Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ætla að kenna Taílendingum íslensku „Við ætlum að safna peningum til að halda úti kennslu í íslensku fyrir Taílendinga og hjálpa þeim þannig að aðlagast betur að íslenskum vinnumarkaði," segir Wasana Maria Thaisomboon sem er formaður nýstofnaðs félags sem heitir Siam. Að félaginu standa einstaklingar að taílensku ætterni sem hafa búið hér á landi í lengri eða skemmri tíma. Tveir Íslendingar sitja auk þess í fimm manna stjórn félagsins. 20.5.2010 10:04
Nafn drengsins sem lést Drengurinn sem slasaðist alvarlega á leiksvæði í Grafarvogi á laugardag og lést á gjörgæsludeild á mánudag hét Kristófer Darri Ólafsson. Hann var á fjórða aldursári. Útförin fer fram í Grafarvogskirkju á morgun föstudag klukkan 13. 20.5.2010 09:38
Íbúafundur á Hvolsvelli vegna eldgossins Íbúafundur verður haldinn í íþróttahúsinu á Hvolsvelli í kvöld klukkan 20:30. Farið verður yfir þróun eldgossins í Eyjafjallajökli, afleiðingar þess og stöðuna í dag. 20.5.2010 09:31
Minni skjálftavirkni norðaustur af Siglufirði Skjálftahrinan sem hófst norðaustur af Siglufirði laust fyrir klukkan sex í gærkvöldi með skjálfta upp á 3,4 á Richter hjaðnaði í nótt. Skömmu eftir fyrsta skjálftann varð annar upp á 3,3 á Richter en síðan hafa eftirskjálftarnir verið mun minni og orðið strjálli í nótt. Fyrstu skjálftarnir fundust vel á Siglufriði og í Ólafsfirði, en ekkert tjón hlaust af þeim. 20.5.2010 08:19
Ekki flogið til Eyja og Egilsstaða vegna þoku Innanlandsflug hófst samkvæmt áætlun i morgun nema hvað ekki hefur enn verið flogið til Egilsstaða og Vestmannaeyja vegna þoku á þeim stöðum, en ekki vegna eldfjallaösku í lofti. 20.5.2010 08:13
Flutt á sjúkrahús eftir bílveltu Tvö ungmenni sluppu lítið meidd, þegar bíll þeirra valt heila veltu og hafnaði á hjólunum úti í Eyjafjarðará á tólfta tímanum í gærkvöldi. Fólkið komst sjálft út úr bílnum og upp á veg, en var flutt á sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. 20.5.2010 07:58
Aðstoðuðu konu í Esjuhlíðum Sjúkraflutningamenn sóttu í gærkvöldi konu, sem hafði snúið sig á fæti í Kistufelli í Esjuhlíðum. Björgunarsveitarmenn, sem voru að æfingum í grennd, fundu gönguhópinn og aðstoðuðu konuna til móts við torfærusjúkrabíl slökkvliðsins sem flutti hana á slysadeild. 20.5.2010 07:52
Strandveiðikvótinn á svæði eitt búinn Strandveiðikvótinn er búinn í þessum mánuði á svæði eitt, sem nær frá Snæfellsnesi til Bolungarvíkur, og mega bátarnir því ekki róa fyrr en eftir mánaðamót þegar að nýr mánaðarkvóti verður í boði. 20.5.2010 07:50
Í-listinn mælist með hreinan meirihluta Í-listinn, sameiginlegt framboð Samfylkingar, Vinstri grænna, Frjálslyndra og óháðra, fær hreinan meirihluta bæjarfulltrúa á Ísafirði samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi. 20.5.2010 06:00
20 prósenta lækkun kostar 229 milljarða Það mundi kosta 229 milljarða króna að lækka höfuðstól verðtryggðra lána heimila í íslenskum krónum um 20 prósent. 20.5.2010 06:00
Laus allra mála eftir 11 mánaða rannsókn Lögregla hefur fellt niður að fullu mál á hendur Sigurði Hilmari Ólasyni, sem handtekinn var í fyrrasumar grunaður um að tengjast einu stærsta fíkniefnamáli sem komið hefur upp í heiminum. 20.5.2010 06:00
