Innlent

Útrás Mannvits skapar störf fyrir fjölda íslenskra verkfræðinga

Stærsta verkfræðistofa landsins er í hitaveituútrás í Ungverjalandi og hefur með því skapað trygg störf fyrir fjölda íslenskra verkfræðinga, en atvinnuleysi í þeirri stétt tífaldaðist við bankahrunið. Íslendingarnir eru að reisa stærstu umhverfisvænu hitaveitu Ungverjalands.

Þessi stærsta verkfræðistofa landsins hefur lítið látið á sjá, þrátt fyrir hrun en fjöldi íslenskra verkfræðinga missti vinnuna strax haustið 2008. Ein af meginstoðum Mannvits frá árinu 2006 hefur verið að flytja út þekkingu Íslendinga í nýtingu jarðhita til Ungverjalands. Eftir ítarlegar rannsóknir hefur Mannvit borað tvær holur sem nú spýta upp úr sér sjóðandi heitu vatni og verið er að bora þá þriðju. Þegar yfir lýkur verður Mannvit búið að útvega heimilum 100 þúsund Ungverja heitt vatn. Fyrsta hitaveitan verður tekin í notkun í haust og verður hún sú stærsta í Ungverjalandi sem notar alfarið umhverfisvæna orku.

„Við rekum núna 15 manna verkfræðistofu í Ungverjalandi og erum búin að gera það síðan 2006. Þar eru bæði jarðfræðingar og verkfræðingar," segir Lárus Hólm, framkvæmdastjóri Mannvits í Ungverjalandi.

Auk þess hefur Mannvit keypt lykiltæki í hitaveituna frá íslenskum fyrirtækjum og þannig getið af sér verkefni út fyrir Mannvit.

„Það er alveg ljóst að þetta hjálpar til að skaffa verkefni fyrir ungt og velmenntað fólk starfa hjá Mannviti bæði hér heima og úti í Ungverjalandi," segir Lárus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×