Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Logos vann víst fyrir Baug Lögfræðistofan Logos fór með skaðabótamál gegn íslenska ríkinu fyrir hönd Baugs Group árið 2005. Það gengur þvert á ummæli Gunnars Sturlusonar, lögfræðings Logos sem sagði í viðtali við Vísi á föstudaginn að lögmenn stofunnar hefðu ekki starfað fyrir Baug. 16.3.2009 09:32
Krefst viðtals í Kastljósinu Lýðræðishreyfingin krefst að fá án tafar aðgengi að Kastljósi Ríkisútvarpsins til að kynna nýja hugmyndafræði um notkun hraðbanka í beinu og milliliðalausu lýðræði. 16.3.2009 09:25
Lítil breyting á ESB-afstöðu Nánast engin breyting hefur orðið á afstöðu almennings til umsóknar Íslands að Evrópusambandinu í nýjustu viðhorfskönnun Fréttablaðsins, samanborið við næstsíðustu könnun blaðsins í febrúar. 45 og hálft prósent vilja að Ísland sæki um aðild en 54 og hálft prósent eru því andvíg. Afstaðan er nokkuð jöfn eftir kynjum, en fylgi við umsókn er talsvert meira á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. 16.3.2009 07:20
Grásleppuvertíð á fullt Grásleppuvertíðin er komin í fullan gang fyrir norðan land en hún byrjar síðar vestur af landinu. Vertíðin má standa í 55 daga. Ef veiðin nemur um það bil átta þúsund tunnum af söltuðum hrognum gæti aflaverðmætið orðið um sjö hundruð milljónir króna og vertíðin skapað um það bil 600 sjómönnum atvinnu á meðan hún stendur. 16.3.2009 07:18
Tæpur fjórðungur veit um tryggingasvikara Tæplega fjórðungur aðspurðra sagðist vita um einhvern, sem hafi svikið fé út út tryggingafélagi, samkvæmt könnun Gallup fyrir samtök fjármálafyrirtækja. 87 prósent töldu tryggingasvik alvarlegt brot og rúmlega helmingur var tilbúinn til að greina frá slíku, ef nafnleyndar yrði gætt. 16.3.2009 07:14
Ók á vegrið Ökumaður slapp ómeiddur þegar jeppi hans rann utan í víravegrið í Svínahrauni á Suðurlandsvegi í gærkvöldi. Vegriðið eyðilagðist á um það bil 50 metra kafla og bíllinn skemmdist töluvert, en var ökufær eftir atvikið. Töluverð hálka var á vettvangi þegar þetta gerðist. 16.3.2009 07:11
Innbrotsþjófar enn á ferð Brotist var inn í tvo sumarbústaði í landi Klausturhóla í Grímsnesi í nótt og þaðan stolið sjónvörpum og raftækjum. Í báðum tilvikum spenntu þjófarnir upp glugga og komust þannig inn. 16.3.2009 07:06
Áminna ekki vegna úrvinda flugmanna Engin áminning var veitt vegna brota flugfélagsins Jet-X á reglum um hvíldartíma flugmanna þegar þota félagsins endaði utan brautar á Keflavíkurflugvelli haustið 2007. Þetta kemur fram í svörum Flugmálastjórnar til Fréttablaðsins. 16.3.2009 06:30
Engin breyting á viðhorfi til aðildarumsóknar Nánast engin breyting hefur orðið á afstöðu almennings gagnvart því að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu frá könnun Fréttablaðsins í febrúar. 45,5 prósent segjast nú vilja að Ísland sæki um aðild, á meðan 54,5 eru því mótfallin. Í lok febrúar studdu 46,1 prósent að Ísland myndi sækja um aðild að Evrópusambandinu, en 53,9 prósent voru því andvíg. 16.3.2009 06:00
Vilja færa eignir til Keflavíkurflugvallar ohf. Enn er unnið að því að koma saman stofnefnahagsreikningi Keflavíkurflugvallar ohf., nýs opinbers hlutafélags á Keflavíkurflugvelli. Stefnt er á framhaldsstofnfund fyrir lok mars þar sem efnahagsreikningurinn verður kynntur, segir Jón Gunnarsson, stjórnarformaður félagsins. 16.3.2009 05:45
Útlendingar í fasteignafjötrum Fjöldi útlendinga sem vilja flytja úr landi leitar aðstoðar hjá starfsmönnum Alþjóðahúss þar sem þeir eru bundnir af eignum sínum hérlendis sem þeir geta hvorki selt né leigt. 16.3.2009 05:30
Sjálfstæðisflokkur á móti skylduskráningu Sjálfstæðisflokkur sker sig frá öðrum flokkum í afstöðu sinni til reglna um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum þingmanna. Hann vill að þingmenn ákveði sjálfir hvort þeir skrái þessar upplýsingar eða ekki. Rætt verður um reglurnar í forsætisnefnd Alþingis í dag. 16.3.2009 05:00
Trúfélag móður ekki ráðandi Dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir, mun taka ákvæðið um að barn fylgi trúfélagi móður til endurskoðunar. Þetta er gert í kjölfar álits Jafnréttisstofu um að ákvæðið stangist á við jafnréttislög. 16.3.2009 05:00
Safnað fyrir innanlandsaðstoð „Okkar markmið er að hvert mannsbarn á Íslandi gefi 100 krónur," segir Vilborg Oddsdóttir hjá Hjálparstarfi kirkjunnar um landssöfnun sem hefst í dag í samstarfi við Rauða kross Íslands. Vilborg segir söfnunina vera tilkomna vegna aukinnar þarfar á aðstoð innanlands í kjölfar breyttra aðstæðna í landinu og er miðað við að safna 32 milljónum króna ef allir landsmenn taka þátt. 16.3.2009 04:30
Ræða misbeitingu valds Indefence-hópurinn svonefndi, sem efndi í vetur til undirskriftasöfnunar á netinu til að mótmæla ákvörðun breskra stjórnvalda að beita hryðjuverkavarnalögum gegn íslenskum bönkum og stjórnvöldum í október síðastliðnum, mun á morgun, þriðjudag, afhenda þær rúmlega 83.000 undirskriftir sem safnast hafa við athöfn í breska þinginu í Westminster í Lundúnum. 16.3.2009 04:00
Starfsmenn Granda vilja fá launauppbót „Að sjálfsögðu mun ég ræða þetta við forráðamenn Granda,“ segir Sigurður Bessason, formaður verkalýðsfélagsins Eflingar. Hann var spurður um viðbrögð við ákvörðun stjórnar HB-Granda um að greiða eigendum 150 milljónir í arð, en hagnaður af fyrirtækinu nam einum 2,3 milljörðum á síðasta ári. Áður umsömdum launahækkunum verkafólks, upp á 13.500 krónur, var frestað nýlega, í ljósi efnahagsástandsins. 16.3.2009 03:15
Engir biðlistar lengur hjá dagforeldrum „Það fækkar börnum hjá okkur, frá og með október, þegar heimgreiðslurnar koma á og bankahrunið verður. Það er eiginlega ekkert hringt og leitað eftir plássum," segir Ólöf Lilja Sigurðardóttir sem situr í stjórn Barnavistunar, félags dagforeldra í Reykjavík. 16.3.2009 03:00
Færri í fitusog og dýrari brjóstastækkanir „Við vitum að það er aðallega yngra fólkið sem fer í silíkonaðgerðir og fitusog. Þetta eru tvær algengustu fegrunaraðgerðirnar sem framkvæmdar eru og það hefur dregið úr báðumm. Það er tölvuvert minni eftirspurn en hefur verið," segir Guðmundur M.Stefánsson lýtalæknir hjá Domus Medica. Fréttablaðið hringdi í nokkra lýtalækna hér í bæ og samkvæmt lauslegri könnun blaðsins virðist sem yngra fólk haldi að sér höndum og minni eftirspurn sé eftir fitusogsaðgerðum hjá hópnum undir fertugu. 16.3.2009 03:00
Arnbjörg unir niðurstöðunni ,,Ég hafði vonast til þess að fá annað sætið áfram en þetta er það sem flokksmenn völdu og þá er bara að taka því," segir Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokkins. Hún beið lægri hlut fyrir Tryggva Þór Herbertssyni í baráttu um annað sætið í prófkjöri flokksins í Norðausturkjördæmi en úrslit voru tilkynnt síðdegis. 15.3.2009 20:23
Leikskólastarfsmaður sló fimm ára gamlan dreng Borgaryfirvöld virðast ekki geta rekið leikskólastarfsmann úr starfi þrátt fyrir að hann hafi ítrekað slegið fimm ára gamlan dreng. Móðir drengsins er reið og segir að drengurinn þori ekki lengur að mæta í skólann. 15.3.2009 20:00
