Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bjartsýnn á framhaldið á Bakka „Þetta var bara ánægjulegur og góður fundur," segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, en hann fundaði með Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra í kvöld um hvort viljayfirlýsing um álver á Bakka, sem rennur út í næstu viku, verði framlengd. 23.9.2009 21:39
Enn bitist á um laxveiðidaga Orkuveitunnar Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur vísaði síðastliðinn föstudag frá tillögu Þorleifs Gunnlaugssonar um að Orkuveitan hætti að bjóða völdum sveitarstjórnarmönnum og embættismönnum til laxveiða í Elliðaánum. Þorleifur hafði áður lagt fram sambærilega tillögu þann 20. ágúst síðastliðinn sem var jafnframt vísað frá. 23.9.2009 20:19
Óskar eftir fundi í iðnaðarnefnd vegna olíumála Gunnar Bragi Sveinsson, fulltrúi framsóknarmanna í iðnaðarnefnd Alþingis óskaði fyrr í kvöld eftir því að iðnaðarnefnd kæmi saman til að fjalla um stöðu olíuleitar við Ísland og ræða mögulegar breytingar á reglum um skatta og gjöld í því samhengi. 23.9.2009 21:06
Óþægilegt ef ritstjóri Morgunblaðsins var rekinn vegna skoðana sinna „Ég veit það ekki. Ég óska Davíð Oddssyni og Morgunblaðinu alls góðs. En ég kem ekkert til með að vera sérstaklega sammála því blaði fremur en ég var þegar það var undir stjórn Ólafs Stephensen," sagði Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra í spjalli við Sölva Tryggvason á Skjá einum í kvöld. 23.9.2009 20:40
Átta ára gömul stúlka slasaðist illa á kynfærum Fólk sem stendur í byggingarframkvæmdum verður að ganga frá byggingarsvæðunum og byggingunum svo ekki hljótist af hroðaleg slys. Þetta sagði Herdís Storgaard hjá Forvarnarhúsi Sjóvá í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. 23.9.2009 19:21
Óvíst hvort bóluefnið dugi Óvíst er hvort þeir 300 þúsund skammtar, af bóluefni gegn svínaflensu, sem hafa verið pantaðir muni duga til að bólusetja alla þjóðina líkt og stefnt var að. Þá er enn á huldu hvenær efnið berst til landsins. 23.9.2009 19:55
Segist ekki vera dómari í málum bankanna Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segist ekki vera dómari í málefnum bankanna. Bloomberg fréttaveitan hefur eftir Ólafi að bankarnir hafi engin lög brotið. Þetta segist Ólafur ekki hafa sagt. Ummæli sín fjalli um að aðrir læri af mistökum bankanna. 23.9.2009 18:35
Umboðsmaður barna vill aðstoð almennings við að gæta að hag barna Umboðsmaður barna hefur verulegar áhyggjur af stöðu barna í ljósi efnahagsástandsins og sér ástæðu til að kalla eftir aðstoð almennings við að standa vörð um hagsmuni þeirra, þarfir og réttindi. 23.9.2009 17:47
Jón Gerald frumsýnir nýtt myndband Jón Gerald Sullenberger hefur sett saman nýtt tíu mínútna langt myndband ásamt félögum sínum. Myndbandið sýnir Barbabrellur Kaupþings og Baugs Group með fyrirtækið Haga á Íslandi að sögn Jóns. 23.9.2009 16:54
Bankasýsla ríkisins tekur til starfa Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hefur skipað í stjórn Bankasýslu ríkisins og hefur hún formlega tekið til starfa. Bankasýslu ríkisins er ætlað að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum. 23.9.2009 16:19
Fimmtíu milljónir sparast við sýnatökur Nýtt útboð Ríkskaupa á blóðsýnatökum fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu mun að öllum líkindum skila 50 milljóna króna sparnaði á ári. Öryggismiðstöðin bauð best í verkið og hlýtur fyrirtækið samninginn í eitt ár en hann má framlengja þrisvar sinnum eitt ár í senn. 23.9.2009 15:47
Ríkisstjórnin hlýtur að þrýsta á um stýrivaxtalækkun „Ég tel að ríkisstjórnin hljóti að beita sér gagnvart Seðlabankanum, þannig að það sé öruggt að vextir lækki,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 23.9.2009 15:23