Seðlabankinn stígur ný skref eftir efnahagshrunið Forsendur skapast til að draga úr gjaldeyrishöftum og lækka stýrivexti frekar í kjölfar samkomulags Seðlabanka Íslands og Lúxemborgar um kaup á íslenskum skuldabréfapakka sem setið hefur fastur ytra frá falli gamla Landsbankans í október 2008. Már Guðmundsson seðlabankastjóri undirritaði samninginn ásamt Yves Mersch, kollega sínum í Lúxemborg, í gær. 20.5.2010 05:15
Aðstæður gjörbreyttar „Í nóvember var ferðaþjónusta í blóma, náttúra vinveitt og krónan veik. Nú blasir við breytt mynd og blæs á móti,“ sagði Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála, á fundi Icelandair í gærmorgun. Hún taldi sig vita að vonir aðstandenda fundarins hafi staðið til þess að þegar að honum kæmi yrði eldgosið í Eyjafjallajökli yfirstaðið eða í rénun. 20.5.2010 05:00
Tunga og hjarta þykir lostæti ytra Hrafnreyður KÓ-100 heitir nýuppgert skip Hrefnuveiðimanna ehf. sem fékk í gær haffærisskírteini og hélt samdægurs út til veiða frá Kópavogshöfn. 20.5.2010 04:45
Stjórnir verði endurvaktar Stjórnir heilbrigðisstofnana verða endurvaktar nái tillaga nokkurra þingmanna, með Ásmund Einar Daðason, VG, í fararbroddi, fram að ganga. 20.5.2010 04:30
Þurfandi mætt með aðstoð og leik Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur úthlutað 30 milljónum króna úr sjóði sem stofnaður var í tilefni Evrópuársins gegn fátækt og félagslegri einangrun. 21 verkefni hlaut styrk en sótt var um framlög vegna 84 verkefna upp á samtals rúmlega 200 milljónir. 20.5.2010 04:00
Hækka skatta hátekjufólks Ríkisstjórn Spánar vill hækka hátekjuskatt í viðleitni til að ná tökum á fjárlagahallanum. 20.5.2010 04:00
Efnaðir geta valið sér lyf en fátækir ekki Það kerfi sem heilbrigðisyfirvöld hafa sett á laggirnar til að ákveða hvaða lyf eru niðurgreidd í hverjum flokki hefur þegar leitt til mismununar í heilbrigðiskerfinu, segir Olgeir Olgeirsson, framkvæmdastjóri Portfarma. 20.5.2010 04:00
Karlar eru 4% starfsmanna Karlmenn eru í miklum minnihluta meðal starfsmanna á leikskólum, að því er fram kemur í samantekt Hagstofu Íslands. Konur eru 96 prósent starfsmanna leikskóla en karlmenn aðeins um fjögur prósent. 20.5.2010 04:00
Sjálfkjörið í fjórum sveitarfélögum Kosið verður á milli tveggja eða fleiri lista í 54 af 76 sveitarfélögum í kosningunum 29. maí. Alls eru 185 listar í framboði og sitja á þeim 2.846 manns. 20.5.2010 03:15
Evrópa bregst ef evran fellur „Það er okkar sögulega verkefni. Ef evran bregst þá bregst Evrópa," sagði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, þegar hún í gær hvatti neðri deild þingsins til að samþykkja hlut Þýskalands í eitt þúsund milljarða evra björgunarpakka í Evrópu. 20.5.2010 03:00
Örlög allra þjóða samofin Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flutti á þriðjudag setningarræðu á alþjóðlegri ráðstefnu Norður-Suðurstofnunarinnar sem starfar á vegum Evrópuráðsins. 20.5.2010 02:45
Segja 150 störf vera í hættu „Það ástand sem þetta frumvarp skapar og hefur haft á rekstur fyrirtækisins Hvals hf. er algjörlega óviðunandi,“ segir í ályktun bæjarstjórnar Akraness vegna frumvarps um leyfisveitingar vegna hvalveiða sem lagt hefur verið fram á Alþingi. 20.5.2010 02:30
Veiðar hefjast HB Grandi undirbýr nú komandi síldarvertíð. Stefnt er að því að Lundey NS fari til veiða um miðja næstu viku og í framhaldinu munu Faxi RE og Ingunn AK verða send til veiða, að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda. Vertíðarbyrjunin nú verður á svipuðu róli og í fyrra. Hjá fiskiðjuveri HB Granda á Vopnafirði hefur verið unnið að undirbúningi síldarvertíðarinnar undanfarnar vikur og settur upp nýr og fullkominn búnaður til vinnslu á síld og makríl. - shá 20.5.2010 02:15
Pólitísk sátt um sanngirnisbætur Alþingi samþykkti samhljóða á þriðjudagskvöld frumvarp forsætisráðherra um sanngirnisbætur til þeirra sem urðu fyrir varanlegum skaða vegna illrar meðferðar eða ofbeldis á tilteknum stofnunum eða heimilum á vegum ríkisins. Getur einstaklingur fengið allt að sex milljónum króna. 20.5.2010 02:00
Ég er geislavirkur, herra minn „Enginn í ríkisstjórn Obama svarar mér, hlustar á mig, talar við mig eða les neitt af því sem ég skrifa þeim,“ segir séra Jeremiah Wright, sóknarprestur Baracks Obama, núverandi Bandaríkjaforseta. 20.5.2010 02:00
Gosið bætir gráu í svört ský yfir Evrópu Íslendingar hafa tíma 11. júní til að sannfæra heiminn um að landið sé öruggt og að hingað sé yfirhöfuð hægt að ferðast, að sögn fjölmiðlamannsins Simons Calder. Nýta þurfi gluggann fram að HM í fótbolta. Gos í Eyjafjallajökli var til umræðu á fundi Icelandair í gær. Formaður Evrópusambands flugfélaga segir heildartap vegna þess, dagana 15. til 23. apríl, hafa numið 733 milljónum evra, eða 117,7 milljörðum króna. 20.5.2010 01:00
Annar karlmaður segist hafa lent í meinta nauðgaranum „Hann leitar uppi unga stráka, dópar þá og þegar þeir drepast þá leitar hann á þá,“ segir 25 ára gamall maður sem segist hafa lent í kynferðisofbeldi af hálfu manns sem nú hefur verið kærður fyrir að nauðga ungum manni um tvítugt. 19.5.2010 20:45
Fjögurra bíla árekstur við Stekkjarbakka Fimm voru færðir á slysadeild eftir fjögurra bíla árekstur nálægt Stekkjarbakkabrú um kvöldmatarleytið. 19.5.2010 20:17
Bæjarstjóri Akraness hafnar lögbroti Bæjarstjóri Akraness hafnar því að bærinn hafi brotið lög vegna samnings sem gerður var við fyrirtæki í eigu sonar forseta bæjarstjórnar. Kærunefnd útboðsmála telur bæinn hafa brotið lög, en hefur ekki heimild til að ógilda samninginn. 19.5.2010 18:50
Eðjan eins og flæðandi steypa Almannavarnir segja afar mikilvægt að fólk virði bannsvæði við Eyjafjallajökul. Hætta er á að eðjuflóð falli víða við jökulinn vegna mikillar úrkomu á svæðinu. Aurflóð sem helst líktist flæðandi steypu féll í farvegi Svaðbælisár í dag. 19.5.2010 18:37
Jarðskjálfti á Norðurlandi Jarðskjálfti, sem mældist tæpir fjórir á richter-skalanum, skók jörðu á Norðurlandi um hálf sex í dag en upptök sjálftans voru fyrir minni Eyjafjarðar. 19.5.2010 18:10
Hæstiréttur vísar kæru Sigurðar frá Hæstiréttur hefur vísað frá kæru Sigurðar Einarssonar fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings sem kærði alþjóðlega handtökuskipun sem gefin hefur verið út á hendur honum vegna rannsóknar á meintum brotum fyrrverandi stjórnenda Kaupþings. 19.5.2010 13:49
Lithái grunaður um smygl sendur til Færeyja í skýrslutöku Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms þess efnis að senda eigi Litháískan karlmann sem er í gæsluvarðhaldi hér á landi til Færeyja til þess að bera vitni í smyglmáli. Einn dómari Hæstaréttar skilaði sératkvæði og vildi fella úrskurðinn úr gildi. Maðurinn verður líklega sendur til Færeyja með Norrænu í kvöld í ljósi ótryggra flugsamgangna við Færeyjar sökum eldgoss í Eyjafjallajökli. 19.5.2010 12:13
Fyrirtækjum með báðum kynjum í stjórn fækkar Fyrirtækjum með báðum kynjum í stjórn hefur fækkað á milli ára síðan ýmsir hagsmunaaðilar og stjórnmálaflokkar undirrituðu samstarfssamning um aukna hlutdeild kvenna í atvinnurekstri. 19.5.2010 19:09
