Óttast að Geir hafi sagt Alþingi ósatt 9. mars 2009 20:00 Siv Friðleifsdóttir óttast að Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hafi sagt Alþingi ósatt um Icesave-málið.
Siv Friðleifsdóttir óttast að Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hafi sagt Alþingi ósatt um Icesave-málið. Skuldbindingar Íslendinga vegna Icesave reikninga Landsbankans hanga enn yfir þjóðinni. Óttast var að Íslendingar þyrftu að greiða hundruð milljarða vegna reikninganna en nýjasta mat skilanefndar Landsbankans gerir ráð fyrir því að Íslendingar þurfi að greiða ríflega sjötíu milljarða vegna reikninganna. Fyrir þá upphæð mætti raunar reka Landspítalann lengur en í tvö ár. Reynt var að koma reikningunum í breska lögsögu. Landsbankamenn hafa haldið því fram að tvöhundruð milljóna punda fyrirgreiðslu, eða sem nemur um þrjátíu milljörðum króna, að kröfu breska fjármálaeftirlitsins, hefði þurft til þess að koma reikningunum í hendur Breta. Landsbankamenn óskuðu fyrirgreiðslu Seðlabankans í þessu skyni og segjast hafa haft frest til mánudagsmorgunsins 6. október til að svara Bretum. Daginn eftir 7. október, tók skilanefnd yfir bankann og svo settu Bretar á okkur hryðjuverkalög. Tryggvi Þór Herbertsson, þáverandi efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde forsætisráðherra, sagði í fréttum Stöðvar 2 á dögunum að hann hefði frétt af tilboði breska fjármálaeftirlitsins seint á sunnudagskvöld. Hann hafi sagt Geir frá því daginn eftir. ,,Það er alveg ljóst að upplýsingar Tryggva Þór Herbertsson stangast algjörlega á við það sem Geir H. Haarde gaf þinginu. Þar var sérstaklega spurt um það hvort að ráðherra hafi haft vitneskju um þetta tilboð um að við hefðum getað losnað við ábyrgðirnar á Icesave yfir í breska lögsögu og ráðherra sagði nei," segir Siv. Siv segist jafnframt hafa spurt í fyrirspurn sinni hvort Geir þekki til þess að ráðgjafar hans hafi búið yfir slíkri vitneskju. ,,Svarið er að honum er ekki kunnugt um það. En Tryggi Þór Herbertsson upplýsir um allt annað og það er alveg greinilegt að annar hvor þeirra er að segja rangt frá." Siv vonar að Geir sé að segja rétt því það sé afar alvarlegt að segja þinginu rangt frá. Ekki náðist í Geir H. Haarde.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira