Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kostnaður við skilanefndirnar 260 milljónir Skilanefndir gömlu bankanna innheimtu ríflega 260 milljónir króna fyrir vinnu sína frá október og fram í febrúar. Þetta kemur fram í tölum sem Fjármálaeftirlitið tók saman fyrir fréttastofu Ríkisútvarpsins og voru birtar í í kvöld. 26.5.2009 20:02
Greiðslubyrði fólks lykilatriði - útilokar ekki niðurfellingu skulda Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir eignafjárstöðu fólks ekki vera lykilatriði heldur greiðslubyrði þeirra. Hana verði fyrst og fremst að horfa á þegar kemur að vanda heimilanna. Steingrímur taldi ekki ólíklegt að fólk koma saman í ríkara mæli á Austurvelli og mótmæla ástandinu. 26.5.2009 19:34
Gat veifað flugmönnum þotunnar Svifvængsflugmaður sem nærri varð fyrir farþegaþotu yfir Bláfjöllum lýsti atvikinu svo að hann hefði getað veifað flugmönnum þotunnar. Rannsóknarnefnd flugslysa fer nú yfir ratsjárgögn vegna málsins. 26.5.2009 19:30
Tvær árgerðir bíla koma ekki á göturnar Markaðsstjóri Ingvars Helgasonar og B&L segir að bílar af árgerðinni 2009 og 2010 komi líklega ekki á göturnar á Íslandi. Umboðin eru nú með lagersölu á nýjum bílum. 26.5.2009 19:03
Segir frjálsar strandveiðar fækka störfum Hundrað og fimmtíu manns í beitingavinnu missa vinnuna á utanverðu Snæfellsnesi með frjálsum strandveiðum. Þetta fullyrðir skipstjóri smábáts á línuveiðum að muni gerast ef allir færa sig yfir í handfæraveiðar. 26.5.2009 18:53
Endurskoðandi Kópavogs rannsakar ekki mál Gunnars bæjarstjóra Ákveðið var á bæjarstjórnarfundi Kópavogs í dag að endurskoðandi bæjarins fari ekki með rannsókn á um 50 milljóna króna greiðslum til fyrirtækis í eigu dóttur Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra. Endurskoðendafyrirtækið Deloitte mun því rannsaka málið. 26.5.2009 18:46
Steingrímur: Sjávarútvegsstefna ESB í klessu Sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins er í klessu, segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna og furðar sig ekki á að sjávarútvegsráðherrar ESB ríkja hafi ákveðið í gær að draga úr miðstýringu fiskveiða innan sambandsins. Það breyti hins vegar í engu afstöðu hans til aðildar Íslands að ESB. 26.5.2009 18:39
Svindla á kerfinu 20 verkamenn, sem eru á atvinnuleysisbótum en voru að vinna, voru gómaðir af Vinnumálastofnun samkvæmt heimildum fréttastofu. Félagsmálaráðherra ætlast til þess að Vinnumálastofnun tryggi það að þeir sem þiggja atvinnuleysisbætur séu raunverulega atvinnulausir. 26.5.2009 18:35
Stúdentar vilja áfram frítt í strætó Stúdentaráð Háskóla Íslands harmar áform Strætó bs. um niðurfellingu gjaldfrjálsra strætóferða fyrir námsmenn næsta skólaár. Ráðið tekur undir með Jórunni Frímannsdóttur, stjórnarformanni Strætó, og kallar eftir því að ríkið styðji við rekstur félagsins, til að mynda með niðurfellingu opinberra gjalda. 26.5.2009 17:12
Bílvelta í Ártúnsbrekkunni Bílvelta varð í Ártúnsbrekkunni laust fyrir klukkan fimm í dag. Ökumaður var einn í bílnum. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum var ökumaðurinn kominn út úr bílnum þegar að þeir komu á staðinn en sjúkrabifreið flutti hann á slysadeild til skoðunar. Maðurinn var á leið í austurátt þegar slysið varð og var hann að keyra aðein upp á brúna. 26.5.2009 17:10
Barðastrandaránið: Bæjarstjóra mjög brugðið „Mér er náttúrlega bara mjög brugðið við þessar fregnir. Þetta er bara skelfilegur atburður. Og það vill svo til að ég þekki þann sem að fyrir þessu varð mjg vel þannig að ég sendi honum auðvitað mínar bestu kveðjurm," segir Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. 26.5.2009 16:52
