Ari átti ENRON 9. mars 2009 16:49 Ari Matthíasson
Ari Matthíasson sem mun skipa fjórða sætið í öðru Reykjavíkurkjördæmanna fyrir Vinstri græna hefur sent frá sér yfirlýsingu er varðar fjárhagsleg tengsla hans við atvinnulífið. Þar kemur meðal annars fram að Ari hafi aldrei áður tekið þátt í stjórnmálum og hafi því ekki auðnast því að slíta á tengsl sín við atvinnulífið með því að losa um eign sína í hinu skráða félagi KR-SPORT þar sem hann hafði áður verið stjórnarmaður. „Líklegt má þó telja að verðmæti í því hlutafélagi sé fyrst og fremst tilfinningalegs eðlis og að lítill markaður sé fyrir bréfin þó ég minnist þess að auglýst var fyrir einhverjum misserum eftir þeim sem viljugir væru til þess að selja," segir Ari í yfirlýsingunni. Einnig á hann einkahlutafélagið Nýja Ísland ehf sem áður hét ENRON ehf. „Meðan félagið hét ENRON var starfsemi í því lítil sem engin enda það stofnað utan um liststarfsemi mína sem var í lágmarki. Síðastliðið haust breytti ég nafni ENRON í Nýja Ísland þegar ég ákvað að ráðast í uppsetningu á Við borgum ekki! Við borgum ekki! eftir Dario Fo sem verður frumsýnt í maí n.k. í Borgarleikhúsinu í samvinnu við L.R," segir Ari. „Nafninu var breytt vegna þess að mér fannst eitthvað rétt við það að fyrirtæki sem áður hafi heitið Enron héti í dag Nýja Ísland og setti upp gamanleiki." Hann segir einnig að forvalsbarátta sín hafi verið háð með þeim hætti að hann ásamt konu sinni hafi hringt í vini og vandamenn þar sem beðið var um stuðning. „Aðrir komu ekki að þeirri baráttu, hvorki beint né óbeint og enginn veitti fjárhagslegan stuðning. Kostnaður gæti slagað hátt í 10.000 kr. , en þar vegur hæst símakostnaður og eitt hóp-SMS sem stuðningsmönnum var sent á kjördag."
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fleiri fréttir „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni Sjá meira