Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Barðastrandaárás: Ræningjar í vikulangt gæsluvarðhald Piltarnir sem brutust inn i einbýlishús við Barðaströnd á Seltjarnarnesi á mánudaginn og réðust á húsráðanda sem þar býr, voru nú síðdegis úrskurðaðir í gæsluvarðahald til 3. júní. 27.5.2009 18:18
Klæðning fékk 130 milljónir frá Kópavogsbæ Verktakafyrirtækið Klæðning, sem var í eigu Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra Kópavogs til ársins 2003, fékk tæpar hundrað og þrjátíu milljónir króna greiddar frá bænum fyrir ýmis verkefni á fjögurra ára tímabili 27.5.2009 18:08
Framsókn leggur til þingsályktun um 20% afskriftir Framsóknarflokkurinn mun leggja fram tillögu á Alþingi um að fjármálaráðherra verði falið að framkvæma nauðsynlegar afskriftir á lánum til íslenskra heimila og rekstrarfyrirtækja um 20% af höfuðstól láns. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að afskriftunum vera lokið eigi síðar en 1. ágúst 2009. 27.5.2009 16:46
Dæmdar 21 milljón króna í bætur vegna bílslyss Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Tryggingamiðstöðina, Hópbíla hf og Lýsingu til að greiða karlmanni 20 milljóna króna bætur með vöxtum vegna umferðarslyss sem hann varð fyrir árið árið 2002. 27.5.2009 15:34
Boðið upp á gullkryddað risotto í forrétt Þegar veislan stóð sem hæst í útrásinni árið 2007 kepptust bankarnir við að gera vel við stærstu viðskiptavini sína. Í einni boðsferð Landsbankans var um 300 manna hópi meðal annars boðið upp á Risotto sem kryddað var með gulli. 27.5.2009 18:45
Pensím gæti nýst í baráttunni gegn svínaflensu Niðurstöðu er að vænta á næstunni á því hversu vel íslenska efnið pensím virkar gegn flensuveirum, en vonast er til að það geti jafnvel hjálpað í baráttunni gegn svínaflensu. Sænskt lyfjafyrirtæki ætlar á næsta ári að setja á markað sótthreinsivörur úr efninu sem eiga meðal annars að gagnast þeim sem eru með flensu. 27.5.2009 18:45
Stjórnarandstöðuflokkarnir sameinast um ESB tillögu Þreyfingar eiga sér stað milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks um að flokkarnir leggi fram sameiginlega tillögu í Evrópumálum og þá jafnvel strax á morgun. 27.5.2009 18:00
Vðbrögð fjarskiptamiðstöðvar vegna Barðastrandaránsins skoðuð Farið hefur verið yfir viðbrögð fjarskipamiðstöðvar ríkislögreglustjóra vegna útkalls að Barðaströnd á Seltjarnarnesi síðastliðið mánudagskvöld. Útkallið barst vegna innbrots og árásar á úrsmið sem þar býr. 27.5.2009 17:10
Lífeyrissjóðirnir rúnir trausti Um 77% aðspurðra segjast bera mikið traust til Háskóla Íslands og Lögreglunnar. Sjö af hverjum tíu segjast bera mikið traust til Fréttastofu RÚV og Háskólinn í Reykjavík nýtur trausts 65% svarenda. Mikið skilur á milli ofangreindra fjögurra stofnana og annarra sem spurt var um í traustskönnun MMR dagana 7.-14. maí. 27.5.2009 15:18
Sameiginlegur þingflokksfundur stjórnaflokkanna í Þjóðminjasafninu Þingflokkar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hittast á sameiginlegum þingflokksfundi í Þjóðminjasafninu klukkan sex síðdegis. Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu en fundarefnið er kynning á stöðu ríkisfjármálanna. 27.5.2009 15:14
