Innlent

Fyrsta haustlægðin

Einar Sveinbjörnsson.
Einar Sveinbjörnsson. Mynd/Auðunn Níelsson
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir að lægðin sem nú fari vaxandi á sunnanverðu Grænlandshafi hafi öll einkenni haustlægðar. Skil hennar með tilheyrandi rigningu fer yfir landið í dag.

„Það sem gerir lægðina fyrst og fremst að haustlægð er að hún dýpkar fyrir þær sakir að kalt loft er nú í háloftunum í grennd við sunnanvert Grænland,“ segir Einar í pistli á bloggsíðu sinni. Þar sé tekið að hausta og að lofthjúpurinn í veðrahvolfinu neðan 10 kílómetra sé orðinn „gegnkaldur“.

„Það er með öðrum orðum frekar hlýtt og rakt loft sem berst norður á Grænlandshaf í veg fyrir kuldann í háloftunum. Á meðan þetta milda og raka loft fer hjá rignir og lægðin er heldur vaxandi á vestanverðu Grænlandshafi. Miðjan sígur síðan í kjölfarið til austurs og kalda loftið í háloftunum með. Það verður á dóli hér fyrir sunnan og suðvestan land á morgun,“ segir Einar pistlinum sem hægt er að lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×