Innlent

Fangageymslur fullar eftir nóttina

Lögreglan handtók í nótt tvo menn sem voru að brjótast inn í bíla í Grafarvogi og í Rofabæ í Reykjavík. Þeir voru báðir staðnir að verki og gista nú fangageymslur. Þá var einn tekinn úr umferð vegna ölvunaraksturs og annar vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Fangageymslur lögreglustöðvarinnar í Reykjavík fylltust í nótt vegna ýmissa mála en slíkt er fátítt í miðri viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×