Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þingflokkurinn vill Jóhönnu á formannsstól Ríkur vilji er innan þingflokks Samfylkingar að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, taki við formannsembættinu og leiði flokkinn í næstu kosningum. 9.3.2009 12:35
Skúli vill þriðja sætið Fyrrum framkvæmdarstjóri Samfylkingarinnar, Skúli Helgason, hyggst bjóða sig fram í þriðja sætið á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þá ákvörðun tók hann í ljósi þess að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gefur ekki kost á sér lengur til Alþingis. 9.3.2009 12:33
Ábending úr bankakerfinu hratt af stað rannsókn á fjölmiðlamönnum Ábending innan úr bankakerfinu varð til þess að rannsóknarnefnd Alþingis ætlar að kanna þátt fjölmiðlafólks í hruni íslensku bankanna. 9.3.2009 12:00
Leit hætt: Málið rannsakað sem mannshvarf Leit að Aldísi Westergren er formlega hætt en málið er komið á borð til rannsóknarlögreglunnar. Málið er rannsakað sem mannshvarf og er enn leitað vísbendinga um ferði Aldísar. Þess vegna biður lögreglan enn um vísbendingar um ferðir Aldísar. 9.3.2009 11:41
Leggja fram frumvarp um upplýsingaskyldu ríkisfyrirtækja Frumvarp um upplýsingaskyldu fyrirtækja, félaga og stofnana í eigu íslenska ríkisins verður dreift á alþingi í dag. Í því felst að fyrirtæki, félög og stofnanir sem eru að helmingi eða meira í eigu íslenska ríkisins upplýsi um allar afskriftir skuldunauta viðkomandi aðila. 9.3.2009 11:39
Össur og Helgi vilja ofar á lista Össur Skarphéðinsson, utanríkis- og iðnaðarráðherra, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sætið í prókjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Áður hafði hann boðið sig fram í þriðja sætið en í kjölfar yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að hún væri hætt í stjórnmálum hefur hann ákveðið að stefna hærra. Hann sækist því eftir öðru sætinu í prófkjörinu. Helgi Hjörvar alþingismaður hefur einnig ákveðið að sækjast eftir þriðja sætinu í stað þess fjórða. 9.3.2009 11:26
Mun lækka launin og selja glæsibifreið Lúðvík Lúðvíksson frambjóðandi til formanns VR segir að sitt fyrsta verk nái hann kjöri á miðvikudaginn verði að lækka laun formannsins ásamt því að selja glæsibifreið sem formaðurinn ekur um á. 9.3.2009 10:51
Segja dóm Hæstaréttar samþykkja vændissölu þriðja aðila Femínistafélag Íslands fordæmir nýfallin dóm Hæstaréttar í máli Bjarkar Eiðsdóttur blaðamanns á Vikunni og Ásgeirs Þór Davíðssonar gjarnan kenndan við Goldfinger. Hæstiréttur dæmdi Björk til að greiða Ásgeiri 500.000 kr fyrir að birta ummæli fyrrverandi nektardansmeyjar um vændi á Goldfinger. 9.3.2009 10:09
Brutust óvart inn í klukkubúð „Ég ætlaði að fara að kaupa mér kók og samloku," segir hinn rúmlega tvítugi Pálmi Þorsteinsson sem varð fyrir sérkennilegri uppákomu í nótt þegar hann gekk inn í 10-11 í Sporhömrum til þess eins að finna út að búðin var mannlaus. Í ljós kom að verslunin var lokuð og hafði verið síðan fyrsta mars. Með Pálma í för var bróðir hans en klukkan var að ganga fjögur um nóttina þegar þeir gengu inn. 9.3.2009 10:00
Annþór laus af Litla Hrauni Annþór Kristján Karlsson lauk afplánun á þriggja ára fangelsisdómi sínum síðast liðinn mánudag og er því laus úr fangelsi. Annþór hlaut þriggja ára dóm fyrir hrottalega líkamsárás þegar hann barði rúmliggjandi mann til óbóta með kylfu. Fyrir verknaðinn sat Annþór inni í tvö ár. Hann var síðan handtekinn fyrir smygl á 5,2 kílóum af amfetamíni og kókaíni í hinu svokallða UPS-hraðsendingarmáli. 9.3.2009 09:56