Vann dómsmál vegna læknamistaka Eyjamaður á sjötugsaldrinum vann skaðabótamál gegn ríkinu vegna ófaglegrar meðferðar eftir að hann fór úr axlalið. 26.5.2009 16:29
Vill vita um skilyrði fyrir áframhaldandi starfi Josefsson Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknaflokksins, hyggst leggja skriflega fyrirspurn fyrir viðskiptaráðherra um það hvaða skilyrði Mats Josefsson setti fyrir áframhaldandi starfi sínu í samræmingarnefnd um endurreisn bankakerfisins. Eins og greint var frá í fjölmiðlum í gær hótaði Josefsson að hætta sem formaður 26.5.2009 16:23
Umferðarljós aftengd Umferðarljós á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar verða aftengd tímabundið í kvöld kl. 19:00 og verða óvirk í nótt og fram eftir degi á morgun, miðvikudag. Á sama tíma verða vinstri beygjur af Flugvallarvegi inn á Bústaðaveg bannaðar. Umferðarhraði er tímabundið lækkaður í 30 km og er brýnt fyrir vegfarendum að virða hraðatakmarkanir. 26.5.2009 15:49
Reykingamaður kveikti í hurð Lögreglan og slökkviliðið í Vestmannaeyjum var kallað að heimili við Brimhólabraut um helgina vegna elds sem hafði kviknað við hurð hússins. 26.5.2009 15:36
Eldur í gámi við Hamraborg Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Hamraborg í Kópavogi rétt eftir hádegið í dag. Þar logaði eldur í gámi. Samkvæmt upplýsingum frá fréttastofu var þó um lítinn eld að ræða og var hann fljótlega slökktur. 26.5.2009 15:16
Barðastrandaránið: „Ég er bara heppinn að lifa þetta af“ „Mér heilsast bara vel," segir úrsmiðurinn á Seltjarnarnesinu sem lenti í óhugnanlegri árás þegar tveir menn um tvítug brutust inn á úraverkstæði mannsins á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. Þegar þeir urðu hans varir yfirbuguðu þeir manninn, svo límdu þeir á honum hendur og fætur. Að lokum fóru þeir ránshendi um úraverkstæðið sem er á heimili hans. 26.5.2009 14:47
Rannsókn lögreglu á Heiðmerkurárás lokið Rannsókn lögreglunnnar á fólskulegri árás á unga stúlku í Heiðmörk er lokið og tekin verður ákvörðun um framhald málsins innan skamms, segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. 26.5.2009 14:32
Gekk í flasið á þjófunum - var bundinn, laminn og rændur Úrasmiður á áttræðisaldri gekk í flasið á tveimur þjófum um klukkan átta í gærkvöldi. Mennirnir voru inn á úraverkstæði mannsins þegar hann kom inn. Þegar þeir urðu hans varir yfirbuguðu þeir manninn. Þeir límdu og bundu á honum hendur og fætur. 26.5.2009 13:51
Alþingi niðurlægt Guðlaugur Þ. Þórðarson alþingismaður segir að þær fullyrðingar Mats Josefsson, efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar, að það kosti 85% af vergri landsframleiðslu að endurreisa bankana séu allt aðrar upplýsingar en þær sem þingið hafi fengið. Ummælin lét Josefsson falla í sænskum fjölmiðli. 26.5.2009 13:47
Uppblásin hrefna fyrir utan sendiráðið í London Mótmælendur tóku sér stöðu við íslenska sendiráðið í London í dag til þess að mótmæla hvalveiðum Íslendinga en veiðar hefjast að nýju í dag. Þeir tóku með sér stóra uppblásna hrefnu auk þess sem kynnt var ný skoðanakönnun sem sýnir að 82 prósent Breta eru andsnúnir hvalveiðum Íslendinga. 26.5.2009 13:36
Elliði Vignisson: Guð forði okkur frá pólitískum ráðningum „Hann karl faðir minn er búinn að starfa hjá bænum síðan árið 1967, eða tveimur árum áður en ég fæddist. Þannig ég kom nú ekki beint að ráðningunni hans," segir bæjarstjóri Vestmannaeyja, Elliði Vignisson, en minnihlutinn hefur gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn fyrir óeðlilegar ráðningar í íþróttamiðstöð bæjarins. 26.5.2009 12:41
