveimur árum. „Friðrik Þór leikstjóri sagði reyndar við mig að það væru einhverjir töfrar í kringum þessa mynd. Hann hefur kannski haft eitthvað til síns máls." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira