Endurreisn banka rædd í dag 27. maí 2009 04:15 Guðlaugur Þór Þórðarson hafði erindi sem erfiði og kom endurreisn bankanna á dagskrá viðskiptanefndar. fréttablaðið/stefán
Formaður viðskiptanefndar ákvað í gær að taka endurreisn bankanna til umræðu á fundi nefndarinnar í dag, eftir að þingmenn stjórnarandstöðu gagnrýndu að hafa ekki fengið tækifæri til þess að tjá sig um það í nefndinni. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hafði krafist fundar við fyrsta tækifæri, í ljósi ummæla sænska bankasérfræðingsins Mats Josefsson um að endurreisn bankanna kostaði 85 prósent af þjóðarframleiðslu. Niðurlægjandi væri fyrir þingheim að þurfa að læra um slíkt af Fréttablaðinu. Guðlaugur Þór segist hafa beðið margoft um að endurreisn bankanna yrði rædd í nefndinni. VG hafi áður fyrr mikið rætt um gagnsæi og opna stjórnsýslu, en reyni nú að koma í veg fyrir umræðu. „Þetta er gagnsæið í framkvæmd,“ sagði hann. Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, segir fjölmörg brýn mál á dagskrá nefndarinnar, sem tengist endurreisn bankanna. Til dæmis hafi forstjóri Fjármálaeftirlitsins verið boðaður á fundinn í dag. Fleiri gagnrýndu dagskrárgerð þingsins almennt í gær. Birkir Jón Jónsson úr Framsókn harmaði til dæmis að þingið ætlaði að ræða um urðun á sorpi og erfðabreyttar lífverur, frekar en mál tengd efnahagshruninu. - kóþ
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Sjá meira