Innlent

Sameiginlegur þingflokksfundur stjórnaflokkanna í Þjóðminjasafninu

MYND/Stefán

Þingflokkar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hittast á sameiginlegum þingflokksfundi í Þjóðminjasafninu klukkan sex síðdegis. Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu en fundarefnið er kynning á stöðu ríkisfjármálanna.

Að sögn Björgvins er kynningin af hálfu fjármálaráðuneytisins og munu Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Indriði H. Þorláksson, ráðuneytisstjóri kynna stöðuna.

Björgvin segir að um nýmæli sé að ræða en að til standi að halda fleiri sameiginlega þingflokksfundi í framtíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×