Innlent

Meints barnaníðings enn leitað

Mynd/Pjetur
Karlmaður, sem grunaður er um að hafa sýnt börnum ósæmilega kynferðislega hegðun í Laugarneshverfi í Reykjavík síðastliðinn föstudag, er enn ófundinn. Málið er í fullri vinnslu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá varðstjóra. Ekki er vitað hver maðurinn er en börnin sem eru á grunnskólaaldri telja að hann sé milli fimmtugs og sjötugs. Maðurinn þuklaði á einu þeirra og sýndi öðrum börnum kynferðislega hegðun.

Lögreglumenn fóru um Laugardalinn á föstudaginn á að minnsta kosti fjórum lögreglubílum í leit að manninum. Þeir leituðu meðal annars við Laugalækjarskóla og Engjaveg þar sem íþróttafélögin Þróttur og Ármann eru með aðsetur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×