Innlent

Rætt um skýrslu þingmannanefndar í dag

Skýrsla þingmannanefndarinnar,sem birt var um helgina, verður tekin til umræðu á Alþingi klukkan hálfellefu. Ein umræða verður um skýrsluna sjálfa en tvær um þingályktunartillögurnar um málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum.

Haustþingi á að ljúka á miðvikudag, samkvæmt starfsáætlun Alþingis, en kunnugir gera ráð fyrir að það kunni að dragast á langinn vegna umræðna um skýrsluna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×