Innlent

Reykur í íbúð á Baldursgötu

Slökkvililðið á höfuðborgarsvæðinu var kvatt að fjölbýlishúsi við Baldursgötu í Reykjavík upp úr klukkan tvö í nótt, þar sem reyk lagði frá íbúð í húsinu fram á stigagang.

Íbúar úr örðum íbúðum höfðu forðað sér út þegar slökkvilið kom á vettvang. Fljótlega kom í ljós að pottur hafði gleymdist á heitri eldavélarhellu og lagði reykinn frá honum. Húsráðanda, sem var sofandi í íbúðinni, sakaði ekki. Íbúðin og stigagangurinn voru reykræst.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×