Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vill sjá hæfismat áður en næstu skref verða tekin Ásta Sigrún Helgadóttir, fyrrverandi forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, segist bíða eftir að fá að sjá hæfismat um umsækjendur um stöðu Umboðsmanns neytenda, áður en hún ákveður sín næstu skref. 4.8.2010 14:25
Gleðigangan fer fram á laugardaginn Hinsegin fólk heldur sína eigin þjóðhátíð á laugardaginn þegar hin árlega Gleðiganga fer fram í miðborg Reykjavíkur. Ásta Kristín Benediktsdóttir göngustjóri segir að undirbúningur hafi gengið vel og sig sé farið að hlakka alveg óstjórnlega til. 4.8.2010 14:33
Þurfa að endurbyggja hluta af Hörpu Glerveggurinn sem myndar suðurhlið Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu stenst ekki mesta vindálag sem búast má við á næstu 50 árum, samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið. Að mati aðalverktaka hússins, ÍAV, er nauðsynlegt að taka vegginn niður og endurbyggja. Í tilkynningu frá aðstandendum Hörpu kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir að þetta muni seinka opnun hússins.í maí á næsta ári. 4.8.2010 14:06
Samið um stuðning við nýbúa Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur hefur gert samning við Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða um að veita ráðgjöf til íbúa Reykjavíkur af erlendum uppruna. Markmið með samningnum er að veita innflytjendum í Reykjavík 4.8.2010 13:30
Reyna að koma í veg fyrir annað verkfall Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hefja sextán klukkustunda langt verkfall á föstudaginn takist ekki samningar á fundi sem boðaður hefur verið á morgun. Sverrir Björn Björnsson, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir enga formlega fundi hafa verið haldna frá síðasta verkfalli. Hann sé hins vegar alltaf bjartsýnn á að niðurstaða fáist. 4.8.2010 13:09
Rannsóknarskýrsla Alþingis enn á toppnum Rannsóknarsskýrsla Alþingis trónir enn á toppi lista yfir mest seldu bækur á Íslandi frá áramótum, samkvæmt nýjum tölum sem gefnar voru út í morgun. 4.8.2010 12:06
Þorsteinn undirbýr þjóðfund og stjórnlagaþing Undirbúningsnefnd stjórnlagaþings hefur ráðið Þorstein Fr. Sigurðsson rekstrarhagfræðing sem framkvæmdastjóra nefndarinnar. 4.8.2010 11:31
Sakar ríkisstjórnina um ófaglegar ráðningar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, vill ekkert fullyrða um það hvort skipan Runólfs Ágústssonar í embætti Umboðsmanns skuldara hafi verið pólitísks eðlis. Árni Páll viðurkenndi í samtali við fjölmiðla í gær að hann og Runólfur væru kunningjar en þau tengsl hefðu ekki haft áhrif á skipan í embættið. 4.8.2010 10:34
Setti fyrirvara við störf Runólfs Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málefna umboðsmanns skuldara. Í henni segir Árni Páll að hann hafi tjáð Runólfi Ágústssyni að hann gæti ekki setið í starfi ef hann hefði notið kjara sem almenningi stæðu ekki til boða. 4.8.2010 10:09
Nýr umboðsmaður skuldara Félagsmálaráðherra hefur sett Inga Val Jóhannsson, deildarstjóra í félagsmálaráðuneytinu, tímabundið í embætti Umboðsmanns skuldara, samkvæmt upplýsingum frá aðstoðarmanni félagsmálaráðherra. 4.8.2010 09:31
Kæra OR til úrskurðarnefndar um upplýsingamál Orkuveita Reykjavíkur neitar að upplýsa um samskipti fyrirtækisins við Magma Energy og sölu hlutafjár í HS Orku. Synjunin hefur verið kærð til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. 4.8.2010 09:08
