Leikskólagjöld munu hækka 27. maí 2009 05:15 Um 2.300 börn eru lengur en átta stundir á dag á leikskólum borgarinnar. Um þriðjungur þeirra eru börn einstæðra foreldra, námsmanna eða öryrkja.Fréttablaðið/GVA
Leikskólaráð Reykjavíkurborgar mun í dag taka fyrir tillögu borgarstjórnarmeirihlutans um að hækka verulega gjöld fyrir leikskóladvöl umfram átta klukkustundir á dag. Stefnt er að því að gjaldskráin breytist frá 1. ágúst næstkomandi. „Við skoðuðum margar leiðir, og fannst þetta vera sanngjarnast og minnst íþyngjandi fyrir foreldra,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs Reykjavíkurborgar. Borgin verði að gera kröfu um hagræðingu á flestum sviðum vegna efnahagsástandsins, og þar séu leikskólar og grunnskólar ekki undanþegnir, þó þeir séu hvað mest varðir. „Byrðarnar eru alveg nægar á barnafjölskyldum í dag, þetta er fólkið sem hefur verið að koma þaki yfir höfuðið, taka húsnæðislán og kaupa bíla á bílalánum,“ segir Oddný Sturludóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í leikskólaráði Reykjavíkurborgar. Hún segir fulltrúa flokksins óttast að þetta bitni á þeim sem síst skyldi, einstæðum foreldrum og öðrum sem þurfi að vinna langan vinnudag til að ná endum saman. Því muni fulltrúar flokksins greiða atkvæði gegn tillögu meirihlutans á fundi leikskólaráðs í dag. Leikskólagjöld munu ekki hækka hjá þeim sem kaupa átta tíma vistun á dag eða minna fyrir börn sín, þar sem það er skilgreint sem grunnþjónusta sveitarfélagsins, segir Þorbjörg Helga. Hún bendir á að margir foreldrar borgi fyrir mun lengri dvalartíma en börnin nýti í raun. Oddný segir þetta hæpinn rökstuðning fyrir hækkun á álögum á barnafjölskyldur í borginni. Venjulegur vinnudagur sé átta klukkustundir, og sé reiknað með fimmtán mínútum til og frá leikskóla þurfi foreldrar að borga fyrir átta og hálfa klukkustund á leikskólanum. Þetta eigi sérstaklega við um fólk sem búi í úthverfum á borð við Grafarvog og Grafarholt, en vinni annars staðar í borginni. Í dag borga foreldrar á bilinu fimm til þrettán prósent kostnaðar við leikskólavist barna sinna. Nái breytingin fram að ganga munu foreldrar greiða helming kostnaðarins fyrir fyrstu hálfu klukkustundina umfram átta stundir, og allan kostnað við leikskólavist umfram átta og hálfa klukkustund. Um 2.300 börn eru lengur en átta stundir á dag á leikskólum borgarinnar. Gróft áætlað eru um þriðjungur þeirra börn einstæðra foreldra, námsmanna eða öryrkja. Tæplega 200 börn eru í níu og hálfa stund á dag á leikskólanum. Oddný bendir á að dvalartími barna á leikskólum borgarinnar hafi lengst eftir að kreppan skall á, þvert á það sem spár hafi gert ráð fyrir. Nú séu 39,5 prósent barna lengur en átta stundir á dag á leikskólanum, en hlutfallið hafi verið um 37 prósent í september 2008.brjann@frettabladid.is
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira