Fleiri fréttir

Leikstjóri dæmdur fyrir að skalla mann

Leikstjórinn og tónlistarmaðurinn Ágúst Bent Sigbertsson var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás árið 2008 í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Neytendasamtökin: Samningar eiga að standa

Neytendasamtökin telja að gengistryggðir samningar, sem voru dæmdir ólöglegir í Hæstarétti á dögunum, eigi að standa óbreyttir, það eigi einnig við ákvæði um vaxtakjör að mati samtakanna.

Ölvaðir ökumenn ollu tjóni í Reykjavík

Tveir ölvaðir ökumenn ollu tjóni með þvi að aka utan í bíla í Reykjavík í nótt. Annar þeirra stakk af frá vettvangi, en var handtekinn skömmu síðar.

Pétri Blöndal er skapi næst að hætta á þingi

Pétur Blöndal þingmaður segir að sér sé skapi næst að hætta á Alþingi. Starfið sé mannskemmandi og illa borgað. Svo sé honum stillt upp „eins og glæpamanni" vegna styrkjamála.

Sjö hvolpar til fíkniefnaleitar

Lögregluyfirvöld og tollgæsla hafa nú stigið fyrsta skrefið í ræktun eigin fíkniefnaleitarhunda hér á landi. Til þessa hafa hundar úr viðurkenndum ræktunum verið fluttir frá útlöndum með verulegum tilkostnaði. Þeir hafa verið þjálfaðir hér á landi.

Gróður byrgði ökumanni sýn

Gróður byrgði ökumanni sýn á Selfossi með þeim afleiðingum að hann ók á barn á hjóli. Barnið slasaðist ekki við áreksturinn en það sá að líkindum ekki bílinn koma aðvífandi.

Bíður tillagna frá ríkissaksóknara

„Ákveðið var með lögum að fresta stofnun embættis héraðssaksóknara til 2012, þar sem ekki voru til fjármunir,“ útskýrir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra spurð um stöðuna á stofnun embættis héraðssaksóknara.

Deilur tefja fyrir styttingu hringvegarins

Tillögur Vegagerðarinnar um styttingu hringvegarins á tveimur stöðum á Norðurlandi hafa strandað á viðkomandi sveitarstjórnum. Um er að ræða annars vegar styttingu um sex kílómetra í Skagafirði og hins vegar fjórtán kílómetra styttingu nálægt Blönduósi, hina svokölluðu Húnavallaleið.

Framkvæmdir hefjist í haust

Landsvirkjun auglýsti um liðna helgi útboð á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) á þremur stærstu verkþáttum framkvæmda vegna Búðarhálsvirkjunar. Gangi áætlun eftir er áformað að framkvæmdum við Búðarhálsvirkjun verði lokið haustið 2013.

Ákærendur óttast óvissu og tímaskort

„Vilji menn setja tugi milljóna króna í nýtt embætti héraðssaksóknara þá þarf að fara að undirbúa það af krafti. En ég er þeirrar skoðunar að þetta verði aldrei.“ Þetta segir Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari.

Fékk kaffihús að gjöf á afmælisdaginn

„Þetta hefur verið draumur hjá mér í mörg ár,“ segir María Sigurðardóttir, afmælisbarn og kaffihúsaeigandi á Hvammstanga. Eiginmaður Maríu, Örn Gíslason, gaf henni kaffihúsið í afmælisgjöf þegar hún varð fimmtíu og tveggja ára og fékk það nafnið Hlaðan. Eins og nafnið gefur til kynna er kaffihúsið hýst í gamalli hlöðu en húsið var byggt árið 1928.

Stal dyrabjöllu og frosnu kjöti

Síbrotamaður hefur verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir mörg þjófnaðarbrot. Hann stal meðal annars á annað hundrað kílóum af frosnu kjöti úr gámi á Höfn á síðasta ári.

32 milljónir sendar til Haítí

Hjálparstarf kirkjunnar hefur safnað 19,5 milljónum króna til hjálpar- og uppbyggingarstarfs á Haítí. Að auki hefur utanríkisráðuneytið lagt fram þrettán milljónir króna.

Ekkert samráð verið haft um skattamál

Starfshópur fjármálaráðherra um breytingar á skattkerfinu hefur ekki enn hitt samráðshóp hagsmunaaðila um málið, þrátt fyrir að hafa verið starfandi í tvo mánuði. Hópurinn á að skila áfangaskýrslu eftir rúmar þrjár vikur, 15. júlí.

