Innlent

Harma niðurfellingu gjaldfrjálsra strætóferða

Stúdentaráð Háskóla Íslands harmar áform Strætó um niðurfellingu gjaldfrjálsra strætóferða fyrir námsmenn. Minnt er á að í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar kemur fram að almenningssamgöngur verði stórefldar. Í sumaráætlun Strætó, sem tekur gildi um næstu mánaðamót, eiga vagnar, sem aka á 15 mínútna fresti, að aka á hálftíma fresti og akstur á einni leið verður felldur niður í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×