Innlent

Áfram siglt til Þorlákshafnar

Dýpkunarskipið Perla í Landeyjahöfn seinnipartinn í gær.
Dýpkunarskipið Perla í Landeyjahöfn seinnipartinn í gær. Mynd/Óskar P. Friðriksson
Nú er orðið ljóst að dýpkun Landeyjahafnar muni taka lengri tíma en upphaflega var ætlað og af þeim sökum mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar næstu daga. Þetta kemur fram á heimasíðu Eimskips sem rekur Herjólf.

Herjólfur tók niðri í Landeyjahöfn í síðustu viku en höfnin er orðin of grunn vegna framburðar á sandi og gosefnum úr Eyjafjallajökli. Skipinu var því siglt til Þorlákshöfnar og verður það gert áfram næstu daga.

Dýpkunarskipið Perla hóf í gærmorgun að dæla sandi upp úr Landeyjahöfn. Sú vinnan gekk hægt en gera má ráð fyrir að það mun muni taka nokkurn tíma að dýpka höfnina en ölduhæð ræður mestu þar um.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×