Einstæð móðir fékk rúmar 35 milljónir Vinningshafinn í Lottóútdrættinum sl. laugardag er búinn að gefa sig fram. Að þessu sinni var það ung kona, reyndar einstæð móðir með tveggja ára gamalt barn sem datt svona hressilega í lukkupottinn en vinningur fyrir allar tölurnar réttar var rúmlega 35,5 milljónir króna. 23.9.2009 15:13
Hollenska utanríkisþjónustan í lið með InDefence Ólafur Elíasson einn af forsvarsmönnum InDefence hópsins segist hafa verið boðaður á fund ásamt tveimur öðrum á ræðisskrifstofu Hollands fyrir skömmu. Þar áttu þeir fund með embættismanni frá sendiráði Hollands í Noregi sem er með málefni Íslands á sinni könnu. Eftir að hafa rætt við manninn virtist hann sannfærður um að hópurinn ætti að tala máli Íslands í Hollandi. Ólafur er nú þegar búin að ræða við hollenska sjónvarpsstöð og nú stendur til að hópurinn fái áheyrn hollenska þingsins. 23.9.2009 14:55
Beitti stjúpsystur sína kynferðisofbeldi í fimm ár Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðisbrot gegn stjúpsystur sinni í fimm ár á árunum 1999 til 2003. Maðurinn er sakaður um að hafa allt að 40 sinnum haft munnmök við stúlkuna og káfað á kynfærum hennar innan og utan klæða auk þess sem hann lét stjúpsystur sína hafa einu sinni við sig munnmök. 23.9.2009 14:54
Mistök þegar Vinnumálastofnun stöðvaði greiðslur atvinnuleysisbóta Starfsmenn Greiðslustofu Vinnumálastofnunar á Skagaströnd gerðu mistök þegar atvinnulaus einstæð móðir lenti í því að greiðslum atvinnuleysisbóta til hennar var frestað vegna þess að hún hafði fengið greidd mæðralaun. Vísir greindi frá málinu á sínum tíma og í framhaldi af því fór Umboðsmaður Alþingis fram á það við Vinnumálastofnun að þetta yrði útskýrt og hversu margir hefðu ekki fengið greitt á réttum tíma af sömu sökum. 23.9.2009 14:47
Ökufantur stöðvaður á ofsahraða í Garðabæ Bifhjólamaður var staðinn að hraðakstri á Reykjanesbraut í Garðabæ í gærkvöld en hjól hans mældist á 177 kílómetra hraða. Ökumaðurinn, karl á fertugsaldri, var færður á lögreglustöð en þar var hann sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. 23.9.2009 14:05
Vilja vita af hverju olíufélögin hættu við olíuleitina „Haft verður samband við þau olíufélög sem hafa sýnt svæðinu áhuga auk þeirra sem afturkallað hafa sérleyfisumsóknir sínar til að fá skýrari mynd af ástæðum þess að þau luku ekki umsóknarferlinu," segir í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu vegna þeirrar ákvörðunar olíufélaganna Sagex Petroleum og Lindir Exploration að draga til baka umsókn um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu. 23.9.2009 13:45
Fundaði með borgarstjóra um minnisvarða um Helga „Hanna Birna tók vel í þetta og var mjög almennileg. Hún sagði að borgin væri mjög opin fyrir þessu,“ segir Alexander Freyr Einarsson, forsvarsmaður hóps sem vill reisa minnisvarða um mótmælandann Helga Hóseasson sem lést 6. september. Alexander fundaði með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarastjóra, um málið í dag. 23.9.2009 13:20
Leigubílaröðin færist í Hafnarstræti Biðskýli fyrir þá sem vilja ná leigubíl eftir miðnætti um helgar í miðborginni hefur verið flutt norður fyrir Lækjartorg og er nánar tiltekið við Hafnarstræti 22. Nú í vikunni verður skýlið merkt með áberandi hætti þannig að enginn þurfi að velkjast i vafa um að hann sé á rétta staðnum. 23.9.2009 13:15
Lögregla hafði afskipti af prófsvindlara Eins og flestir vita eru verkefni lögreglunnar af ýmsum toga og sum er óvenjulegri en önnur. Það átti sannarlega við á dögunum þegar óskað var eftir lögregluaðstoð á ónefndum stað á höfuðborgarsvæðinu. Þar hafði staðið yfir próf í ótilgreindu fagi og einn nemandinn orðið uppvís að svindli. Mun viðkomandi hafa haft svindlmiða meðferðis en það er með öllu óheimilt eins og gefur að skilja. 23.9.2009 12:57
