Fleiri fréttir

Alþingi má ekki vera verkfæri framkvæmdavaldsins

Meginniðurstöður þingmannanefndar sem fjallaði um rannsóknarskýrslu Alþingis er að það þarf að auka sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdavaldinu og gera stjórnsýsluna faglegri. Alþingi má ekki vera verkfæri í höndum framkvæmdavaldsins. Þetta segir Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar. Umræða um skýrslu nefndarinnar hófst klukkan hálfellefu í morgun.

Þorgerður Katrín snýr aftur á þing

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra og þingkona Sjálfstæðisflokksins tók sæti á Alþingi í dag. Þorgerður hefur verið í leyfi frá þingstörfum frá því í apríl þegar hún sagði af sér sem varaformaður flokksins og vék af þingi tímabundið.

Norðlingaalda: Oddviti varar við einhliða friðlýsingu

Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps varar við því að ríkisstjórnin reyni einhliða að friðlýsa Norðlingaöldu og hvetur til samkomulags. Hann telur að friðlýsing þurfi ekki að útiloka veituna umdeildu.

Sigmundur Ernir: Stjórnsýslan með klíkukenndum blæ

„Almennt séð hafa vinnubrögðin á Alþingi komið manni mjög á óvart miðað við það sem maður þekkir utan af akrinum,“ segir Sigrmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann undrast mjög hversu hægt það gengur innan Alþingis og innan stjórnsýslunnar að taka ákvarðanir sem virðast liggja beint fyrir og koma þeim í framkvæmd.

Segja nóg komið af áhættufjárfestingum hjá lífeyrissjóðum

Stjórn Farmanna og fiskimannasambands Íslands gagnrýnir kaup Framtakssjóðs Íslands á eignarhaldsfélaginu Vestia ehf. af Landsbankanum. Stjórnin telur að með kaupunum hafi stjórn sjóðsins farið langt út fyrir þann ramma sem lagður var til grundvallar þegar hlutverk sjóðsins var kynnt fyrir stjórnum þeirra lífeyrissjóða sem gert er ráð fyrir að standa muni að fjármögnun Framtakssjóðsins.

Kókaínneysla dregst saman

Færri leita sér meðferðar vegna kókaínfíknar og telur starfsfólk á Vogi að þessi þróun haldi áfram út árið. Í ársskýrslu SÁÁ má sjá að marktækt dregur úr fjölda þeirra sem leituðu sér meðferðar árið 2009 vegna kókaínneyslu.

Íslenska lambið best í heimi

Bandaríska verslunarkeðjan Whole Foods Market mun í haust ráðast í markaðsátak á íslensku lambakjöti þar sem því er haldið fram að íslenska lambakjötið sé bragðbesta lambakjöt í heimi. Átakið nær til á þriðja hundrað verslana Whole Foods Market í Bandaríkjunum.

Ungir skákmenn gera það gott

Ungir skákmenn gerðu það gott á erlendri grund um helgina, þegar skáksveit Menntaskólans í Reykjavík varð Norðurlandameistari farmhaldsskóla í skák, annað árið í röð.

Rætt um skýrslu þingmannanefndar í dag

Skýrsla þingmannanefndarinnar,sem birt var um helgina, verður tekin til umræðu á Alþingi klukkan hálfellefu. Ein umræða verður um skýrsluna sjálfa en tvær um þingályktunartillögurnar um málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum.

Í haldi grunaður um að ofsækja kúbverska fjölskyldu

Einn maður er í haldi lögreglu, grunaður um að hafa ofsótt fjölskyldu af kúbverskum uppruna í Reykjavík, með þeim afleiðingum að fjölskyldufaðirinn og eldri sonur hans, 17 ára, flúðu land í gær, í lögreglufylgd.

Reykur í íbúð á Baldursgötu

Slökkvililðið á höfuðborgarsvæðinu var kvatt að fjölbýlishúsi við Baldursgötu í Reykjavík upp úr klukkan tvö í nótt, þar sem reyk lagði frá íbúð í húsinu fram á stigagang.

Gangnamaður kom í leitirnar

Gangnamaður, sem björgunarsveitamenn höfðu leitað að á milli Skagafjarðar og Húnaflóa síðan í gærmorgun, komst að sjálfsdáðum að bænum Ketu á Skaga um klukkan tíu í gærkvöldi og knúði þar dyra.

Bifröst og HR ræða sameiningu skólanna

Forsvarsmenn Háskólans í Reykjavík (HR) og Háskólans á Bifröst ræða nú saman um möguleika á nánara samstarfi milli skólanna og jafnvel sameiningu. Þetta staðfesta Magnús Árni Magnússon, rektor á Bifröst, og Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, í samtali við Fréttablaðið.

