Innlent

Dalai Lama heimsækir Háskóla Íslands

Dalai Lama.
Dalai Lama.

Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta sem væntanlegur er hingað til lands í næstu viku mun heimsækja Háskóla Íslands þriðjudaginn 2. júní. Hann mun mæta í boði rektors og Hugvísindasviðs og eiga samverustund með stúdentum og starfsfólki skólans.

Í tilkynningu frá Háskólanum segir að samkoman fari fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu og hefst hún klukkan 10.30 stundvíslega og lýkur klukkan 12.00. „Dagskráin verður á þá leið að Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, mun opna samkomuna, síðan mun Dalai Lama halda framsögu og að því búnu eiga samræðu við þrjá kennara Háskólans, þau Pétur Pétursson, prófessor í guðfræði, Pál Skúlason, prófessor í heimspeki og fyrrv. háskólarektor og Sigríði Þorgeirsdóttur, dósent í heimspeki. Samkomunni stýrir Ástráður Eysteinsson, prófessor í almennri bókmenntafræði og forseti Hugvísindasviðs," segir einnig.

Starfsfólk og stúdentar Háskólans eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×