Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ráðherra vill ekki loka háskólum Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að þótt samvinna og sérhæfing háskólanna verði höfð að leiðarljósi sé ekki þar með sagt að það eigi að leggja niður heilu háskólana. Félag prófessora við ríkisháskóla leggur til við rektor Háskóla Íslands að stjórnvöldum verði gert tilboð um að taka við öllum nemendum Háskólans í Reykjavík. 21.5.2010 11:27
Blóðtaka ef HÍ tæki námið í HR yfir Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, segir að full þörf sé á því að skólinn sé starfræktur áfram. Hann er því ósammála félagi prófessora við ríkisháskóla sem leggur til við rektor Háskóla Íslands að stjórnvöldum verði gert tilboð um að taka við öllum nemendum Háskólans í Reykjavík, samkvæmt frétt Fréttablaðsins. 21.5.2010 10:04
BHM á móti lengri stöðugleikasáttmála að óbreyttu Bandalag háskólamanna mun ekki taka þátt í framlengingu stöðugleikasáttmála verði ekki breyting á þeirri launastefnu sem lýst er í gildandi sáttmála. 21.5.2010 09:50
Atvinnulausir fá vinnu í nágrenni gosstöðva Samkomulag hefur náðst um að sveitarfélögin í nágrenni gosstöðvanna í Eyjafjallajökli muni bjóða einstaklingum á atvinnuleysisskrá atvinnau við afleysingar og aðstoðar við búskap, en fjölmörg verk þarf að vinna á næstu dögum og vikum vegna áhrifa gossins. 21.5.2010 08:57
Fiskibátar í vandræðum Sex fiskibátar,aðallega strandveiðibátar,lentu í vandræðum á miðunum við landið í gær og þurftu aðstoð. Vandræðin stöfuðu einkum af vélarbilunum eða bilunum í stýrisbúnaði. 21.5.2010 07:15
Fékk sér í aðra tána og festi hana Lögreglunni á Selfossi barst í nótt beiðni um aðstoð við stálpaðan ungling,sem hafði fest tá í trépalli umhverfis heitann pott við sumarbústað í Hrunamannahreppi, og gat sig hvergi hreyft. 21.5.2010 07:06
Hestamenn funda um pestina Hagsmunahópar í hestamennsku ætla í dag að eiga fund með landbúnaðarráðherra og ráðuneytismönnum vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin, vegna kvefpestar og hita sem herjar á hross um allt land. 21.5.2010 07:00
Var í Hollandi en kemur í dag Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, kemur til landsins í dag. Hann hefur dvalið í Hollandi, þar sem hann hefur átt fundi. Hann vildi lítið tjá sig um málið, en sagði þó ekki beinlínis vera í lögregluaðgerðum, heldur snérist ferðin um fundi og skipulagningu. 21.5.2010 06:00
Segja Beaty hafa sagt ósatt Ross J. Beaty, forstjóri Magma Energy, er sagður hafa sagt blaðamönnum tímaritsins Reykjavík Grapevine ósatt um fyrirætlanir fyrirtækisins hér á landi. 21.5.2010 06:00
Prófessorar leggja til að HÍ taki yfir alla kennslu í HR Félag prófessora við ríkisháskóla leggur til við rektor Háskóla Íslands að skólinn geri stjórnvöldum tilboð um að taka við öllum nemendum Háskólans í Reykjavík. Í tillögunni segir að líklega kosti það skólann um einn milljarð króna en 1,5-2 milljarðar sparist á háskólastiginu. 21.5.2010 06:00
Ingólfur og Hreiðar sæta áfram farbanni Hæstiréttur staðfesti í gær farbannsúrskurð héraðsdóms yfir Ingólfi Helgasyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings á Íslandi. Kvöldið áður staðfesti Hæstiréttur farbann yfir Hreiðari Má Sigurðssyni. Samkvæmt úrskurðunum er þeim óheimilt að yfirgefa landið þangað til 28. maí. 21.5.2010 06:00
