Fleiri fréttir

Brunabíla-Ragnar dæmdur til að greiða fimm milljónir

Fyrrum skemmtistaðaeigandinn Ragnar Magnússon, stundum kallaður Brunabílaragnar, var dæmdur, ásamt konu, bróður og föður, til þess að greiða Ölgerð Egils Skallagrímssonar fimm milljónir vegna ógreiddra reikninga.

Íslenskt skip á sjóræningjaslóðum

Fiskiskipið Skinney SF, sem er á leið frá Taiwan til Hornafjarðar, mun næstu þrjá sólarhringana sigla í herskipavernd meðfram ströndum Sómalíu, þar sem sjóræningjar hafa herjað á skip síðustu misserin.

Dræm þátttaka í VR kosningum

Aðeins um fimmtungur félagsmanna í VR hefur tekið þátt í kosningum um formann, stjórn og trúnaðarráð félagsins.Kosningunum lýkur á hádegi á morgun.

Össur: Jón Magnússon leiðir Sjálfstæðisflokkinn

Össur gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn harðlega í bloggfærslu sem hann birtir á Eyjan.is en þar segir hann að Jón Magnússon, fyrrum þingmaður Frjálslynda flokksins, nú Sjálfstæðisflokksins, leiði málþóf á lágu plani. Og það sem meira er; flokkinn sjálfan.

Vísbendingar um að brennisteinninn skemmi mosann

Vísbendingar eru um að brennisteinsvetni eigi þátt í þeim mosaskemmdum sem orðið hefur vart við í nágrenni Hellisheiðarvirkjunar. Þetta kemur fram í rannsókn sem Orkuveitan lét framkvæma en hún leiddi í ljós að ekki er unnt að fullyrða með óyggjandi hætti að brennisteinsvetni sé að drepa mosa næst Hellisheiðarvirkjun.

Haukur Björnsson hættur hjá Eskju

Haukur Björnsson, sem hefur starfað hjá Eskju á Eskifirði í 35 ár, þar af sem framkvæmdastjóri í fjögur ár, hefur látið af störfum.

Ræningja enn leitað

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn manns, sem framdi vopnað rán í söluturni í Seljahverfi í Reykjavík um klukkan hálfníu í gærkvöldi. Hann ógnaði afgreiðslustúlku með hnífi og komst undan með nokkra fjármuni, en vann stúlkunni ekki mein.

Nældi sér í buxur í kvenfataverslun

Brotist var inn í kvenfataverslun í Mörkinni í Reykjavík í nótt og þaðan stolið nokkrum kvenbuxum og skúffum úr sjóðsvélum, með skiptimynt í. Þjófurinn braut sér leið inn í verslunina með því að brjóta rúðu með gangstéttarhellu.

Stjórnarandstaðan sökuð um málþóf

Til snarpra orðaskipta kom hvað eftir annað á Alþingi í gærkvöldi við þriðju og síðustu umræðu um frumvarp um útgreiðslu á séreignarsparnaði, sem stóð fram yfir miðnætti.

Urðu óvænt að ólöglegum innflytjendum

Hópur Letta og Eista af slavneskum uppruna fékk fyrir misskilning réttindi á Íslandi á við þegna á EES-svæðinu. Sumir voru búnir að koma börnum sínum í skóla þegar upp komst um misskilninginn og þeim var gert að fara úr landi.

Krefur Fréttablaðið um 5 milljónir

Björk Eiðsdóttir, blaðamaður á Vikunni, hefur hótað ritstjórum Fréttablaðsins málshöfðun vegna ummæla um hana sem birtust í Fréttablaðinu 6. mars síðastliðinn. Ummælin voru höfð beint eftir Ásgeiri Davíðssyni, eiganda nektardansstaðarins Goldfinger. Björk krefst fimm milljóna króna í miskabætur, ella fari hún í mál.

Lögmæti Portus-kaupa kannað

Fjárlaganefnd Alþingis ákvað í gær að fá álit Ríkisendur-skoðunar á því hvort yfirtaka Austurhafnar á framkvæmdum við tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík samræmist lögum. Er sjónum beint að fjárreiðulögum og tilteknum heimildum í fjárlögum.

Mikið tilstand við að leiðrétta frétt

Talsvert tilstand varð í íslensku stjórnsýslunni eftir að viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson forseta birtist í þýska Financial Times 10. febrúar. Fyrirsögn viðtalsins var á þá leið að innstæður Þjóðverja hjá Kaupþingi væru glataðar og var haft eftir Ólafi að þar sem Íslendingar hefðu tapað öllu væri ekki hægt að bjóða þeim upp á að þurfa að borga tap þýskra sparifjáreigenda.

Telja að kröfuhafar hafi verið blekktir

Lögmenn Glitnis og Íslandsbanka halda því fram að Baugur Group hafi meðvitað reynt að blekkja kröfuhafa í tengslum við greiðslustöðvun. Algerlega staðlausir stafir, segir lögmaður Baugs. Misskilningur, segir fjármálastjóri félagsins.