Styttist í skipun nýs seðlabankastjóra Það styttist í að skipaður verði nýr bankastjóri við Seðlabanka Íslands. Nefnd sem metur hæfi umsækjenda mun skila af sér þann 5. júní. 26.5.2009 12:39
Þak á innheimtukostnað gildir ekki um skuldir í lögheimtu Þak sem sett var á innheimtukostnað í byrjun ársins gildir ekki um skuldir sem komnar eru til lögfræðings í lögheimtu. 26.5.2009 12:15
Seðlabankastjóri fær tæpar 1600 þúsund á mánuði Svein Harald Øygard fær greiddar 1575 þúsund krónur í laun á mánuði. Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabankans, segir að þetta séu sömu laun og Davíð Oddsson, fyrrverandi bankastjóri hafði. 26.5.2009 12:00
Umferðarráð vill meiri löggæslu á vegum úti í sumar Umferðarráð hvetur stjórnvöld til þess að auka umferðarlöggæslu á komandi sumri þar sem viðbúið er að fleiri ferðist innanlands í ár en oft áður. Þá varar ráðið við niðurskurði á fjármagni til Umferðarstofu. „Vegna breyttra aðstæðna í efnahagsmálum hér á landi má búast við að fólk ferðist meira innanlands en utan á komandi sumri. Fyrir bragðið má búast við aukinni bílaumferð sem hefur mögulega hættu í för með sér,“ segir í ályktun frá Umferðarráði. 26.5.2009 11:53
Brutu hugsanlega sveitastjórnalög „Þau viku ekki af fundi bæjarráðs né bæjarstjórnar þegar ráðningarnar voru ræddar og samþykktar," segir Páll Scheving Ingvarsson, oddviti V-listans í Vestmannaeyjum, en hann gagnrýnir verklag við ráðningar meirihlutans harðlega. 26.5.2009 11:28
Sumaráætlun Strætó tekur gildi Sumaráætlun Strætó tekur gildi næstkomandi sunnudag. Samkvæmt tilkynningu frá Strætó verða helstu frá vetraráætlun þær að allir vagnar sem óku á 15 min. tíðni í vetur fara yfir á 30 min. tíðni í sumar. Leið 25 ekur ekki í sumar. 26.5.2009 11:19
Færðu Krabbameinsfélaginu styrk til kynningarstarfs Ágústa G. Sigfúsdóttir og Auður Andrésdóttir frá Zontaklúbbi Reykjavíkur færðu Krabbameinsfélagi Íslands nýverið 300 þúsund krónur að gjöf úr Margrétarsjóði félagsins. 26.5.2009 11:13
Byssan var eftirlíking Byssan sem 17 ára gamall unglingur var tekinn með í nágrenni við Skeifuna í morgun var eftirlíking að skotvopni, samkvæmt upplýsingum frá Herði Jóhannessyni, aðstoðarlögreglustjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hörður segir að vopnalög fjalli þó jöfnum höndum um skotvopn og eftirlíkingar. Bannað sé að vera með hvorutveggja á almannafæri enda alls óvíst að nærstaddir geti greint muninn. 26.5.2009 10:47
Réð pabba í vinnu Hörð átök voru á síðasta bæjarstjórnarfundi Vestmannaeyja fyrir helgi en þar bókaði minnihluti V-listans gegn ráðningu nýs forstöðumanns íþróttamiðstöðvarinnar sem og ráðningu umsjónarmanns sömu miðstöðvar. Ástæðan fyrir mótmælum minnihlutans er sú að ný ráðin forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar er eiginmaður bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Páleyju Borgþórsdóttur sem er formaður bæjarráðs Vestmannaeyja. 26.5.2009 10:40
Kristján Guðmundsson hlýtur Carnegie-verðlaunin Listamaðurinn Kristján Guðmundsson hefur hlotið sænsku Carnegie Art Award-verðlaunin í ár en þar er um að ræða ein virtustu myndlistarverðlaun heims. 26.5.2009 08:46
Greiðslur lífeyrissjóðsins ekki skertar Ekki þarf að skerða greiðslur úr Lífeyrissjóði verslunarmanna þrátt fyrir neikvæða afkomu sjóðsins í fyrra. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að þetta sé vegna góðrar ávöxtunar undanfarin ár. 26.5.2009 07:24
