Innlent

Lárus var of tengdur klíku Jóns Ásgeirs

Alexander K. Guðmundsson og Bjarni Ármannsson ætla að starfa með slitastjórn Glitnis.
Alexander K. Guðmundsson og Bjarni Ármannsson ætla að starfa með slitastjórn Glitnis.
Lárus Welding tók sem forstjóri Glitnis gjarnan ákvarðanir með hagsmuni stærstu hluthafa bankans í huga, frekar en almennra hluthafa. Þannig var honum mjög áfram um að veita félögum á borð við Baug, FL Group og Fons óeðlilega há og mörg lán, vegna óþægilega náinna tengsla hans við stjórnendur þeirra, Jón Ásgeir Jóhannesson, Hannes Smárason, Jón Sigurðsson og fleiri.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í eiðsvörnum vitnisburði Alexanders K. Guðmundssonar, fyrrverandi fjármálastjóra bankans, í máli slitastjórnar Glitnis gegn svokallaðri sjömenningaklíku Jóns Ásgeirs í New York. Alexander er eitt af lykilvitnum slitastjórnarinnar í málinu, líkt og Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri bankans. Alexander hefur samið við slitastjórnina um fulla samvinnu, gegn loforði um að slitastjórnin muni ekki sækja mál gegn honum persónulega vegna nokkurs hlutar.

Alexander og Bjarni hafa báðir lofað að mæta fyrir dóminn í New York til skýrslugjafar. - sh



Fleiri fréttir

Sjá meira


×