Hestaeigandi sakar yfirvöld um einelti „Í desember fargaði ég fimm hrossum. Vegna frosta náði ég ekki að grafa þau alveg niður," segir Sæmundur Tryggvi Halldórsson á Miklagarði í Borgarbyggð en Héraðsdýræknir og búfjáreftirlitsmaður Búnaðarsamtaka Vesturlands hafa gert alvarlega athugasemdir við aðbúnað hrossa í hans eigu. 27.5.2009 14:30
Lögreglan leitar að leigubílstjórum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að tveimur leigubílstjórum sem hún þarf að hafa tal af vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu. Í tilkynningu segir að annar þeirra hafi verið að störfum í miðborginni á uppstigningardag en í bíl hans klukkan tuttugu mínútur í sex um morguninn kom par og ók hann því til Hafnarfjarðar. „Um er að ræða karl af erlendum uppruna, dökkan á hörund og með derhúfu, og íslenska konu með ljóst hár.“ 27.5.2009 14:16
Kaupfélag Skagfirðinga býðst til að leggja út fyrir nýjum skóla Kaupfélag Skagfirðinga hefur boðist til að lána sveitarfélaginu Skagafirði allt að 600 milljónir króna vaxtalaust til tveggja ára til þess að byggja viðbyggingu við Árskóla. Lánið er hugsað til að greiða fyrir byggingu skólans þar til ástand skánar á fjármálamörkuðum. 27.5.2009 13:40
Dauð hross í skurði og folald troðið niður við heyrúllu Héraðsdýralæknir og búfjáreftirlitsmaður Búnaðarsamtaka Vesturlands hafa gert alvarlegar athugasemdir við aðbúnað hrossa á tveimur bæjum í á Mýrum í Borgarnesi. 27.5.2009 12:39
Lögreglumenn fundu 7 kíló af kannabisefnum Það voru alls sjö kíló af kannabisefnum sem lögreglan fann í íbúð í Engihjallanum í gærkvöld. Um var að ræða 4 kílógrömm af marijúana og 3 kílógrömm af hassi. Fréttastofa sagði frá málinu fyrr í morgun, en þá hafði magnið ekki fengist staðfest. 27.5.2009 12:15
Banaslys á Grindavíkurvegi Karlmaður á fimmtugsaldri lést í bílslysi á Grindavíkurvegi á sjöunda tímanum í morgun. Talið er að hann hafi látist samstundis. 27.5.2009 12:00
Hvatt til mótmæla á fundi Leikskólaráðs Leikskólaráð Reykjavíkurborgar tekur ákvörðun um það eftir hádegi hvort leikskólagjöld verða hækkuð hjá þeim börnum sem eru lengur en átta tíma á dag í skólanum. Tveggja barna móðir hvetur foreldra til að mæta og mótmæla við upphaf fundarins. 27.5.2009 11:53
Danski sjóliðinn fékk skilorðsbundinn dóm Danski sjóliðinn sem braust inn í Kaupþing á Austurstræti fyrir tveimur kvöldum síðan var dæmdur í 60 daga skilorðsbundð fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 27.5.2009 11:27
Meintur smyglari í mál við blaðamenn Aðalmeðferð fer fram í dag í meiðyrðamáli Rúnars Þór Róbertssonar gegn blaðamanninum Erlu Hlynsdóttur og fyrrum ritstjóra DV, Sigurjóni M. Egilssyni. Rúnar höfðaði málið á þeim forsendum að blaðið hefði kallað hann fíkniefnasmyglara árið 2008. Sjálfur sat Rúnar í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að smyglinu árið 2007. Um var að ræða stófelldan innflutning á kókaíni. Fjögur kíló af efninu voru falin í Benz bifreið sem var á Sundahöfn. 27.5.2009 10:53
Brennuvargur stefndi fólki í hættu Nítján ára gamall piltur hefur verið ákærður fyrir að kveikja í fjölbýlishúsi að Jörvagrund 23 í Mosfellsbæ í hættu í október 2006. 27.5.2009 10:44
Kannabis í kílóavís í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt kannabisræktun í Kópavogi. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar, staðfesti þetta í samtali við Vísi. Hann sagði ekki liggja fyrir um hve mikið magn sé að ræða en heimildir fréttastofu herma að um nokkur kíló af maríújana hafi verið að ræða. 27.5.2009 10:37
