Innlent

Gríðarlega gott gagn

Steingrímur j. Sigfússon
Steingrímur j. Sigfússon
„Ég ætla ekki að úttala mig um skýrsluna fyrr en ég er í fyrsta lagi búinn að lesa hana," segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sem var þó langt kominn með hana um miðjan dag í gær. „Ég er búinn að lesa síðan átta á laugardagskvöld. Ég ætla eins og aðrir að klára það, hlusta síðan á framsögurnar og taka þátt í umræðum á Alþingi. Mér finnst það rétti vettvangurinn."

Steingrímur telur að skýrsla þingmannanefndarinnar sé gríðarlega gott gagn. „Ég held að hún sé mjög vel unnin og nefndin á heiður skilinn fyrir rækilega yfirferð á öllu því sem henni var sett fyrir."

Hann segist þegar hafa kynnt sér fylgiskjölin. „Það eru mjög áhugaverðar upplýsingar í þeim, þannig að þarna er mikill efniviður að vinna úr og góð leiðsögn að mestu leyti í framhaldinu," segir Steingrímur og hvetur alla til að verða sér úti um skýrsluna og kynna sér hana. „Hún er nauðsynleg viðbót við skýrslu sjálfrar rannsóknarnefndarinnar sem er svo gríðarlega umfangsmikil að það er gott að fá svona samantekt eins og þarna er gerð af hálfu nefndar Alþingis." - mmf




Fleiri fréttir

Sjá meira


×