Gagnrýnir fjölgun listamannalauna „Starfslaun listamanna eru 267 þúsund krónur á mánuði eða um 80% hærri en grunnatvinnuleysisbætur,“ segir Haukur Þór Hauksson viðskiptafræðingur og prófkjörsframbjóðandi. 9.3.2009 09:30
Rúmlega 64 prósent vilja ESB-viðræður Rúmlega 64 prósent landsmanna vilja taka upp aðildarviðræður um inngöngu í Evrópusambandið, samkvæmt könnun sem Samtök iðnaðarins létu gera nýverið. 9.3.2009 07:23
Danir hefja loftrýmiseftirlit Loftrýmiseftirlit danska flughersins hefst frá Keflavíkurflugvelli klukkan átta í dag. Fjörutíu og átta danskir hermenn verða hér í þrjár vikur vegna verkefnisins og nota við það fjórar F-16 herþotur. Þær munu stunda æfinga- og eftirlitsflug yfir sjó og hugsanlega yfir miðhálendinu. 9.3.2009 07:20
Ófært víða fyrir norðan og vestan Ófært er víða á Norður- og Norðausturlandi og sums staðar á Vestfjörðum, en vegagerðarmenn hættu snjómokstri í gærkvöldi vegna óveðurs. Það hefur nú skánað víðast hvar þannig að mokstur er hafinn á helstu leiðum. 9.3.2009 07:15
Handtekinn eftir tvö innbrot Þjófur var handtekinn í Reykjavík upp úr miðnætti eftir að hann hafði framið innbrot í tvær verslanir. 9.3.2009 07:13
Á efnum á öðru hundraðinu Lögreglan á Selfossi stöðvaði bíl eftir að hann mældist á 111 kílómetra hraða á Eyrarbakkaveginum í gærkvöldi. Ökumaðurinn reyndist í annarlegu ástandi og var færður á stöðina, þar sem prufur voru teknar af honum. Þær benda til að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna. 9.3.2009 07:09
Slapp naumlega undan snjóflóði Ökumaður bíls slapp naumlega undan stóru snjóflóði, sem féll á Siglufjarðarveg, Siglufjarðarmegin við Strákagöng laust eftir klukkan tíu í gærkvöldi. 9.3.2009 07:04
Vopnin í eigu Vítisengla Fjöldi vopna sem fannst í skógi nærri Hobro á Norður Jótlandi á föstudagskvöld er talinn vera í eigu meðlima vélhjólaklúbbsins Vitisengla. Danskir fjölmiðlar segja að lögreglan hafi fylgst með meðlimum Vítisengla frá því að vopnin fundust og tveir menn sem voru handteknir í gær tilheyri félagsskapnum. 8.3.2009 22:30
Brotthvarf Ingibjargar hefur engin áhrif á framtíðarsamstarf „Þetta kom auðvitað á óvart af þvi að hún hafði kynnt gagnstæða niðurstöðu fyrir stuttu síðan. En ég held að við þessar aðstæður eigi fólk fyrst og fremst að hugsa um sjálft sig, heilsuna og fjölskylduna," segir Steingrímur J. Sigfússon um brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. 8.3.2009 20:34
Jón Baldvin útilokar ekki formannsframboð Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra útilokar ekki að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar. 8.3.2009 18:26
Guðbjartur Hannesson sigraði í Norðvesturkjördæmi Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, er ótvíræður sigurvegari í prófkjöri Samfylkingarinnar sem fram fór dagana 6.-8 mars, en kosningu lauk klukkan fjögur i dag. Alls greiddu 854 atkvæði en einn seðill var auður. Kosningin er bindandi fyrir sex efstu sætin. Þau raðast þannig: 8.3.2009 18:00
Mokstri hætt á Norðausturlandi Mokstri er hætt á Norðausturlandi vegna veðurs. Mokstri er hætt á Víkurskarði og Grenivíkurvegi. 8.3.2009 18:57
Ekki verið að refsa Kolbrúnu Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi er hástökkvari forvals Vinstri grænna í Reykjavík þar sem konur unnu almennt sigra. 8.3.2009 18:41
Harður árekstur á Njarðarbraut Harður árekstur þriggja bifreiða varð á Njarðarbraut á móts við ÓB bensínstöðina í Reykjanesbæ klukkan hálffjögur í dag. Ökumenn tveggja bifreiðanna voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en fengu að fara heim að lokinni skoðun. Bifreiðarnar voru fluttar af vettvangi með kranabifeið. 8.3.2009 16:31
