Innlent

Sex vilja stýra Landspítalanum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björn Zoëga er á meðal umsækjenda.
Björn Zoëga er á meðal umsækjenda.
Sex umsóknir bárust um stöðu forstjóra Landspítalans, en umsóknarfrestur rann út 30. júlí síðastliðinn. Á meðal umsækjenda er Björn Zoëga bæklunarskurðlæknir og starfandi forstjóri spítalans. Aðrir sem sóttu um eru eftirtaldir.

Birgir Jónsson MBA

Guðmundur Björnsson orku- og endurhæfingarlæknir

Jan Triebel orku- og endurhæfingarlæknir, yfirlæknir Heilsustofnunar NLFÍ

Stefán E. Matthíasson æðaskurðlæknir

Þorsteinn Örn Guðmundsson verkfræðingur, ráðgjafi

Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára frá 1. október næstkomandi eftir að lögbundið mat hæfnisnefndar hefur borist honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×