Vilja mosku hjá Veðurstofunni Félag múslima á Íslandi á í viðræðum við Reykjavíkurborg um byggingarlóð fyrir mosku. Í erindi til skipulagsfulltrúa leggur félagið til þrjár mögulegar lóðir. Helst vilja múslimar reisa moskuna á borgarlandi við Bústaðaveg vestan við hús Landsvirkjunar og Veðurstofunnar. 21.5.2010 05:45
Knúti breytt í sjóræningjaskip Knútur RE, 30 tonna netabátur sem smíðaður var í kringum 1960, gengur á næstunni í endurnýjun lífdaga sem sjóræningjaskip í skemmtigarðinum í Grafarvogi. Þar mun báturinn vera hluti af nýrri og glæsilegri minigolfbraut sem smíðuð verður í kringum „golfvöllinn“. Þessi ævintýralegi 18 holu golfvöllur verður annar tveggja sem til stendur að opna á svæðinu. 21.5.2010 05:30
Rætt um ýmsar hliðar orkumála Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra situr nú hnattvæðingarþing norrænu ráðherranefndarinnar í Danmörku. 21.5.2010 05:15
Fresta lokun göngudeildar SÁÁ hefur ákveðið að fresta lokun göngudeildar á Akureyri en henni átti að loka 1. júní. 21.5.2010 05:00
Fyrsta skipið til Seyðisfjarðar Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins lagðist að bryggju við Strandarbakka hér á Seyðisfirði í gær. Með skipinu eru rúmlega 500 farþegar. 21.5.2010 05:00
Hjálpa bændum í öskuskýi „Þetta gekk bara framar björtustu vonum og krakkarnir eru himinlifandi, enda búnir að standa sig eins og hetjur," segir Sif Árnadóttir, móðir Marisol Árnýjar og Michaels Adams Amador, sem ásamt Silju Maren Björnsdóttur, vinkonu þeirra, efndu til tombólu á Akureyri í gær til styrktar bændum undir Eyjafjöllum. Marisol er níu ára, Michael Adam fimm ára og Silja Maren sjö ára. 21.5.2010 04:30
Vörðu mannvirki fyrir eðjuflóði Stórvirkar vinnuvélar voru notaðar í gær til að verja mannvirki fyrir flóðinu í Svaðbælisá undir Eyjafjöllum. Fyrir hádegi tók að rigna og óx í ánni að sama skapi, að sögn Ólafs Eggertssonar bónda á Þorvaldseyri. 21.5.2010 04:30
Borgarráð vill svör frá Árna Borgarráð vill skýringar frá Árna Páli Árnasyni félagsmálaráðherra vegna yfirlýsinga hans um fækkun starfa í heilbrigðisþjónustu, menntakerfi og velferðar- og öldrunarþjónustu. Borgarráð hefur áhyggjur af áhrifum þessa á atvinnuástand í Reykjavík. 21.5.2010 04:00
Frambjóðendur frá Fæðingarorlofssjóði „Það er alls ekki ólíklegt að það verði fjórir héðan sem setjast í sveitarstjórnina,“ segir Leó Örn Þorleifsson, forstöðumaður Fæðingarorlofssjóðs. 21.5.2010 04:00
Vilja veðsetja Vatnsmýrina Vinna á nýtt aðalskipulag fyrir Reykjavík sem gerir ráð fyrir að flugvöllurinn víki úr Vatnsmýrinni fyrir byggingarlóðum. 21.5.2010 03:15
Segja veggjöld óásættanleg Bæjarstjórn Hveragerðis lýsir furðu sinni á því að í samgönguáætlun Alþingis sé ekki gert ráð fyrir framlagi til Suðurlandsvegar heldur eigi að horfa til aðkomu lífeyrissjóðanna. Komið hafi fram að arður lífeyrissjóðanna ætti að felast í veggjöldum. 21.5.2010 03:15
Eigendur sumarhúsa svara með sóðaskap „Það er einfaldlega sorglegt að nokkur maður finni sig í því að henda rusli á víðavangi,“ segir Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, þar sem menn glíma nú við að rusl er skilið eftir þar sem áður voru gámar. 21.5.2010 03:00
