Akurnesingar afnema launalækkun að hluta 4. ágúst 2010 03:15 Bæjarstarfsmenn á Akranesi fá hluta launa sinn til baka um næstu mánaðamót. Formaður bæjarráðs þakkar það fyrst og fremst meiri útsvarstekjum en menn héldu að myndu skila sér. Fréttablaðið/GVA
Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að minnka kjaraskerðingu bæjarstarfsmanna niður í 40 prósent af því sem ákveðið hafði verið. Breytingin gildir frá næstu mánaðamótum. Ennfremur var ákveðið að fela fjölskylduráði bæjarins að gera tillögur um endurskoðun á launaskerðingu í grunn- og leikskólum með aukningu á þjónustu og starfsemi viðkomandi stofnana í huga. Ástæða breytinganna er bætt afkoma bæjarsjóðs. „Fyrst og fremst hafa útsvars-tekjur verið meiri en við höfðum áætlað,“ segir Guðmundur Páll Jónsson, formaður bæjarráðs, sem kveður þetta góðs vita þótt hann ítreki að tíðindin merki ekki að kreppan sé yfirstaðin á Akranesi. Það hangi meðal annars á gengi stóriðjufyrirtækjanna á Grundartanga enda sé um helmingur starfsmanna þar búsettur á Akranesi. Launaskerðingin hafði að sögn Guðmundar verið misjöfn hjá starfsmönnum bæjarins. Laun undir 300 þúsund krónum hafi ekki verið skert en sumir tekið á sig um 15 prósent launaskerðingu. Sú skerðing minnki nú niður í um 6 prósent. Í greinargerð Jóns Pálma Pálssonar, framkvæmdastjóra framkvæmdadeildar, kemur fram að afkoma Akraneskaupstaðar var mun betri í fyrra og það sem af er þessu ári en áætlanir gerðu ráð fyrir. Samtals í fyrra og fyrstu sex mánuði þessa árs er bærinn gerður upp með um 270 milljóna króna afgangi í stað rúmlega 180 milljóna króna halla eins og reiknað hafði verið með. Er þar þannig um að ræða 450 milljóna króna sveiflu til hins betra á átján mánuðum. Bæði reksturinn sjálfur og fjármagnsliðir hafa verið hagstæðari en ráð var fyrir gert. Samtals hefur reksturinn skilað um 360 milljóna króna afgangi á þessu tímabili í staðinn fyrir 106 milljóna króna afgangi. Og í staðinn fyrir að fjármagnsliðir þýddu 311 milljóna króna mínus þá varð mínusinn tæplega 90 milljónir. Þess má geta að bæjarstjórn Akraness samþykkti í gær ráðningarsamning við nýjan bæjarstjóra, Árna Múla Jónasson. Hann mun fá 850 þúsund krónur í mánaðarlaun auk aksturspeninga. Launin eru að sögn Guðmundar hærri en hjá fyrrverandi bæjarstjóra. „Bæjarstjórastarfið á Akranesi var sennilega orðið lægsta launaða bæjarstjórastarf á landinu,“ segir Guðmundur. gar@frettabladid.is
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að meintum geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Sjá meira