Þorláksbúð tekin í gagnið næsta sumar

Endurbygging Þorláksbúðar við Skálholtskirkju er nú í fullum gangi og verður lokið fyrir næsta sumar ef áætlanir ganga eftir. Þorláksbúðarfélagið, félag áhugamanna um endurbygginguna, hefur lengi haft þetta að markmiði, en nú er verkefnið komið á fullt og hleðslu veggja nærri lokið.

Bíður umræðu á þingi

Guðbjartur Hannesson, ráðherra Samfylkingarinnar, var búinn að lesa stóran hluta skýrslunnar þegar náðist í hann í gærkvöldi. „Ég ætla að fara vel yfir hana og hlusta á alla umræðuna á morgun og draga mínar ályktanir þegar ég er búinn að fara vel yfir málsatvik og rökstuðning.“

Dómurinn ekki bundinn við refsikröfur saksóknara

"Framkvæmdin á að vera nokkuð augljós af löggjöfinni, fari svo að þingið ákveði að kalla saman Landsdóm,“ segir Ásmundur Helgason héraðsdómari, sem áður starfaði sem lögfræðingur á Alþingi. "Þingið þarf að kjósa sérstakan saksóknara, sem mun reka málið áfram. Þingið kýs líka nefnd

Óflokkspólitískt mál

"Ég er enn þá að fara yfir gögnin og geri ekki ráð fyrir að tjá mig um þetta fyrr en í ræðu í þinginu,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, inntur eftir viðbrögðum við skýrslu þingmannanefndar um rannsóknarskýrslu Alþingis.

Gríðarlega gott gagn

„Ég ætla ekki að úttala mig um skýrsluna fyrr en ég er í fyrsta lagi búinn að lesa hana,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sem var þó langt kominn með hana um miðjan dag í gær. „Ég er búinn að lesa síðan átta á laugardagskvöld. Ég ætla eins og aðrir að klára það, hlusta síðan á framsögurnar og taka þátt í umræðum á Alþingi. Mér finnst það rétti vettvangurinn.“

Lárus var of tengdur klíku Jóns Ásgeirs

Lárus Welding tók sem forstjóri Glitnis gjarnan ákvarðanir með hagsmuni stærstu hluthafa bankans í huga, frekar en almennra hluthafa. Þannig var honum mjög áfram um að veita félögum á borð við Baug, FL Group og Fons óeðlilega há og mörg lán, vegna óþægilega náinna tengsla hans við

GPS-tæki í strætó

Endurbætur á upplýsingakerfi strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu standa nú yfir og er grunnbúnaður nú þegar kominn í um fjörutíu bifreiðar. Brátt munu allir vagnar verða útbúnir GPS-tæki sem sendir upplýsingar um staðsetningu vagnsins, hraða og akstursstefnu til stjórnstöðvar.

Auglýsingaherferð vestanhafs

Bandaríska verslunarkeðjan Whole Food Market setur íslenskt lambakjöt á oddinn í markaðsátaki sem hleypt verður af stokkunum nú í haust. Átakið ber yfirskriftina „Einfaldlega bragðbesta lambakjöt í heimi“.

Gangnamaður fannst óhultur

Gangnamaður sem björgunarsveitir úr Skagafirði og Húnavatnssýslu leituðu í allan gærdag fannst um klukkan tíu í gær, heill á húfi

Stúlkan komin fram

Arna Víf Hlynsdóttir sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir er fundin. Ekki hafði spurst til hennar frá því á fimmtudag. Móðir hennar biðlaði til almennings í fréttum Stöðvar 2 í gær og bað fólk um að hafa augnun opin og hjálpa þannig til við að finna Örnu.

Atli sat hjá

Afstaða Atla Gíslasonar, þingmanns Vinstri grænna, varð til þess að ekki náðist meirihluti innan uppgjörsnefndar Alþingis um að rannsaka á ný einkavæðingu ríkisbankanna. Atli sat hjá við afgreiðslu málsins.

Leita gangnamanns

Björgunarsveitir úr Skagafirði og Húnavatnssýslu leita nú gangnamanns sem saknað hefur verið við Hrossafell síðan í morgun. Maðurinn var við leitir þegar hann missti frá sér hestinn þannig að hann þurfti að fara á eftir honum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Feðgar flúðu land eftir ofsóknir

Tveir karlmenn eru í haldi lögreglu fyrir að hóta feðgum lífláti. Feðgarnir sem eru af kúberskum uppruna eru íslenskir ríkisborgarar og hafa búið Íslandi í meira en áratug. Þeir flúðu land í dag og fylgdi lögreglumaður þeim út á flugvöll. Greint var frá málinu í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.

Útrás Mannvits skapar störf fyrir fjölda íslenskra verkfræðinga

Stærsta verkfræðistofa landsins er í hitaveituútrás í Ungverjalandi og hefur með því skapað trygg störf fyrir fjölda íslenskra verkfræðinga, en atvinnuleysi í þeirri stétt tífaldaðist við bankahrunið. Íslendingarnir eru að reisa stærstu umhverfisvænu hitaveitu Ungverjalands.

