Innlent

BHM á móti lengri stöðugleikasáttmála að óbreyttu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Guðlaug Kristjánsdóttir er formaður BHM.
Guðlaug Kristjánsdóttir er formaður BHM.
Bandalag háskólamanna mun ekki taka þátt í framlengingu stöðugleikasáttmála verði ekki breyting á þeirri launastefnu sem lýst er í gildandi sáttmála.

Bandalagið segir í nýsamþykktri ályktun að kjarasamningar aðildarfélaga BHM hafa verið lausir í á annað ár og félögunum hafi ekki boðist að ræða áherslumál sín við Samninganefnd ríkisins á þeim tíma. Í undangengnum kjarasamningum hafi vægi háskólamenntunar farið sífellt minnkandi. BHM geti ekki samþykkt framhald á þeirri þróun.

„Félagsmenn aðildarfélaga BHM hjá hinu opinbera búa við skert launakjör, aukið álag og óvissu um störf. Fjölmargir í þeim hópi greiða árlega sem svarar einum mánaðarlaunum í afborganir af námslánum, en ekkert tillit hefur verið tekið til námslána í greiðsluerfiðleikaúrræðum af hálfu ríkisins.

Minnkandi vægi menntunar í launasetningu er þjóðhagslega óhagkvæm stefna, enda mikilvægt að fólk skili sér inn og haldist á íslenskum vinnumarkaði að loknu langskólanámi," segir í ályktun BHM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×