Innlent

Auglýsingaherferð vestanhafs

Stuttmynd um íslenska lambakjötið verður sýnd í verslunum Whole Foods Market.
Stuttmynd um íslenska lambakjötið verður sýnd í verslunum Whole Foods Market.
Bandaríska verslunarkeðjan Whole Food Market setur íslenskt lambakjöt á oddinn í markaðsátaki sem hleypt verður af stokkunum nú í haust. Átakið ber yfirskriftina „Einfaldlega bragðbesta lambakjöt í heimi“.

Whole Foods Market rekur tæplega þrjú hundruð verslanir vestanhafs. Íslenska lambakjötið hefur verið á boðstólum hjá verslunarkeðjunni í nokkur ár við góðan orðstír. Ekki hefur þó sérstaklega verið keyrt á lambakjötið í auglýsingum fyrr en nú en stuttmynd um lambakjötið verður sýnd í verslunum.

Whole Foods Market er ein virtasta matvælakeðja Bandaríkjanna og gerir strangar kröfur um dýra- og umhverfisvernd, hreinleika og hollustu. - jma



Fleiri fréttir

Sjá meira


×