Dalai Lama heimsækir Háskóla Íslands Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta sem væntanlegur er hingað til lands í næstu viku mun heimsækja Háskóla Íslands þriðjudaginn 2. júní. Hann mun mæta í boði rektors og Hugvísindasviðs og eiga samverustund með stúdentum og starfsfólki skólans. 27.5.2009 09:41
Hátt í 1700 hjónavígslur í fyrra Alls gengu 1.642 pör í hjónaband á Íslandi árið 2008, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Auk þess staðfestu 18 pör samvist, tólf pör karla og sex kvenna. 27.5.2009 09:14
Alvarlegt slys á Grindavíkurvegi Alvarlegt umferðarslys varð á Grindavíkurvegi laust fyrir klukkan sjö í morgun þegar tveir bílar lentu þar í árekstri. Ekki liggur fyrir hversu margir hafa verið fluttir á sjúkrahús eða hver tildrög slyssins voru en Grindavíkurvegur er lokaður og gæti orðið það í eina til tvær klukkustundir í viðbót, að sögn lögreglu. 27.5.2009 08:09
Harma niðurfellingu gjaldfrjálsra strætóferða Stúdentaráð Háskóla Íslands harmar áform Strætó um niðurfellingu gjaldfrjálsra strætóferða fyrir námsmenn. 27.5.2009 07:13
Fangageymslur fullar eftir nóttina Lögreglan handtók í nótt tvo menn sem voru að brjótast inn í bíla í Grafarvogi og í Rofabæ í Reykjavík. Þeir voru báðir staðnir að verki og gista nú fangageymslur. 27.5.2009 07:04
Margar slysagildrur í íbúðahverfum Víða leynast umferðargildrur í íbúðahverfum segja lögregla og Umferðarstofa. Tvö alvarleg slys urðu í síðustu viku þar sem drengur á hlaupahjóli og annar á hlaupum urðu fyrir bílum. Öðrum þeirra er haldið sofandi í öndunarvél. 27.5.2009 06:00
Átta nauðganir verið kærðar í mánuðinum Átta nauðganir hafa verið kærðar til lögreglu í maí og hafa þær aldrei verið fleiri í einum mánuði. Yfirleitt er aðeins tæpur helmingur nauðgana kærður. Afbrotafræðingur segir áhættuþætti aukast í því samfélagsástandi sem hér er. 27.5.2009 06:00
Gáfu 26 gervi-limi á Gasa Hópurinn sem hefur verið á Gasasvæði Palestínu síðustu daga snýr heim í kvöld. Á þremur dögum tókst þremur stoðtækjasmiðum á vegum Neyðarsöfnunar Íslands-Palestínu og OK Prosthetics að smíða alls 26 gervilimi á 24 fórnarlömb stríðsins í Palestínu. 27.5.2009 05:30
Skattahækkanir kynntar innan viku Fyrstu skattahækkanirnar til að loka tuttugu milljarða gati þessa árs verða kynntar um eða eftir næstu helgi. Skömmu síðar verða kynntar frekari skattahækkanir og niðurskurður hjá ríkinu. Tekjuskatti ekki breytt fyrr en um áramót. 27.5.2009 05:30
Leikskólagjöld munu hækka Greiðslur fyrir leikskólavist umfram átta klukkustundir á dag munu hækka um allt að 63 prósent frá 1. ágúst næstkomandi. Dvalartími barna á leikskólum borgarinnar hefur lengst í kreppunni, þvert á spár. 27.5.2009 05:15
Gott svo langt sem það nær „Mér finnst eðlilegt að þeir endurskoði sína fiskveiðistefnu,“ segir Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra um samþykkt kollega hans hjá aðildarríkjum Evrópusambandsins í Brussel í fyrrakvöld. 27.5.2009 05:15
Fáir Íslendingar kaupa veiðileyfi „Útlendingar eru að plástra nokkurn veginn yfir götin sem bankar og fyrirtæki skildu eftir sig,“ segir Haraldur Eiríksson, sölu- og markaðsstjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur. 27.5.2009 05:00
Sjálfstæðið er þeirra styrkur „Halda verður í sjálfstæði þessara skóla, því það er þeirra styrkur,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks. 27.5.2009 05:00
Krónubréf nánast horfin „Mest af krónubréfunum er í raun og veru horfið, því bréfin sjálf voru komin á gjalddaga og þá voru þau bara greidd upp,“ sagði Gylfi Magnússon á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í gær. „Krónubréfin sjálf eru því ekki svo mikið áhyggjuefni.“ Gylfi benti á að eitthvað af krónubréfum sé enn útistandandi, en það séu mun lægri upphæðir en þegar mest var. 27.5.2009 05:00
Fimm milljarða lán lífeyrissjóða „Borgin hefur átt í þessum viðræðum og ég á von á því að við fáum niðurstöðu í málið í þessari viku,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, um fimm milljarða króna lántöku borgarinnar hjá lífeyrissjóðum. 27.5.2009 04:45
Ákvörðun um húsið í sumar Pétur J. Eiríksson, nýr stjórnarformaður Portusar, segir að ákvörðunar sé að vænta í sumar um hvaða starfsemi verður til húsa í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu við höfnina. Hann reiknar með að Íslenska óperan verði í húsinu. 27.5.2009 04:45
400 steypubíla þarf í verkið Framkvæmdir Steypuvinna við bílastæðahúsið sem rísa á við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Austurhöfn hefst í dag. Í fyrsta áfanga verður botnplata hússins steypt en í hana fara 3.400 rúmmetrar af steypu. Um 400 steypubíla þarf til að flytja byggingarefnið. 27.5.2009 04:45
Hjól fyrir borgarbúa í sumar l Dofri Hermannsson, fulltrúi Samfylkingarinnar í umhverfis- og samgönguráði, lagði til, á fundi ráðsins í gær, að ungt fólk yrði ráðið til þess að gera við hjól sem borgarbúum stæðu svo til boða í sumar. Tillagan verður afgreidd á næsta fundi ráðsins. 27.5.2009 04:45
Búið að sprengja tvo þriðju hluta Búið er að sprengja 3.378 metra í Bolungarvíkurgöngum, eða um 65,5 prósent af heildarlengdinni. Greint er frá þessu í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar. Frá Hnífsdal hafa verið sprengdir 1.652 metrar en 1.726 metrar frá Bolungarvík. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, gengur verkið samkvæmt áætlun og eru áætluð verklok 15. júlí 2010. 27.5.2009 04:15
Endurreisn banka rædd í dag Formaður viðskiptanefndar ákvað í gær að taka endurreisn bankanna til umræðu á fundi nefndarinnar í dag, eftir að þingmenn stjórnarandstöðu gagnrýndu að hafa ekki fengið tækifæri til þess að tjá sig um það í nefndinni. 27.5.2009 04:15
Hvalkjötið til fyrir helgi Jóhanna ÁR 206 hélt út á sjó í gær og markar það upphaf hrefnuveiðitímabilsins. „Ég er að vonast til að þeir landi í kvöld og þá verður þetta komið í Krónuna á föstudag og tilbúið á grillið um hvítasunnuna,“ segir Gunnar Bergmann Jónsson, formaður Félags hrefnuveiðimanna. 27.5.2009 04:15
Mótmælir ekki sparnaði þings Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segist ekki gagnrýna þá ákvörðun forsætisnefndar að leggja niður tímabundið aðstoðarmannakerfið svokallaða, þar sem landsbyggðarþingmenn höfðu aðstoðarmann í hlutastarfi. 27.5.2009 04:15
Börðu og bundu húsráðanda Innbrotsþjófar börðu úrsmið á áttræðisaldri í andlitið og skildu hann eftir bundinn eftir að þeir rændu heimili hans á Seltjarnarnesi á mánudagskvöld. 27.5.2009 04:15
Snjókoma og þrumuveður Mikla snjókomu gerði á Hellisheiði um miðjan dag í gær með tilheyrandi hálku. Nokkrir bílstjórar lentu í vandræðum í hálkunni. 27.5.2009 04:00