Forkastanlegt að draga ráðherrana fyrir landsdóm

Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi þingmaður og varaformaður Samfylkingarinnar, segir hugmyndir um að stefna fjórum fyrrverandi ráðherrum fráleitar og málsmeðferðin sé forkastanlegt. Þingmenn sem þetta vilja viti ekki hvað þeir gera.

Þinglokum líklega frestað um nokkra daga

Alþingi kemur saman fyrir hádegi á morgun. Aðeins eitt mál er á dagskrá en það er skýrsla þingmannanefndar sem undanfarna mánuði hefur fjallað um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og birt var opinberlega í gær. Þinglokum verður líklega frestað um nokkra daga.

Arna ófundin

Arna Víf Hlynsdóttir sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir er enn ófundin. Arna er fædd 1995. Hún er 157 sentímetrar að hæð grannvaxin, með græn augu og ljóst hár. Arna var klædd í ljósar gallabuxur og ljósa peysu þegar hún fór að heiman þann 9. september síðastliðinn.

Áfram siglt til Þorlákshafnar

Nú er orðið ljóst að dýpkun Landeyjahafnar muni taka lengri tíma en upphaflega var ætlað og af þeim sökum mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar næstu daga. Þetta kemur fram á heimasíðu Eimskips sem rekur Herjólf.

Eldur í vörubíl við Norðlingaskóla

Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að Norðingaskóla í Norðlingaholti á þriðja tímanum í dag eftir að tilkynnt var um eld í vörubíl við skólann. Svo virðist sem að kveikt hafi verið í rusli og öðru lauslegu sem staflað var fyrir framan vörubílinn. Að lokum barst eldurinn í bílinn en það tók slökkviliðismenn skamma stund að slökkva eldinn. vörubílinn er talsvert skemmdur.

Meints barnaníðings enn leitað

Karlmaður, sem grunaður er um að hafa sýnt börnum ósæmilega kynferðislega hegðun í Laugarneshverfi í Reykjavík síðastliðinn föstudag, er enn ófundinn. Málið er í fullri vinnslu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá varðstjóra. Ekki er vitað hver maðurinn er en börnin sem eru á grunnskólaaldri telja að hann sé milli fimmtugs og sjötugs. Maðurinn þuklaði á einu þeirra og sýndi öðrum börnum kynferðislega hegðun.

Ráðherrar eins og trillukarlar

„Á stundum hefur mér fundist að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands séu eins og 12 trillukarlar sem hittast í kaffi tvisvar í viku, bera saman aflabrögð og horfur, standa saman gegn utanaðkomandi áreiti eða ógnunum en eru jafnframt í samkeppni innbyrðis um aflanna," segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi umhverfisráðherra.

Samfylkingin gerði engar athugasemdir 2007

Sturla Böðvarsson, fyrrverandi ráðherra og forseti Alþingis, segir að þegar Samfylkingin myndaði ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum árið 2007 hafi ráðherrar flokksins ekki gert neinar athugasemdir gert við stöðu mála hér á landi og þess í stað talið að efnahagsstaða landsins væri sterk og að bankakerfið myndi rétta úr kútunum. Að öðrum kosti hefði stjórnin brugðist strax hart við. Þetta er meðal þess sem kemur fram í bréfi Sturlu til þingmannanefndarinnar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Fyrsta haustlægðin

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir að lægðin sem nú fari vaxandi á sunnanverðu Grænlandshafi hafi öll einkenni haustlægðar. Skil hennar með tilheyrandi rigningu fer yfir landið í dag.

Framhaldið í höndum Alþingis

„Ég hef áður sagt að ég muni ekkert gera sem geti truflað störf þingsins í þessu mikilvæga máli. Sú yfirlýsing stendur og því mun ég ekki tjá mig um málið opinberlega fyrr en þingið hefur lokið afgreiðslu málsins," segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi viðskiptaráðherra, í yfirlýsingu. Hann segir málið nú í höndum Alþingis.

Segir Geir þegar hafa axlað ábyrgð

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, sé þegar búinn að axla pólitíska ábyrgð á hruninu og því sé engin þörf á því draga hann né aðra fyrrverandi ráðherra fyrir landsdóm.

Geir Haarde: Ég er ekki hræddur

„Niðurstaða meirihluta þingmannanefndar, sem fjallað hefur um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, um ákærur á hendur fyrrverandi ráðherrum, veldur mér miklum vonbrigðum. Ég tel að meirihlutinn hafi komist að rangri niðurstöðu,“ segir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í yfirlýsingu sem hann fjölmiðlum skömmu fyrir klukkan 12. „Komi til þess að Alþingi samþykkti tillögu um að stefna mér fyrir landsdóm verður það þungbær reynsla en sá sem hefur hreinan skjöld er ekki hræddur við að fá úrlausn sinna mála fyrir óháðum og óvilhöllum dómstóli eins og landsdómi er ætlað að vera.“

Sjá næstu 50 fréttir