Tveir Bretar báðust afsökunar á framferði breskra stjórnvalda Tveir bretar eru komnir hingað til lands til að biðja íslendinga afsökunar á framkomu breskra stjórnvalda eftir bankahrunið. Þeir telja að Íslendingar geti breytt bankakerfinu í krafti smæðar og komið í veg fyrir aðra efnahagskreppu. 19.5.2010 19:04
Aldrei fleiri konur í framboði til sveitarstjórnarkosninga Hlutfall kvenna í framboði til sveitarstjórna er hærra en nokkru sinni áður, eða 1.331 kona á móti 1.515 körlum samkvæmt upplýsingum sem finna má á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga. 19.5.2010 17:31
G-listinn gegn fyrningarleiðinni Listi Grindvíkinga leggst alfarið gegn fyrningarleið í sjávarútvegi í núverandi mynd sem ríkisstjórnin leggur til að farin verði í haust samkvæmt tilkynningu frá listanum. 19.5.2010 17:20
Már færði kollega „ash og cash“ Þegar Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Yves Mersch seðlabankastjóri Lúxemborgar undirrituðu samkomulagið í Lúxemborg í gær um kaup á útistandandi skuldabréfum í Avens B.V. kom íslenski seðlabankastjórinn færandi hendi. Már færði Lúxembúrgíska kollega sínum tvær krukkur sem innihalda ösku úr Eyjafjallajökli að gjöf. 19.5.2010 16:48
Varnargarðar styrktir við Þorvaldseyri Vinna er nú hafin við að styrkja varnargarðana við Þorvaldseyri en í morgun kom eðjuflóð vatns og ösku niður Svaðbælisána og fór yfir varnargarða við Þorvaldseyri. Flóðið stóð fram eftir morgni en hafði sjatnað mjög upp úr hádegi. Sjónarvottar sögðu flóðið hafa verið líkast fljótandi steypu. 19.5.2010 15:41
Innanlandsflugið liggur niðri að mestu Nær allt áætlunarflug innanlands liggur nú niðri vegna ösku frá gosinu í Eyjafjallajökli. Reykjavíkurflugvöllur er þó ekki lokaður en askan kemur í veg fyrir að hægt sé að fljúga til annara staða eins og til Egilsstaða, Akureyrar og Ísafjarðar. Flugfélag Íslands hefur seinkað öllum ferðum félagsins og á að athuga með flug eftir klukkan sjö í kvöld. Flugfélagið Ernir er þó enn með á áætlun að fljúga til Hafnar í Hornafirði klukkan fjögur. 19.5.2010 14:48
Fundu 125 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í austurborginni um miðjan dag í gær. Í tilkynningu segir að við húsleit á staðnum hafi fundist um 125 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. 19.5.2010 13:22
Síbrotamaður dæmdur í árs fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag 25 ára gamlan karlmann í árs fangelsi fyrir þjófnað, nytjastuld og umferðarlagabrot. Hann var meðal annars fundurinn sekur um að hafa stolið bíl, fötum, dvd-diskum og orkudrykkjum. Maðurinn var á reynslulausn þegar hann framdi brotin en hann á að baki verulegan sakaferil sem nær allt aftur til ársins 2001. 19.5.2010 13:02
Slökkvistarfi lokið í bryggjuhverfi Slökkvistarfi er nú lokið í bryggjuhverfinu í Grafarvogi en þar kom upp eldur í gámum sem stillt hafði verið upp og byggt skýli yfir yfir. Gámarnir sem brunnu voru úr plasti en skýlið virðist að sögn slökkviliðsins hafa verið notað sem bátaskýli eða til viðgerða á bátum. Engir bátar voru þó í skýlinu þegar eldurinn kom upp. Eldsupptök eru ókunn og fer málið í rannsókn. 19.5.2010 12:50
Akranes braut lög með samningi við son forseta bæjarstjórnar Akraneskaupstaður braut gegn íslenskum lögum og EES-reglum þegar bærinn bauð ekki út kaup á tölvuþjónustu og samdi við fyrirtækið Securstore sem stýrt er af syni forseta bæjarstjórnar. Þetta er niðurstaða kærunefndar útboðsmála. 19.5.2010 12:00