Umferð um íslenskt flugstjórnarsvæði minnkaði Flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið, sem er eitt hið stærsta í heimi, minnkaði um tíu og hálft prósent fyrstu fjóra mánuði ársins, samanborið við sama tímabil í fyrra. Umferð um svæðið jókst hins vegar um fimm prósent í fyrra. 26.5.2009 07:22
Steinsofnaði í handfærabáti Óttast var um afdrif sjómanns, sem var einn á handfærabáti á Sandvíkinni við Reykjanes undir morgun, og báturinn datt út úr sjálfvirka tilkynningakerfinu. 26.5.2009 07:19
Með skammbyssu í Skeifunni Sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra voru kallaðir út laust fyrir klukkan fjögur í nótt eftir að tilkynning barst um að maður, vopnaður skambyssu, væri á ferli við Hagkaup í Skeifunni, en þar er opið allan sólarhringinn. 26.5.2009 07:11
Danski sjóliðinn bíður yfirheyrslu Tuttugu og eins árs sjóliði af danska varðskipinu Hvítabirninum, sem liggur í Reykjavíkurhöfn, gistir nú fangageymslur og bíður þess að verða yfirheyrður vegna innbrots í Kaupþing við Austurstræti um klukkan hálfníu í gærkvöldi, þar sem hann var yfirbugaður innandyra. 26.5.2009 07:06
Sveitarstjóra greinir á um fyrningarleið Sveitarstjóri að vestan spyr sig hvort mótmæli sveitarstjórnarmanna gegn fyrningarleiðinni sé vegna pressu útgerðarmanna. Kvótakerfið lék sveitarfélag hans illa. Fyrningarleiðin veldur þegar tjóni segir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar. 26.5.2009 05:30
Norsk flugsveit til gæslustarfa Utanríkismál Þrjár norskar F16-orrustuþotur ásamt um 40 manna fylgdarliði munu stunda æfingar og sinna loftrýmisgæslu hér við land næstu tvær vikur. Þoturnar komu hingað til lands seinnipart dags í gær, segir Friðrik Jónsson, sviðsstjóri hjá Varnarmálastofnun. Spánverjar hættu nýverið við að senda flugsveit hingað til lands vegna kostnaðar og mun norska flugsveitin koma í þeirra stað. 26.5.2009 05:00
Ungmenna leitað hátt í þrjú hundruð skipti 253 sinnum hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitað að ungmennum á aldrinum 11 til 18 ára síðan í janúar 2008. Oftast var leitað 13 sinnum að sama einstaklingnum. Miklar sveiflur eru á milli mánaða. 26.5.2009 05:00
Sýnist tillagan hafa breyst lítið „Ég sagði við fyrri tillögu að ég myndi ekki styðja hana óbreytta og persónulega sýnist mér hún hafa tekið litlum breytingum,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknar. 26.5.2009 05:00
Lóan nemur land í Surtsey Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands gengu fram á heiðlóuhreiður með fjórum eggjum í síðustu viku. Þetta er í fyrsta sinn sem lóan verpir í eynni. 26.5.2009 04:30
Framúrkeyrsla um 45 prósent Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, segir að kostnaður við Kárahnjúkavirkjun hafi farið um 45 prósent fram úr áætlun. Sé tillit tekið til vaxta sé framúrkeyrslan um 40 prósent. Sigurður miðar þarna við Bandaríkjadali, enda séu tekjur af virkjuninni í þeirri mynt. 26.5.2009 04:15
Endurspegla breytingar á VR Stjórn VR ákvað í gær að skipta út fulltrúum félagsins í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Þar með mun stjórnarformaðurinn, Páll Gunnar Pálsson, fyrrverandi formaður VR, fara úr stjórn lífeyrissjóðsins. 26.5.2009 04:15
Vill fjölga 30 kílómetra svæðum „Ég er á þeirri skoðun að margir pólitíkusar ættu að tala minna um tugmilljónaframkvæmdir í jarðgangagerð og tónlistar- og ráðstefnuhúsi á meðan þeir spara eyrinn í einföldum öryggisaðgerðum. Öryggi á alltaf að hafa forgang yfir gæluverkefni stjórnmálamanna,“ segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans og óháðra. 26.5.2009 04:15