Fundu ólöglegt laxanet í Ísafjarðardjúpi Þegar lögreglumenn frá Ísafirði fóru í efitrlitsferð út á Ísafjarðardjúp með fulltrúum Fiskistofu nýverið, fundu þeir ólöglegt net, sem að öllum líkindum var lagt til að veiða lax. 4.8.2010 07:40
Ræða í dag um stöðu umboðsmanns skuldara Það ræðst væntanlega í dag, á fundi Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra með lögfræðingum ráðuneytisins, hvort auglýsa þurfi stöðu Runólfs Ágústssonar, sem sagði í gær af sér stöðu umboðsmanns skuldara, eða hvort nýta megi umsóknir um stöðuna frá því í júlí. 4.8.2010 07:38
Unglingar í innbrotum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók um þrjú leitið í nótt tvo 15 ára pilta, eftir að þeir höfðu bortist inn í nokkra bíla við Lækjarsmára í Kópavogi og stolið úr þeim verðmætum. 4.8.2010 07:26
Ofurölvi og réttindalaus velti bíl sínum á Miklubraut Ofurölvi og réttindalaus ökumaður velti bíl sínum á Miklubraut, á móts við Rauðarárstíg í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt og stakk af frá vettvangi. 4.8.2010 07:21
Flugfélagið hættir áætlunarflugi til Vestmannaeyja Flugfélag Íslands hætti í gær áætlunarflugi á milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja, en um mánaðamótin voru styrkir til flugsins felldir niður. 4.8.2010 07:20
Meiri veiði en í allt fyrrasumar Laxveiði í Elliðaánum er þegar orðin meiri en í allt fyrrasumar. Þetta kemur fram á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur þar sem segir að í hádeginu á mánudag hafi veiddir laxar verið orðnir 880 talsins. Þá segir að í gegnum teljara hafi gengið 2.027 laxar og 68 silungar. Segir ennfremur að gera megi því skóna, ef allt sé eðlilegt og ekki tekið tillit til mögulegra affalla, að 2.283 laxar sé gengnir í Elliðaárnar nú þegar. Veiðin stendur út ágúst. 4.8.2010 06:45
Helgarumferð töluvert meiri en í fyrra Umferð um verslunarmannahelgina var rúmlega þremur prósentum meiri í ár en í fyrra. Þó var verslunarmannahelgin ekki mesta umferðarhelgi sumarsins þar sem meiri umferð mældist á sex talningarstöðum Vegagerðarinnar helgina 16. til 18. júlí. 4.8.2010 06:00
Þriðjungur rangt verðmerktur hjá Húsasmiðjunni Níu verslanir á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki sinnt ítrekuðum tilmælum Neytendastofu um réttar verðmerkingar á vörum. Húsasmiðjan við Helluhraun er með hæst hlutfall, eða 32 prósent. 4.8.2010 06:00
Síðasta strandveiðitímabilið Síðasta strandveiðitímabil sumarsins hófst í nótt og mikill handagangur var í öskjunni hjá Tilkynningaskyldunni og í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á miðætti, þegar tímabilið hófst. 4.8.2010 06:00
Heimafæðingum fjölgar ört Breska læknatímaritið Lancet birti leiðara í síðustu viku þar sem fram kemur að niðurstöður fjölþjóðlegrar magnrannsóknar, birtra í bandaríska læknatímaritinu American Journal og Obstetrics & Gynecology, sýni fram á að heimafæðingar auki líkur á ungbarnadauða um helming. 4.8.2010 05:00