Vatnsleki í Bókasafni Hafnarfjarðar

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út skömmu fyrir klukkan níu í kvöld að Bókasafni Hafnarfjarðar við Strandgötu vegna vatnsleika. Þar flæddi heitt vatn um kjallara hússins og fór dælubíll á vettvang.

Fingurbraut barnsmóður sína

Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á barnsmóður sína í júlí 2008. Maðurinn réðst á konuna, reif í hár hennar og veitt henni nokkur hnefahögg í höfuð, handleggi og hendur með þeim afleiðingum að hún hlaut mar í andliti, mar á vinstri upphandlegg og brot á litla fingri hægrihandar. Manninum er gert að greiða barnsmóður sinni 250 þúsund krónur með vöxtum í miskabætur.

Aðstoðuðu vélarvana bát

Björgunarsveitin Geisli á Fáskrúðsfirði var kölluð til aðstoðar vélarvana bát rúmlega 20 sjómílur út af Skrúð og var Hafdís, nýfenginn björgunarbátur sveitarinnar, sendur í sitt þriðja útkall sem tókst vel, að því er fram kemur í tilkynningu. Þrjá tíma tók að toga bátinn að landi.

Segir Kaupþing hafa veitt ólögmæt lán

Forveri Arion banka, Kaupþing, veitti ólögmætt gengistryggt húsnæðislán, segir hæstaréttarlögmaður og véfengir þar með yfirlýsingu Arion banka um að lánasamningar hans séu löglegir.

Bíða eftir viðbrögðum

Uppgjör gengistryggðra lána veltur á viðbrögðum fjármálafyrirtækja, segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar alþingis - og vill svör frá þeim fyrir fimmtudag. Samtök fjármálafyrirtækja kalla hins vegar á að ríkisstjórnin beini samræmdum tilmælum til bílalánafyrirtækja og banka um hvernig eigi að bregðast við gengislánadómum hæstaréttar.

Mikið verk óunnið

Mikið verk er óunnið í jafnréttisbaráttu kvenna og konur eru í hlutfallslega fáum áhrifastöðum þrátt fyrir tækifæri í kjölfar efnahagshrunsins. Þetta segir ráðskona Femínistafélagsins sem veitti í dag fjórum karlmönnum hvatningarverðlaunin Bleika steininn.

Mál Baldurs og Exeter meðal þeirra sem lengst eru komin

Enn hafa engar ákærur verið birtar í rannsóknum á vegum sérstaks saksóknara og embættið hefur ekki lokið neinum rannsóknum með tilkynningum til sakborninga. Einn sakborningur segir óþolandi að hafa málið hangandi yfir sér og geta ekki skipulagt framtíðina.

Þriðja endurskoðun líklega afgreidd hjá AGS fyrir sumarlok

Ekkert bendir til annars en að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn muni endurskoða efnahagsáætlun fyrir Ísland í þriðja sinn áður en sumarið er úti, en sendinefnd á vegum sjóðsins er nú hér á landi og á í viðræðum við íslensk stjórnvöld.

Kyrrsetning eigna felld úr gildi

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms sem felldi úr gildi ákvörðun sýslumanns um kyrrsetningu eigna Skarphéðins Bergs Steinarssonar þar sem lagalegar heimildir skorti.

Ræddu um samvinnu í fiskveiðimálum og viðskiptum

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með með Vladimir Titov, varautanríkisráðherra Rússlands. Á fundinum ræddu þeir málefni norðurslóða og samskipti landanna, m.a. samvinnu í fiskveiðimálum, viðskiptum, orkumálum og menningarmálum. Þá fundaði Titov ennfremur með ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins og öðrum embættismönnum.

Hlaut þyngri dóm fyrir að berja Guðmund í Byrginu

Hæstiréttur hefur dæmt Ragnar Hauksson í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á Guðmund Jónsson, fyrrverandi forstöðumann Byrgisins, eignaspjöll á bifreið Guðmundar, húsbrot og hótanir. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði ekki klæmst við 17 ára stúlku.

Sýknaður af sérstaklega hættulegri líkamsárás

Maður fæddur 1989, sem dæmdur var í níu mánaða fangelsi í héraðsdómi og til greiðslu hálfrar milljónar í skaðabætur fyrir að slá annan mann með glasi var í dag sýknaður í Hæstarétti. Tveimur dómurum af þremur fannst ekki sannað að ákærði hafi framið það afbrot sem hann er ákærður fyrir og var hann því sýknaður. Þriðji dómarinn skilaði sératkvæði þar sem hann segir að þótt ýmsa annmarka megi finna á rannsókn lögreglu á málinu leiði það ekki til ómerkingar héraðsdóms og vildi hann því staðfesta dóm héraðsdóms.

Olís dregur hækkun til baka

Olís, sem hækkaði eldsneytisverð um 20 krónur í morgun hefur nú dregið hækkunina alfarið til baka. Þegar tilkynnt var um hækkunina í morgun bar félagið því við að eldsneytisverð sé komið langt undir það verð sem þarf til að standa undir eðlilegri verðmyndum miðað við innkaupsverð og gengi. Skeljungur hækkaði eldsneytislítrann um tólf krónur í kjölfarið og stendur sú hækkun enn.

Helmingur ökumanna keyrðu of hratt í Mosfellsbæ

Brot 25 ökumanna voru mynduð í Arnarhöfða í Mosfellsbæ á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhöfða í norðurátt, við Fálkahöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira.

Mesta verðstríð í sjö ár

„Það hafa komið tímabundnar verðsamkeppnir áður,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB um verðstríðið sem hefur geisað á eldsneytismarkaðnum undanfarnar vikur en verð á eldsneyti hefur snarlækkað síðan Orkan reið á vaðið og lækkaði bensíni og dísil olíu langt niður fyrir 190 krónur.

Slökkviliðsmenn greiða atkvæði um verkfallsboðun

Kjararáð Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur ákveðið að halda atkvæðagreiðslu á meðal slökkviliðsmanna um hvort boða skuli til verkfalls. Þá verður skorið úr um það hvort slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fari í verkfall en þeir hafa verið samningslausir síðan 31. ágúst á síðasta ári.

Mannabein fundust á Kili

Guðmundur A. Guðmundsson dýravistfræðingur fann á dögunum bein á Kili sem hann ályktar að sé úr höfuðkúpu manns. Fjallað er um málið á skagfirska fréttamiðlinum Feyki en Guðmundur mun hafa tilkynnt fundinn til lögreglu. Að sögn Guðmundar sagðist hann hafa grunað strax að um mannabein sé að ræða og síðan hafi hann fengið það staðfest hjá læknanema að svo sé að öllum líkindum. Endanlegrar staðfestingar er þó enn beðið.

Skeljungur hækkar líka

Skelungur hefur fylgt í fótspor Olís og hækkað eldsneytisverð hjá sér um tólf krónur. Algengasta verð fyrir 95 oktana bensín á stöðvum félagsins er nú um 201 króna og dísellítrin kostar tæpar 200 krónur. Olís reið á vaðið eins og áður sagði og hækkaði í morgun verð á bensíni og dísel um 20 krónur á lítra.

Braut glerflösku á höfði og skerti heyrn

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás þegar hann á að hafa slegið annan mann með glerflösku í maí á síðasta ári.

Lilja: Gylfi hefur staðið í vegi fyrir aðgerðum

Viðskiptaráðherra hefur staðið í vegi fyrir aðgerðum í þágu skuldsettra heimila segir formaður viðskiptanefndar sem harmar aðgerðarleysi stjórnvalda. Hún segir að samfélagið muni loga í lögsóknum ef einstaklingar verði látnir um að greiða úr ágreiningi. Það muni seinka endurreisninni.

Sjö hvolpar hjálpa lögreglunni

Sjö hvolpum hefur nú verið komið fyrir á heimilum þar sem þeir fá hefðbundið uppeldi og verða undirbúnir undir að starfa með lögreglunni í fíkniefnaleit. Á síðustu árum hafa embættin flutt inn sérvalda hunda frá viðurkenndum vinnuhundaræktendum á Englandi og í Noregi. Þjálfun, búnaður og færni hundaþjálfara og hunda er í hæsta gæðaflokki og stenst samanburð við nágrannalöndin.

Dómur þyngdur yfir Barðastrandaræningjunum

Hæstiréttur Íslands þyngdi dóma yfir Barðastrandaræningjunum um eitt ár í morgun. Mennirnir, sem heita Axel Karl Gíslason og Viktor Már Axelsson, voru dæmdir fyrir að svipta aldraðan úrsmið á Barðaströnd á Seltjarnarnesinu frelsinu á síðasta ári auk þess sem þeir rændu hann.

Sjá næstu 50 fréttir