Hilton-keðjan velur íslenskt Hótelkeðjan Hilton Worldwide hefur ákveðið að íslenska flöskuvatnið Icelandic Glacial verði í hávegum haft á meira en 750 hótelum sínum um víða veröld. 21.5.2010 02:30
Sæstrengur kostar nærri 350 milljarða Í frumhagkvæmnisathugun á lagningu sæstrengs fyrir rafmagn frá Íslandi um Færeyjar til Bretlands er ráð fyrir því gert að fjárfesting í verkefninu skili sér til baka á fjórum til fimm árum, eftir þróun raforkuverðs. 21.5.2010 02:30
Auðlindamálin sett á dagskrá Kosið verður til stjórnlagaþings í síðasta lagi 31. október samkvæmt breytingatillögu meirihluta allsherjarnefndar á frumvarpi forsætisráðherra um þingið. 21.5.2010 02:00
Vill að sviplegt fráfall sonarsonar síns verði öðrum víti til varnaðar „Það er ekkert sem getur fært okkur drenginn aftur en ég get varað fólk við þeim hættum sem víða leynast og þannig komið í veg fyrir annað slys,“ segir Hákon Hákonarson, afi litla drengisins sem lést á mánudag, eftir að hafa slasast alvarlega á róluvelli. 20.5.2010 19:18
Vilja sex milljónir til þess að stórbæta samgöngur til Vestmannaeyja Vestmannaeyjabær og Eimskip hafa gert samkomulag um að ferðum Herjólfs verði fjölgað úr 1360 í 1485 á ári og sigli því 4 ferðir á dag, allt árið. 20.5.2010 19:01
Segja fjórflokkinn þagga niður flugvallarmálið Reykjavíkurframboðið, eða E-listinn, sem berst fyrir því að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýri, telur að fjórflokkurinn sé leynt og ljóst að festa flugvöllinn í sessi og hafi sammælst um að ræða ekki flugvallarmálið fyrir þessar kosningar. 20.5.2010 18:34
Pólitískt forystuleysi að valda þjóðinni skelfilegum skaða Atvinnuhorfur eru mjög dökkar fyrir haustið og veturinn og stefnir í að átján þúsund manns verði án vinnu, að mati Alþýðusambands Íslands, sem sendi í dag ákall til ríkisstjórnarinnar um að grípa til aðgerða. Forseti ASÍ segir að pólitísk kreppa og forystuleysi sé að valda þjóðinni skelfilegum skaða. 20.5.2010 18:30
Þrjú og hálft ár fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann um sextugt, Jón Sverri Bragason, til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng sem var á aldrinum þrettán til fimmtán ára þegar brotin voru framin. Að auki er manninum gert að greiða drengnum eina og hálfa milljón króna í bætur. 20.5.2010 16:45
Tveggja ára fangelsi fyrir samræði við konu gegn vilja hennar Hæstiréttur dæmdi í dag fertugan Bandaríkjamann í tveggja ára fangelsi fyrir blygðunarsemisbrot á Hótel Borg í maí í fyrra. 20.5.2010 16:32
Ætlar að stefna Seltjarnarnesbæ vegna eineltis Ólafur Melsteð, framkvæmdastjóri Tækni- og umhverfissviðs hjá Seltjarnarnesbæ, hyggst stefna sveitarfélaginu, vegna meints eineltis af hálfu Ásgerðar Halldórsdóttur bæjarstjóra. Þetta staðfestir Ólafur í samtali við fréttastofu. 20.5.2010 15:15
Handtóku fíkniefnasala í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í gærkvöld. Að sögn lögreglu var um að ræða allnokkuð af kannabisefnum sem voru ætluð til sölu. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu. 20.5.2010 15:02
