Innlent

Kaupfélag Skagfirðinga býðst til að leggja út fyrir nýjum skóla

Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri.
Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri.

Kaupfélag Skagfirðinga hefur boðist til að lána sveitarfélaginu Skagafirði allt að 600 milljónir króna vaxtalaust til tveggja ára til þess að byggja viðbyggingu við Árskóla. Lánið er hugsað til að greiða fyrir byggingu skólans þar til ástand skánar á fjármálamörkuðum.

Á fréttamiðlinum Feyki er rætt við skólastjóra Árskóla, Óskar Björnsson: „Ég segir auðvitað bara já takk við nýjum skóla." Óskar segir að viðbyggingin hafi verið baráttumál til margra áratuga en í dag er kennt á tveimur stöðum í bænum auk þess sem sumarhús eru nýtt sem kennslustofur að því er fram kemur á Feyki.

Þar segir einnig að fulltrúar Kaupfélagsins hafi kynnt málið á fundi í Árskóla í gær en ekkert formlegt erindi hefur borist til sveitarfélagsins vegna málsins.

Hér má sjá fréttina á Feyki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×