Skálafell verður hjólamiðstöð Skref í þá átt að gera Skálafell að hjólreiðamiðstöð verður stigið um næstu helgi þegar þar verður opnuð þriggja kílómetra löng hjólreiðabraut á fyrsta hjólreiðavangi Íslands. „Við byrjuðum að leggja brautina í síðustu viku og það gengur bara rosalega vel,“ segir Ormur Arnarson einn skipuleggjenda. Ormur segir hjólreiðavanginn góða viðbót við ferðaþjónustu í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. „Allt í einu er kominn grundvöllur fyrir hjólaleigur eða hjólaferðir með leiðsögn eða að menn fari í fjallið og leiki sér þar.“ 4.8.2010 05:00
Gefi eftir gjöld af gatnagerð Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í bæjarráði Kópavogs leggja til að gatnagerðargjöld vegna stækkunar á eldra húsnæði verði felld niður tímabundið. 4.8.2010 04:00
Magma segir áskanir Bjarkar vera fráleitar Framkvæmdastjóri Magma Energy á Íslandi hafnar alfarið ásökunum Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarmanns þess efnis að fyrirtækið vilji eignast allar orkuauðlindir á Íslandi. Ummælin lét Björk falla í viðtali við AFP fréttaveituna í Helsinki í Finnlandi í gær. 4.8.2010 04:00
Akurnesingar afnema launalækkun að hluta Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að minnka kjaraskerðingu bæjarstarfsmanna niður í 40 prósent af því sem ákveðið hafði verið. Breytingin gildir frá næstu mánaðamótum. 4.8.2010 03:15
Sprengjan hugsanlega hvellur út frá dekki á vörubíl „Þetta er mjög alvarlegt mál," segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. Vísir sagði frá því í dag að grunur hafi verið að sprengiefni hafi verið skilið eftir á almannafæri í bænum og hluti þess sprungið í síðustu viku. Aldís segir að það geti verið að fólk sé að rugla saman tveimur atburðum. 3.8.2010 21:28
Runólfur hættur sem umboðsmaður skuldara Runólfur Ágústsson, nýskipaður umboðsmaður skuldara, hefur sent félagsmálaráðherra bréf þess efnis að hann sé hættur sem umboðsmaður skuldara. 3.8.2010 19:38
Aðstoðarmaður Árna Páls: Engin leiðindi „Við erum að klára þetta bara núna, viðkomandi á að mæta klukkan níu í fyrramálið," segir Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra. Nú vinnur Árni Páll og Anna Sigrún að því að finna tímabundinn staðgengil í starf umboðsmann skuldara. En eins og kunnugt er hætti Runólfur Ágústsson í kvöld sem umboðsmaður. 3.8.2010 22:34
Mestu flóð í Pakistan í manna minnum Tvær og hálf milljón manna hefur orðið fyrir áföllum vegna flóðanna í Pakistan. Mjög er óttast að farsóttir breiðist út. Rauði kross Íslands ætlar að veita neyðaraðstoð. 3.8.2010 21:47
„Ég veit ekki alveg hvað ég geri núna“ „Þú segir mér fréttir, ég var bara að keyra dóttur mína í bíó, þetta eru merkileg tíðindi," segir Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. 3.8.2010 20:06
Eitraður sveppur finnst á leikskólalóð á Akureyri Eitraður sveppur fannst á leikskólalóð á Akureyri nú á dögunum. Á vef Umhverfisstofnunar segir að ábending frá Náttúrufræðistofnun Íslands hafi borist stofnuninni. 3.8.2010 19:30
Bréf Runólfs til Árna Páls „Þér tilkynnist hér með að ég tel mér ekki fært að sinna starfi mínu sem umboðsmaður skuldara eftir að þú kynntir mér munnlega í dag þá ósk þína að ég víki til hliðar úr umræddu embætti,“ segir Runólfur Ágústsson í bréfi til Árna Páls Árnasonar, félagsmálaráðherra. 3.8.2010 20:39
„Grafalvarlegur“ læknaskortur á Vesturlandi Aðeins einn sótti um þegar sex stöður heimilislækna á Vesturlandi voru auglýstar lausar til umsóknar fyrr í sumar. Grafalvarlegt og enn ein birtingarmynd þess að læknum er að fækka á Íslandi, segir formaður Læknafélags Íslands. 3.8.2010 18:45