Straumur gagnrýnir FME

Heimildir innan Straums gagnrýna framgöngu Fjármálaeftirlitsins við yfirtöku bankans. FME og fjármálaráðherra segja Straum bjaga atburðarásina. „Það setur að mér ugg“, segir stjórnarformaður FME.

Efnahagsbrotadeild fær gögn

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra er heimilt, samkvæmt dómi Hæstaréttar, að fá gögn um sölu fjögurra flugvéla, sem áður voru í eigu eignarhaldsfélagsins City Star Airlines ehf. Félagið hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Vikið af vegi sáttar við lagabreytingar

Grundvallarlögum er breytt án þverpólitískrar sáttar. Rík hefð er fyrir samstöðu um breytingar á stjórnarskrá og lögum um Seðlabankann og kosningar.

Skorar á aðra frambjóðendur

Tryggvi Þór Herbertsson, frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur birt upplýsingar um fjárhagsleg tengsl sín, og skorar á aðra stjórnmálamenn að gera slíkt hið sama.

Lifa bara fyrir náð og miskun

„Við erum undir náð og miskunn opinberra aðila komnir, við getum ekki þrætt fyrir það,“ segir Agnar Hansson, bankastjóri Sparisjóðbankans. Bankinn átti 150 milljarða króna kröfur í föllnu bönkunum. Kröfuhöfum á Sparisjóðabankann var í febrúar kynnt áætlun um niðurfellingu skulda, lengingu lána og breytingu krafna í hlutafé. Bankinn hefur einu greiðslumiðlunargáttina við útlönd fyrir utan Seðlabankann.

Byrjað að yfirheyra embættismenn

Rannsóknarnefnd um bankahrunið hefur hafið skýrslutökur af lykilmönnum úr stjórnsýslunni til að afla sér upplýsinga um orsakir og aðdraganda hrunsins. Verkið er seinunnið, segir formaðurinn Páll Hreinsson.

Jóhanna býst við lækkun í næstu viku

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gerir ráð fyrir að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir í næstu viku en næsti vaxtaákvörðunardagur er fimmtudaginn 19. mars.

Eftirfararbúnaður ólöglegur

Íslenska ríkið hefur verið dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða manni 250 þúsund krónur í miskabætur vegna eftirfararbúnaðar lögreglu sem maðurinn fann undir bíl sínum í nóvember 2007. Maðurinn hafði krafist tíu milljóna úr ríkiskassanum.

Björgólfur tapar 39 milljörðum

Hluthafar Straums tapa langmestu af ríkisvæðingu bankans í gær eða um 17,7 milljörðum króna. Óvissa er um kröfur lánadrottna, sem flestir eru erlendir. Líklegt er að þeir fái upp í kröfur sínar nema eignir fari á brunaútsölu.

Salmonella í kjúklingahópi

Rökstuddur grunur er um að salmonella hafi greinst í einum kjúklingahópi Reykjagarðs. Jarle Reiersen dýralæknir segir þetta hafa komið upp í reglubundnu eftirliti með salmonellu í kjúklingaslátrun. Í hópnum sem slátrað var voru um 9.700 fuglar.

Rændi sjoppu í Seljahverfi vopnaður hnífi

Hettuklæddur karlmaður rændi söluturninn Allt í einu í Jafnaseli 6 í Seljahverfi í Reykjavík fyrr í kvöld. Maðurinn kom vopnaður hnífi inn í söluturnin laust fyrir klukkan hálf níu og ógnaði þar starfsstúlkum, að sögn lögreglu. Ræninginn fékk stúlkurnar til að afhenda sér þá fjármuni sem voru í peningakassa og hljóp í framhaldinu út úr söluturninum.

Útilokar ekki fleiri yfirtökur

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, útilokar ekki að ríkið neyðist til að taka yfir rekstur fleiri fjármálastofnanna og settar verði fleiri skilanefndir yfir þær.

Skiptameðferð eðlilegri en yfirtaka á Straumi

Jón Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, undrast að stjórnvöld hafi tekið yfir fjárfestingabankann Straum Burðarrás í dag. Eðlilegra hefði verið að bankinn hefði farið í skiptameðferð án þess að ríkið blandaði sér í málið. Hann spyr á vefsíðu sinni hvort einhverjar sérstaktar ástæður liggi fyrir ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hætta fjármunum almennings með þessum hætti.

Óskiljanlegt að meina Landsvirkjun orkusölu til Helguvíkur

Forstjóri Hitaveitu Suðurnesja kveðst ekki skilja þá ákvörðun stjórnvalda að meina Landsvirkjun að selja raforku til Helguvíkurálvers og segir útilokað að næg orka fáist í tæka tíð án aðkomu Landsvirkjunar. Hitaveitan undirbýr nú stórfelldar virkjanaframkvæmdir á þremur svæðum á Reykjanesskaga vegna álversins.

Glæpasögur Arnaldar draga að ferðamenn

Söguslóðir bóka Arnaldar Indriðasonar eru orðnar aðdráttarafl fyrir erlenda ferðamenn. Fyrstu hóparnir komu í fyrra og enn fleiri eru væntanlegir til landsins á næstu vikum, bæði frá Þýskalandi og Svíþjóð, gagngert til að skoða vettvang glæpanna.