Vatnavextir í Grímsvötnum - Skeiðarárhlaup líklegt Vatnamælingamenn hafa undanfarið fylgst náið með vatnavöxtum í Grímsvötnum og telja nokkrar líkur á því að Skeiðarárhlaup sé á næsta leyti. 20.5.2010 12:02
Ábyrgðarmanni stefnt þrátt fyrir glóðvolgt frumvarp Daginn eftir að Lánasjóður íslenskra námsmanna stefndi skuldara og föður hans fyrir héraðsdómi Reykjavíkur var manninum veitt heimild til greiðsluaðlögunar. Maðurinn hefur áhyggjur af ábyrgðarmanninum föður sínum, en samkvæmt frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi verður kröfuhöfum óheimilt að krefjast greiðslu hjá ábyrgðarmanni skuldara í greiðsluaðlögun. 20.5.2010 18:37
Síbrotamaður í tveggja og hálfs árs fangelsi Hæstiréttur úrskurðaði í dag að tveggja og hálfs árs dómur Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Guðmundi Jakobi Jónssyni, skyldi vera óraskaður. 20.5.2010 17:08
Um 4500 erlendir ríkisborgarar með kosningarétt Rétt rösklega 4500 erlendir ríkisborgarar eiga kosningarrétt við sveitarstjórnarkosningarnar þann 29. maí næstkomandi og hefur dómsmála- og mannréttindaráðuneytið nú sent þeim öllum kynningarbækling um kosningarnar. Í bæklingnum er að finna leiðbeiningar á ellefu tungumálum auk íslensku um kosningarrétt, kjörskrá, framkvæmd atkvæðagreiðslu og fleira. 20.5.2010 16:27
Engin hætta við Lambafell Enginn hætta er á að vatnavextir í Svaðbælisá ógni glæsihúsnæðinu við Lambafell, segir lögreglumaður sem Vísir talaði við. Hann sagði að áin hefði hefði hlaðið miklu undir sig vetna flóðsins sem varð í gær. Hins vegar hefði ekki orðið nýtt flóð. 20.5.2010 15:52
Vill umræðu um hestapestina í landbúnaðarnefnd Einar K. Guðfinnsson þingmaður sjálfstæðismanna vill að hestapestin sem nú geisar verði tekin til umfjöllunar í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd við „fyrstu hentugleika“. Einar er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni og bendir hann á að pestin hafi þegar haft mikil áhrif. 20.5.2010 15:12
Glæsihýsi í hættu vegna nýs flóðs í Svaðbælisá Miklir vatnavextir eru hafnir í Svaðbælisá undir Eyjafjöllum. Íbúar í grenndinni sem fréttastofa hefur rætt við segjast óttast að hús að Lambafelli kunni að vera í hættu vegna flóðsins. 20.5.2010 14:24
Úthluta styrkjum til fjölda verkefna Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur samþykkt tillögur um úthlutun styrkja til 21 verkefnis og rannsókna sem munu koma til framkvæmda á þessu ári. 20.5.2010 13:04
Jóhanna á hnattvæðingarþing í Danmörku Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hélt til Danmerkur í gær þar sem hún mun taka þátt í hnattvæðingarþingi á vegum norrænu ráðherranefndarinnar og reglulegum fundi norrænu forsætisráðherranna. 20.5.2010 12:58
Ekki þorandi að senda vísindamenn í hlíðar jökulsins Ekki er þorandi að senda vísindamenn upp í hlíðar Eyjafjallajökuls til að kanna hættuna á frekari eðjuflóðum á svæðinu. Víðir Reynisson, deildarstjóri Almannavarna Ríkislögreglustjóra, segist ekki telja að grípa þurfi til rýminga á svæðinu. 20.5.2010 12:08
Eyddu ekki meira en 300 þúsund krónum Frambjóðendur Framsóknarflokksins í Reykjavík sem tóku þátt í forvali framsóknarmanna í Reykjavík sem haldið var 28. nóvember 2009 hafa skilað inn yfirlýsingu Ríkisendurskoðunar og staðfest að útgjöld fóru ekki yfir 300 þúsund krónur. 20.5.2010 11:34