Innlent

Búið að sprengja tvo þriðju hluta

 Búið er að sprengja 3.378 metra í Bolungarvíkurgöngum, eða um 65,5 prósent af heildarlengdinni. Greint er frá þessu í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar. Frá Hnífsdal hafa verið sprengdir 1.652 metrar en 1.726 metrar frá Bolungarvík. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, gengur verkið samkvæmt áætlun og eru áætluð verklok 15. júlí 2010.

Tafir hafa aftur á móti orðið á Héðinsfjarðargöngum, en verklok þar eru áætluð á næsta ári. - bs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×