Seðlabankinn lánaði Straumi

Fjármálaeftirlitið beitti neyðarlögunum á Straum Burðarás til að bjarga tugmilljarða innistæðum sem íbúðalánsjóður og lífeyrissjóðirnir áttu í bankanum. Viðskiptaráðherra útilokar ekki að eitthvað kunni að falla á ríkissjóðs vegna yfirtökunnar. Seðlabankinn lánaði Straumi 19 milljarða í desember.

Konur næst á eftir Bjarna Harðarsyni

L-listinn vinnur nú hörðum höndum að mótun framboðslista í öllum kjördæmum landsins. Bjarni Harðarson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins er einn af talsmönnum framboðsins og mun hann skipa fyrsta sætið í Suðurkjördæmi. Á vefnum Sunnlendingur.is er greint frá því að næstu tvö sæti listans verði skipuð konum, þeim Kristbjörgu Steinunni Gísladóttur, frá Selfossi og Önnu Jónu Einarsdóttur, frá Höfn í Hornafirði.

Gríðarlegur þrýstingur á Jóhönnu

Gríðarlegur þrýstingur er á Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar á næsta landsfundi. Hvorki Dagur B. Eggertsson né Árni Páll Árnason útiloka formannsframboð standi Jóhanna fast við fyrri ákvörðun um að bjóða sig ekki fram.

Ingibjörgu þakkað fyrir fórnfúst starf í þágu íslenskra kvenna

Stjórn kvennahreyfingar Samfylkingarinnar þakkar Ingibjörgu Sólrúnu óeigingjarnt og fórnfúst starf í þágu íslenskra kvenna. Í ályktun stjórnar hreyfingarinnar segir að Ingibjörg Sólrún hafi lagt gríðarlega mikið af mörkum til íslenskrar kvennabaráttu.

Ákveða sjálfir hvort þeir upplýsa um hagsmunatengsl sín

Þingmenn geta ákveðið það sjálfir hvort þeir gefi upplýsingar um hagsmuni sína og eignir samkvæmt drögum að reglum sem þingflokkar á Alþingi hafa náð sátt um. Reglurnar taka hvorki til skulda eða maka þingmanna.

Svifryk þrjá daga í röð yfir mörkum

Styrkur svifryks fór yfir heilsuverndarmörk þrjá daga í röð í liðinni viku. Rykbinding á helstu umferðagötum á föstudag dugði ekki allan daginn vegna þess að blandan var of þunn. Fram kemur í tilkynningu að ekki er búist við svifryksmengun næstu daga.

Allt verði gert til að bjarga sparisjóðunum

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að allt verði gert til að treysta undirstöðu sparisjóðakerfisins þannig að sparisjóðirnir verði einn af máttarstólpum samfélagsins. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu Alþingi í dag um stöðu efnahagsmála sem fór fram að ósk Birkis Jóns Jónssonar, varaformanns Framsóknarflokksins. Steingrímur sagði að endurfjármögnun bankanna verði lokið í lok apríl.

Ari átti ENRON

Ari Matthíasson sem mun skipa fjórða sætið í öðru Reykjavíkurkjördæmanna fyrir Vinstri græna hefur sent frá sér yfirlýsingu er varðar fjárhagsleg tengsla hans við atvinnulífið. Þar kemur meðal annars fram að Ari hafi aldrei áður tekið þátt í stjórnmálum og hafi því ekki auðnast því að slíta á tengsl sín við atvinnulífið með því að losa um eign sína í hinu skráða félagi KR-SPORT þar sem hann hafði áður verið stjórnarmaður.

Klippt af hundrað ökutækjum um helgina

Lögreglan klippti númeraplöturnar af tæplega eitt hundrað ökutækjum á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í tilkynningu frá lögreglu segir að töluvert sé um ótryggð og óskoðuð ökutæki á höfuðborgarsvæðinu eru eigendur hvattir til að gera þar bragarbót á.

Katrín ætlar að kanna innheimtuaðgerðir RÚV

Ólöf Nordal þingmaður sjálfstæðismanna vakti á þingi í dag athygli á auglýsingum Ríkisútvarpsins undanfarið þar sem fólk er hvatt til þess að greiða afnotagjöldin ella verði skuldirnar settar í lögfræðiinnheimtu. Ólöf spurði Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra að því hvort þetta samræmdist tilmælum ríkisstjórnarinnar um að vægt verði tekið á skuldurum.

Spurði hvort þingmenn væru blindir

Nokkuð snarpar umræður fóru fram á Alþingi í dag um dagskrá þingsins. Sjálfstæðismenn eru ósáttir með þau mál sem eru á dagskrá og vilja m.a. frekar leggja áherslu á frumvarp um uppbyggingu álvers í Helguvík en breytingar á stjórnarskrá. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins spurði hvort menn væru blindir á sama tíma og fyrrum menntamálaráðherra sagði hana senda vond skilaboð til suðurnesjamanna.

Sjá næstu 50 fréttir