FME og sérstakur bæta við sig starfsmönnum Embætti sérstaks saksóknara hefur ráðið tuttugu og tvo nýja starfsmenn til að rannsaka brot tengd bankahruninu og stefnt er að því að ráða tíu til tuttugu til viðbótar. Þá hefur Fjármálaeftirlitið ráðið sex starfsmenn og hyggst ráða aðra sex til viðbótar. 3.8.2010 18:45
Gæti átt afnotarétt að auðlindinni í mörg hundruð ár Ekkert í gildandi lögum kemur í veg fyrir að afnotaréttur að orkuauðlindum verði framlengdur oftar en einu sinni. Það er því ekkert í lögunum sem bannar Magma Energy að hafa afnotarétt að orkuauðlindum á Reykjanesi í gegnum eignarhald sitt á HS Orku í til dæmis 500 ár. 3.8.2010 18:30
„Við erum kunningjar“ Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, viðurkennir að hann og Runólfur Ágústsson, umboðsmaður skuldara, séu kunningjar, en þvertekur fyrir að skipan hans sé pólitísk. 3.8.2010 18:30
500 milljónir í átak gegn atvinnuleysi Vinnumálastofnun hyggst verja hálfum milljarði í umfangsmikið átak gegn langtímaatvinnuleysi. Stefnt er að því að virkja fjögur þúsund manna hóp til þátttöku í fjölbreytilegum vinnumarkaðsúrræðum á næstu þremur mánuðum. 3.8.2010 18:28
Hjördís skoðar söluna á Magma Hjördís Hákonardóttir, fyrrverandi hæstaréttardómari, verður formaður nefndar, sem forsætisráðherra hefur skipað til þess að meta lögmæti kaupa fyrirtækisins Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku og starfsumhverfi orkugeirans hér á landi. 3.8.2010 17:13
Þrítugur maður ákærður fyrir manndráp Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp við Bjarnarvelli í Reykjanesbæ laugardaginn 8. maí síðastliðinn. Snemma morguns fannst maður á sextugsaldri látinn í götunni. 3.8.2010 16:09
Skipa hæstaréttardómara fyrir mánaðamót Stefnt er að því skipa nýjan hæstaréttardómara áður en Hæstiréttur tekur til starfa að nýju um næstu mánaðamót. Hjördís Björk Hákonardóttir hæstaréttardómari lét af störfum um helgina og matsnefnd metur núna hæfni þeirra fjóra umsækjenda sem sóttu um stöðu hennar. 3.8.2010 16:01
Sprenging í Hveragerði Grunur leikur á að sprengiefni hafi verið skilið eftir á almannafæri í Hveragerði og hluti þess sprungið í síðustu viku. 3.8.2010 13:50
Ætla að senda 3,5 milljónir til Pakistans Rauði kross Íslands hefur ákveðið að senda 3,5 milljónir króna úr neyðarsjóðum sínum til hjálparstarfs vegna gífurlegra flóða í norð-vesturhluta Pakistans. Rauði krossinn hefur einnig opnað fyrir söfnunarsíma sinn 904 1500 fyrir þá sem vilja styrkja hjálparstarfið. 3.8.2010 16:35
Bjóða sálfræðiaðstoð vegna áfalla á atvinnumarkaði Bandalag háskólamanna býður félagsmönnum sínum sem lenda í óvæntum starfstengdum áföllum eða starfslokum að sækja sér sálfræðitíma sér að kostnaðarlausu. 3.8.2010 15:29
Sex vilja stýra Landspítalanum Sex umsóknir bárust um stöðu forstjóra Landspítalans, en umsóknarfrestur rann út 30. júlí síðastliðinn. Á meðal umsækjenda er Björn Zoëga bæklunarskurðlæknir og starfandi forstjóri spítalans. Aðrir sem sóttu um eru eftirtaldir. 3.8.2010 12:52
Árni Páll neitar ásökunum um pólitíska ráðningu Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra hefur kallað eftir frekari upplýsingum um skuldamál Runólfs Ágústssonar nýskipaðs umboðsmanns skuldara. Árni Páll neitar því að ráðningin hafi verið pólitísk. 3.8.2010 12:00