Ráðuneytið bíður enn eftir gögnum frá Menntaskólanum Menntamálaráðuneytið bíður enn gagna frá Menntaskólanum ehf., sem hyggst reka nýjan grunnskóla í Reykjavík, sem varða væntanlegt húsnæði skólans við Barónsstíg. Ráðuneytinu hafa borist öll önnur gögn sem eiga að fylgja umsókn um nýjan skóla, samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu. 23.9.2009 12:17
Segir ákvörðun menntamálaráðherra lögbrot Menntamálaráðherra boðar afnám á rétti grunnskólanema til að stunda fjarnám á framhaldsskólastigi. Fulltrúi í Menntaráði Reykjavíkur segir þetta brjóta í bága við lög. 23.9.2009 12:09
Steingrímur ósammála mati Moody's Næstu mánuðir munu skera úr um hversu lengi það mun taka Íslendinga að vinna sig út úr kreppunni. Þetta er mat Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Hann er ósammála matsfyrirtækinu Moody's sem telur að Ísland verði síðast allra landa upp úr kreppunni. 23.9.2009 12:09
Hraðakstur í skólagötu Brot 54 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í gær að sögn lögreglu. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í austurátt, við Gyðufell. Á einni klukkustund, í hádeginu, fóru 92 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. 23.9.2009 10:48
Veltu þegar þeir forðuðust kindur Kanadískir ferðamenn veltu nýverið bílaleigubíl sínum þegar kindur hlupu inn á veg á Skógarströnd í Dalasýslu. Ferðamennirnir sluppu ómeiddir frá veltunni og héldu för sinni áfram eftir að hafa fengið nýjan bílaleigubíl. Frá þessu er greint á fréttavefnum Skessuhorn.is. Þetta var eitt fjögurra umferðaróhappa sem urðu í umdæmi lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum í liðinni viku. 23.9.2009 10:39
Horfinn heitapottur á Selfossi Ljósbrúnum Hot spring heitapotti var stolið af athafnasvæði við Hrísmýri 4 á Selfossi í nótt. Potturinn er loklaus og kremaður að innan en hann vegur um 400 kg. Eigandi pottsins biður þá sem hafa orðið varir við óvenjulegar mannaferðir á svæðinu í nótt að hafa samband við lögregluna á Selfossi. 23.9.2009 10:32
Fíkniefnamarkaðurinn afar ábatasamur „Fíkniefnamarkaðurinn á Íslandi er mjög ábatasamur. Hér á landi er að finna fólk sem auðgast hefur gríðarlega á innflutningi og sölu fíkniefna. Umsvif erlendra hópa, einkum frá Litháen, hafa einnig verið áberandi,“ sagði Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri í ræðu sem hann flutti á málþingi Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, í gær. 23.9.2009 09:50
Regína Sif komin fram Regína Sif Marinósdóttir, 17 ára gömul stúlka sem strauk af meðferðarheimilinu Árbót í Aðaldal í gær og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir, er komin fram. 23.9.2009 09:41
Lágvöruverðsverslanir hafa hækkað verðið mest Lágvöruverðsverslanirnar Bónus, Krónan, Nettó og Kaskó hafa hækkað vöruverð sitt mest undanfarið ár. Vörukarfa verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands hefur hækkað um 22-24% í verslununum. Karfan í klukkuverslnum hækkaði um 15-23% frá því í september í fyrra. Hjá þjónustuverslununum hefur vörukarfan hækkað um 9–16% á tímabilinu. 23.9.2009 09:32
Skipulagðri glæpastarfsemi vex fiskur um hrygg Grundvallarbreyting hefur orðið á skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi á undanförnum árum. Hún er víðtækari og betur skipulögð auk þess sem nýir aðilar láta til sín taka á þessum vettvangi, sagði Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri á málþingi, sem Orator, félag laganema við Háskóla Íslands, hélt í gær. 23.9.2009 07:30
Vilja aukinn þorskkvóta Stjórnir Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og Félags skipstjórnarmanna skora á sjávarútvegsráðherra að auka verulega við útgefinn þorskkvóta. 23.9.2009 07:28
Víða pottur brotinn við eftirlit varðskips Fjórtán skipstjórar voru kærðir og sitt hvað var athugavert í nálega helmingi þeirra 87 skipa og báta, sem sjóliðar af varðskipinu Ægi fóru um borð í, við eftirlit á hafi úti, í sumar. 23.9.2009 07:23
Lögreglan lýsir eftir Regínu Sif Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Regínu Sif Marinósdóttur, 17 ára, sem strauk af meðferðarheimilinu Árbót í Aðaldal í gær og fór með flugi suður til Reykjavíkur. Þeir sem eitthvað vita nánar um ferðir hennar eru beðnir að láta lögregluna vita. 23.9.2009 07:20
Stálu ljóskösturum af jeppa Tveir ungir menn voru handteknir í Reykjavík í nótt, grunaðir um að hafa stolið ljóskösturum af jeppa við Naustabryggju. 23.9.2009 07:11
Herskáir hugvísindamenn Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir það að reka skóla eftir lögmáli framboðs og eftirspurnar geta komið niður á hugvísindum. Þetta kom fram á málfundi Sagnfræðingafélags Íslands í gær um hugvísindi á krepputímum. 23.9.2009 06:45
Sjálfsblekking að vonast til að halda þjónustu óskertri „Ég held að það geti enginn stundað þá sjálfsblekkingu að niðurskurður af þeirri stærðargráðu sem við verðum vitni að núna ár eftir ár bitni ekki á störfum og þjónustu. Það hlýtur hann að gera, því miður, og fráleitt að halda annað,“ segir Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra. 23.9.2009 06:30
Veiðistjórnun skilar tilætluðum árangri „Uppsveiflan byrjaði í fyrra og heldur áfram núna. Þetta er góð ávöxtun síðustu tvö árin og ánægjuleg,“ segir Ólafur K. Nielsen, vistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Rjúpnastofninn sýnir mikil batamerki og vöxtur stofnsins takmarkast ekki lengur við einstaka landshluta. 23.9.2009 06:00
Eigendur smábáta segjast hraktir burt Eigendur smábáta í Reykjavík óttast að nýtt skipulag fyrir Reykjavíkurhöfn geri ekki ráð fyrir starfsemi þeirra. Þeir segjast hafa verið beittir þrýstingi um að færa alla starfsemi sína úr Grófinni yfir á Granda. Aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur, sem haldinn var á mánudag, lýsti yfir megnri óánægju með áhugaleysi borgaryfirvalda um sterka smábátaútgerð í borginni. 23.9.2009 05:00
Raggi Bjarna bauð í kaffi og kökur Nokkur fjöldi mætti í anddyri nýju Laugardalshallarinnar í gær þegar Ragnar Bjarnason söngvari hélt upp á 75 ára afmæli sitt í gær með því að bjóða landsmönnum upp á afmælistertu og kaffi. 23.9.2009 04:00
Yfir 50 reglubrjótar ganga nú lausir Ríflega fimmtíu manns sem hafa brotið af sér í samfélagsþjónustu bíða þess nú að komast aftur í afplánun. Þetta er meðal þess sem fram kom á fundi fangelsismálayfirvalda með allsherjarnefnd í gær. 23.9.2009 04:00
Átelur stjórnvöld fyrir sambandsleysi Alcoa er eina fyrirtækið sem lýst hefur áhuga á að fjárfesta í orkufrekum iðnaði í Norðurþingi. 23.9.2009 04:00
„Allsherjar óánægja með allt“ Arnar Þór Jónsson, lögmaður 27 erlendra kröfuhafa í Glitni, gerði á fundi skilanefndar með kröfuhöfum í gær alvarlegar athugasemdir við ferli málsins allt frá því bankinn hrundi fyrir tæpu ári. 23.9.2009 03:15
Utanríkisráðherra fundaði með framkvæmdastjóra AGS Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag formlegan fund með Dominique Strauss-Kahn aðalframkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu fór fundurinn fram í New York. 22.9.2009 23:30
Fleiri börn þurfa vistun á meðferðarheimilum Umsóknum um vistun á meðferðarheimilum Barnaverndastofu hefur fjölgað umtalsvert á fyrstu sex mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Umsóknir voru 78 á fyrstu sex mánuðum ársins en í fyrra voru þær 68 á sama tímabili. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um tilkynningar til barnaverndanefnda sem Barnaverndastofa opinberaði í dag. 22.9.2009 20:33