Sigurður leiðir lista framsóknarmanna á Suðurlandi Sigurður Ingi Jóhannsson dýralæknir mun leiða lista Framsóknarflokksins á Suðurlandi. Þetta er niðurstaða póstkosningar sem verið var að kynna á kjördæmisþingi flokksins á Selfossi. Eygló Harðardóttir, alþingismaður hafnaði í öðru sæti. 8.3.2009 15:42
Gallup könnun: Íslendingar vilja aðildarviðræður en ekki aðild Nálægt þrír af hverjum fjórum Íslendingum eru hlynntir því að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök Iðnaðarins. 8.3.2009 15:15
Stjórnarskrárnefnd þurfti fáeina mánuði til að ljúka við störf sín Stjórnarskrárnefnd hefði einungis þurft fáeina mánuði til viðbótar til að ljúka við störf sín. Þetta kom fram í máli Þorsteins Pálssonar ritstjóra Fréttablaðsins sem átti sæti í nefndinni. Þorsteinn og Jón Sigurðsson, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, voru gestir á Sprengisandi á Bylgjunni i morgun. 8.3.2009 14:12
Vonskuveður á Akureyri og í nágrenni Lögreglan á Akureyri vekur athygli á því að veður á Akureyri og nágrenni er nú slæmt og skyggni lítið sem ekkert á köflum. 8.3.2009 13:04
Heilmikil endurnýjun „Ég er bara mjög ánægð með þetta. Þetta er auðvitað heilmikil endurnýjun," segir Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna. Katrín hafnaði í fyrsta sæti á lista flokksins í Reykjavík í forvali sem fór fram í gær. Hún bendir á að Svandís Svavarsdóttir kemur ný inn á þennan vettvang. Sama á við um Lilju Mósesdóttur og Ara Matthíasson „Þannig að þetta er auðvitað talsverð endurnýjun. Flott blanda af gömlu og nýju," segir Katrín. 8.3.2009 10:55
Varað við sterkum vindhviðum undir Ingólfsfjalli Lögreglan á Selfossi varar ökumenn sem fara um Suðurlandsveg undir Ingólfsfjall við miklum vindhviðum. Tvær hestakerrur sem voru fastar aftan í bílum sem fóru um veginn fuku út af með stuttu millibili í morgun þegar vindurinn skall á þeim. Lögreglan hvetur því vegfarendur til að fara með gát þarna. 8.3.2009 10:49
Allt með kyrrum kjörum hjá Fáfni Allt var með kyrrum kjörum í veislu sem mótorhjólaklúbburinn Fáfnir hélt í nýju klúbbhúsi sínu í Hafnarfirði í gær. Dómsmálaráðherra taldi veisluna og væntanlega gesti hennar vera ógn við allsherjarreglu og þjóðaröryggi Íslands og herti því landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli. Fáfnir er yfirlýstur stuðningsklúbbur Vítisengla. 18 meðlimir Vítisengla voru stöðvaðir við komuna til landsins og sendir aftur til síns heima. 8.3.2009 09:48
Stöðvaður á 158 kílómetra hraða Lögreglan á Selfossi stöðvaði tæplega þrítugan mann á Hellisheiði á 158 km hraða. Hann mun verða sviptur ökuskírteini sínu en hefði hann verið á 4 km meiri hraða hefði hann verið sviptur á staðnum. Þá eru 2 ökumenn grunaðir um ölvunarakstur. Einn gisti fangageymslur útaf ólátum og eignaspjöllum á Eyrarbakka þar sem hann skemmdi bifreið. 8.3.2009 09:45
Sofnaði í miðju innbroti Brotist var inn íbúð í Austurborginni seint í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar höfðu húsráðendur brugðið sér af bæ en þegar að þau komu til baka sáu þau að ljós loguðu í íbúðinni. Þegar inn var komið tóku þau eftir því að ókunnugur maður lá sofandi á stofugólfunni. Lögreglan var kvödd á staðinn og fékk maðurinn að klára svefninn í fangageymslum. Ekki er vitað hvernig maðurinn komst inn í íbúðina. 8.3.2009 09:27
Katrín varð efst í Reykjavík Katrín Jakobsdóttir sigraði í forvali Vinstri grænna í Reykjavík sem fram fór í gær. Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi hafnaði í öðru sæti forvalsins og Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur því þriðja. Niðurstöður urðu eftirfarandi: 8.3.2009 01:03
Stefna á að fá þrjá menn kjörna Kristján Möller samgönguráðherra var að vonum ánægður með niðurstöðu prófkjörs Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi en hann hlaut örugga kosningu í 1. sæti á listann. 7.3.2009 19:28
Atli Gíslason leiðir lista VG í Suðurkjördæmi Atli Gíslason alþingismaður sigraði í forvali Vinstri grænna í Suðurkjördæmi en úrslit voru kunngjörð fyrir stundu. Niðurstaðan varð eftirfarandi. 7.3.2009 18:05
Sigmundur Ernir líklega á leið á þing Kristján L. Möller hlaut örugga kosningu í 1. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Sigmundur Ernir Rúnarsson fjölmiðlamaður hreppti annað sætið og er líklegt að þessi niðurstaða verði til þess að hann verði á meðal nýliða á þingi eftir næstu kosningar. Jónína Rós Guðmundsdóttir hreppti það þriðja en hún var færð í það sæti vegna kynjakvóta. 7.3.2009 17:53
Hrönn ÍS sökk á Ísafirði Hrönn ÍS sökk í höfninni á Ísafirði í dag og munaði minnstu að 50 tonna bátur Jón Forseti ÍS sem lá utan á Hrönn myndi líka sökkva. Lóðsinum tókst hins vegar að draga hann frá og bjarga honum. Þessir bátar hafa ekki siglt um skeið og samkvæmt heimildum fréttastofu er ólíklegt að Hrönn sigli aftur. 7.3.2009 19:45
Björgvin hreppti fyrsta sætið Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður og fyrrverandi ráðherra, hreppti fyrsta sæti í prófkjöri samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Oddný Guðbjörg Harðardóttir lenti í öðru sæti en Róbert Marshall í þriðja sæti. All kusu 2389 manns og varðröð 6 efstu manna þessi 7.3.2009 19:14
Átján Vítisenglum hefur verið vísað frá Allt er til reiðu í nýju klúbbhúsi Fáfnis í Hafnarfirði fyrir veislu sem þar verður í kvöld. Lítið fer fyrir erlendum gestum sem boðað höfðu komu sína þar sem átján vítisenglar hafa verið stöðvaðir við komuna til landsins. 7.3.2009 18:53
Að miðju Íslands á 150 jeppum Þrjú hundruð manna ferðahópur á 150 jeppum fór í morgun að miðju Íslands sem er skammt norðaustur af Miklafelli í Hofsjökli. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu gekk ferðin vel að öðru leyti en því að bifreið annars mannsins, 7.3.2009 16:54
Grétar leiðir lista frjálslyndra í Suðurkjördæmi Grétar Mar Jónsson alþingismaður leiðir lista Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi í næstu kosningum. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar kjördæmisfélags flokksins í dag. Georg Eiður Arnarsson, Vestmannaeyjum verður í öðru sæti listans og Guðrún María Óskarsdóttir, Hafnarfirði verður í þriðja sæti. 7.3.2009 16:23
Sigmundur og Vigdís leiða lista framsóknarmanna Sigmundur Davíð Gunnlaugsson leiðir lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður og Vigdís Hauksdóttir leiðir lista í Reykjavíkurkjördæmi suður. Þetta varð niðurstaða framsóknarmanna á þingi 7.3.2009 15:24
Gott að ríkisstjórnin leiði hugann að hag atvinnulífsins og fjölskyldna „Í tillögum ríkisstjórnarinnar er að finna mörg góð markmið," segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um þær tillögur sem ríkisstjórnin kynntu í gær til þess að sporna við atvinnuleysinu. Með tillögunum ætlar ríkisstjórnin að skapa rúmlega 4000 ársverk á næstu misserum. 7.3.2009 14:00
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst klukkan tvö í dag Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík hefst klukkan tvö í dag í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar á Skólabrú við Austurvöll. Hún stendur til 13. mars. Í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni segir að þeir kjósendur sem ekki eiga heimangegnt á kjördag, hafa ekki aðgang að tölvu, nota ekki heimabanka eða vilja kjósa með gamla laginu á pappír, er velkomið að kjósa utan kjörfundar. 7.3.2009 13:36
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent