Innlent

Íslenska lambið best í heimi

Bandaríska verslunarkeðjan Whole Foods Market mun í haust ráðast í markaðsátak á íslensku lambakjöti þar sem því er haldið fram að íslenska lambakjötið sé bragðbesta lambakjöt í heimi. Átakið nær til á þriðja hundrað verslana Whole Foods Market í Bandaríkjunum.

Í tilkynningu frá Landssamtökum sauðfjárbænda kemur fram að Íslenska lambakjötið hafi verið selt hjá Whole Foods Market um nokkurra ára skeið við góðan orðstír. Viðskiptavinir hafi jafnan hrifist af kjötinu og í ár ákváðu forsvarsmenn Whole Foods Market að gera lambinu verulega hærra undir höfði en áður.

Þá segir að Whole Foods Market sé virtasta matvælakeðja Bandaríkjanna sem var stofnuð á níunda áratug síðustu aldar í Austin, Texas. Matvælakeðjan var sú fyrsta til að hljóta lífræna vottun bandarískra stjórnvalda og hefur undanfarin ár verið valin heilsuverslun ársins þar í landi. Whole Foods Market gerir miklar kröfur til framleiðenda um hreinleika og hollustu. Þá er framleiðendum gert að uppfylla strangar kröfur um dýra- og umhverfisvernd. Í verslunum Whole Foods Market eru seldar vörur í hæsta gæðaflokki þar sem áhersla er lögð á ferskleika, næringargildi og bragð hráefnanna, svo fátt eitt sé nefnt.

Í tilefni af markaðsátakinu hafa forsvarsmenn Whole Foods Market gert fjögurra mínútna stuttmynd um gæði íslenska lambakjötsins. Stuttmyndin verður sýnd í verslunum Whole Foods Market og notuð í kynningarskyni á heimasíðu fyrirtækisins. Hana má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×