Innlent

Leita gangnamanns

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Björgunarsveitir úr Skagafirði og Húnavatnssýslu leita nú gangnamanns sem saknað hefur verið við Hrossafell síðan í morgun. Maðurinn var við leitir þegar hann missti frá sér hestinn þannig að hann þurfti að fara á eftir honum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Um klukkan 10 í morgun náðist samband við hann. Maðurinn hafði þá náð hesti sínum og var sagt að koma í Kambadal og hitta félaga sína. Síðan hefur ekkert til hans spurst en maðurinn er lítt kunnugur á svæðinu.

Um 50 björgunarsveitamenn taka nú þátt í leitinni. Veður hamlar leit en á svæðinu er þokusuddi og rigning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×