Innlent

Fékk sér í aðra tána og festi hana

MYND/Stefan

Lögreglunni á Selfossi barst í nótt beiðni um aðstoð við stálpaðan ungling,sem hafði fest tá í trépalli umhverfis heitann pott við sumarbústað í Hrunamannahreppi, og gat sig hvergi hreyft.

Vopnaðir járnkalli,kúbeini, sög og borvél héldu lögreglumenn af stað, en jafnaldrar piltsins, sem höfðu fengið sér í aðra tána og voru þarna með honum að fagna próflokum, höfðu náð að losa hann rétt áður en lögregla kom á vettvang.

Táin var hinsvegar eitthvað lemstruð og var pilturinn fluttur á heilsugæslustofnun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×