Þorláksbúð tekin í gagnið næsta sumar 13. september 2010 06:00 Tölvuteikning af endanlegu útliti Þorláksbúðar sem nú rís við Skálholtskirkju.
Endurbygging Þorláksbúðar við Skálholtskirkju er nú í fullum gangi og verður lokið fyrir næsta sumar ef áætlanir ganga eftir. Þorláksbúðarfélagið, félag áhugamanna um endurbygginguna, hefur lengi haft þetta að markmiði, en nú er verkefnið komið á fullt og hleðslu veggja nærri lokið. Búðin er kennd við Þorlák helga Þórhallson, verndardýrling Íslands, sem var biskup í Skálholti undir lok 12. aldar, en óvíst er hvenær hún var fyrst byggð. Árni Johnsen alþingismaður er meðal þeirra sem hafa unnið að málinu og segir í samtali við Fréttablaðið að Þorláksbúð hafi fylgt Skálholti í gegnum aldirnar. „Nema síðustu hundrað árin hefur hún verið rúst. Hún var ýmist notuð sem skrúðhús, geymsla, kirkja eða dómkirkja þegar stóru kirkjurnar brunnu.“ Veggir búðarinnar eru hlaðnir í streng, eins og það er kallað, þar sem torf er lagt milli grjótlaga. Yfirumsjón með hleðslunni hefur Víglundur Kristjánsson hleðslumeistari. Byggingin er fjármögnuð með frjálsum framlögum fyrirtækja og opinberu fé og segir Árni að ef söfnun muni ganga vel sé raunhæft að Þorláksbúð verði komin í gagnið næsta sumar. Byggingin verður um 35 fermetrar að flatarmáli þegar hún er fullbúin og mun þá væntanlega hýsa bæði kirkjulegar athafnir sem og menningaruppákomur. Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, er einnig í hópi aðstandenda verkefnisins og segir við Fréttablaðið að með þessu sé gamall draumur að rætast. „Mig hefur lengi dreymt um endurreisn þessarar búðar,“ segir Sigurður og bætir því við að Þorláksbúð muni opna sýn manna inn í fortíðina og verði einnig hagnýt fyrir starfsemi kirkjunnar. „Það er ekki neitt nothæft skrúðhús við Skálholtskirkju og búðin verður örugglega notuð þannig. En hún mun einnig minna almennt á sögu Skálholts og forna íslenska byggingargerðarlist, því allar byggingar hérna í Skálholti eru alveg nýjar og minna lítið á fyrri tíma.“ Hleðsla útveggjanna hvílir að hluta til á gömlu tóftunum sem eru norðaustan við Skálholtskirkju. Standa þær nokkuð inn af nýju veggjunum og munu gestir Þorláksbúðar því geta setið á þeim líkt og bekkjum. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira