Þúsunda mótmæli í Berlín: Íslendingur í hústöku Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 17. júní 2009 13:39 Þúsunda mótmæli áttu sér stað í Berlín í dag.
Listfræðingurinn Símon Birgisson tók fyrr í dag þátt í hústöku stúdenta í Humboldt háskólanum í Berlín. Þúsundir námsmanna um gjörvallt Þýskaland skrópuðu í skólann í dag til að mótmæla meðal annars hækkun skólagjalda og hinu svokallaða BA og Masters kerfi. „Þetta voru stór mótmæli og komu mér svolítið á óvart. Það eru semsagt háskólanemar að mótmæla hækkun skólagjalda. Skólagjöld hafa hækkað en aðstaðan aftur á móti aldrei verið verri," segir Símon Birgisson, leiklistarfræðingur sem búsettur er í Berlín. Honum varð hvelft við þegar þúsundir mótmælenda þustu út á stræti Berlínar með miklum látum. Þar voru á ferð stúdentar sem mótmæla hækkun skólagjalda og BA/Masters kerfinu svokallaða sem þeir segja að miði að því að flokka nemendur og senda þá í gegnum háskóla á eins stuttum tíma og mögulegt er. „Þeir vilja frekar svokallað diplomakerfi sem að gefur þér færi á að vera miklu lengur í háskóla." Nemendur fóru sem fyrr segir í verkfall og mættu því ekki til kennslustunda í morgun. Í Humboldt háskólanum voru þó nokkrir nemendur sem höfðu ákveðið að mæta í skólann í dag. Mótmælendur brugðu því á það ráð að fara inn í skólann og sækja þá nemendur og Símon fór með. „Já ég ákvað að taka þátt í þessari hústöku með þeim," segir hann kíminn en ekki kom til átaka innan veggja skólans. Símon segir að lögregla hafi verið með töluverðan viðbúnað en þó hafi ekki komið til átaka milli hennar og mótmælenda. Hann segir íslenska námsmenn mega taka sér þá þýsku til fyrirmyndar. „Það er búið að lækka námslánin og íslenskir námsmenn ættu heldur betur að geta mótmælt því. Það er kominn tími á að nemendur fari í verkfall í staðinn fyrir kennara," segir Símon. Hann segist einna ánægðastur með að hafa þó fengið göngu í staðinn fyrir hátíðargönguna sem hann missti af á heimaslóðum.
Mest lesið Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Erlent Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Innlent Fleiri fréttir Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Sjá meira