Innlent

GPS-tæki í strætó

Hið endurbætta upplýsingakerfi Strætó mun auka þjónustu við farþega til muna. 
frétttablaðið/haraldur
Hið endurbætta upplýsingakerfi Strætó mun auka þjónustu við farþega til muna. frétttablaðið/haraldur fréttablaðið/hari
Endurbætur á upplýsingakerfi strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu standa nú yfir og er grunnbúnaður nú þegar kominn í um fjörutíu bifreiðar. Brátt munu allir vagnar verða útbúnir GPS-tæki sem sendir upplýsingar um staðsetningu vagnsins, hraða og akstursstefnu til stjórnstöðvar.

Nýja kerfið felur í sér að að nafn næstu biðstöðvar er sjálfkrafa kynnt í hátalarakerfi vagnsins, eins og þekkist víða erlendis. Fljótlega munu bætast við upplýsingaskjáir sem veita upplýsingar um næstu biðstöðvar, birta tilkynningar og fleira.

„Þessi innleiðing er mikilvægt skref fyrir Strætó bs.,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. „Með nýja kerfinu komum við til móts við óskir farþega um aukna þjónustu auk þess sem við fáum mun betri yfirsýn en áður yfir strætisvagnaflotann sem skiptir miklu máli, bæði við daglegan rekstur og alla áætlanagerð.“

Til stendur að gera farþegum kleift að borga einstök fargjöld með greiðslukorti. - sv



Fleiri fréttir

Sjá meira


×