Jón Baldvin er pappírstígrisdýr Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að niðurstaðan í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík breyti Jóni Baldvini Hannibalssyni í pappírstígrisdýr. 15.3.2009 19:56
Prófkjör Samfylkingarinnar í Kraganum er í uppnámi Svo gæti farið að röð frambjóðenda í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi breytist, ef tæplega 150 atkvæði sem lýst voru ógild verða talin með, eins og krafa er uppi um. Fjöldi manns sem taldi sig vera í flokknum reyndist ekki vera á kjörskrá. 15.3.2009 18:41
Lítil endurnýjun í prófkjörum flokkanna Krafan um endurnýjun skilaði sér ekki inn í prófkjör sjálfstæðismanna og Samfylkingar í gær að mati stjórnmálafræðings. Sitjandi þingmenn Sjálfstæðisflokksins röðuðu sér alls staðar í efstu sætin. 15.3.2009 19:19
150 þungavigtarmenn í Samfylkingunni skora á Jóhönnu Líklegt er talið að Jóhanna Sigurðardóttir lýsi yfir formannsframboði sínu í Samfylkingunni á allra næstu dögum. Á föstudag var henni afhent áskorun frá 150 þungavigtarmönnum og konum í flokknum um að bjóða sig fram og í gær fékk hún yfirburðarkosningu í fyrsta sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík. 15.3.2009 18:48
Þrjár konur og þrír karlar leiða framboðslista VG Úrslit úr öllum forvölum Vinstri grænna liggja nú fyrir og ljóst að karlar og konur skipta með sér að leiða framboðslista flokksins í komandi kosningum. 15.3.2009 17:32
Hálka á Reykjanesbraut Hálkublettir og éljagangur eru á Reykjanesbraut og á höfuðborgarsvæðinu. Á Hellisheiði og Þrengslum er snjókoma og hálka. Á Suðurlandi eru víða hálkublettir, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 15.3.2009 17:24
Tryggvi felldi þingflokksformanninn Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur og fyrrum efnahagsráðgjafi forsætisráðherra, hafnaði í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Hann sigraði Arnbjörgu Sveinsdóttur þingflokksformann með rúmlega 350 atkvæða mun. Kristján Þór Júlíusson, núverandi oddviti, fékk örugga kosningu í fyrsta sætið. 15.3.2009 16:57
Saksóknari fær ekki skýrslur um gömlu bankana Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari sem ætlað er að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda bankahrunsins hefur sökum bankaleyndar ekki fengið aðgang að þeim gögnum sem hann telur nauðsynlegt að embætti sitt fái. Um er að ræða skýrslur endurskoðunarfyrirtækja um gömlu bankana dagana fyrir og eftir fall þeirra í október. Skýrslunar eru nú í vörslu Fjármálaeftirlitsins. 15.3.2009 16:19
Kristján efstur - Tryggvi í 2. sæti Kristján Þór Júlíusson er í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi þegar talinn hafa verið 1000 atkvæði. Tryggi Þór Herbertsson, hagfræðingur, er í öðru sæti. Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður, er í þriðja sæti. Tryggvi hefur 154 atkvæða forskot á Arnbjörgu. 15.3.2009 16:04
Krafa um endurnýjun og öfluga talsmenn Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, telur að niðurstöður í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins í gær endurspegli annarsvegar kröfu um endurnýjun og hinsvegar vilja flokksmanna um að hafa atkvæðamikla og öfluga talsmenn í forystu. Hún segir að Samfylkingarfólk hafi refsað Össuri Skarphéðinssyni og að Jón Baldvin Hannibalsson geti gefið frá sér frekari stjórnmáladrauma. 15.3.2009 14:30
Feðginum hafnað Feðginunum Jóni Baldvini Hannibalssyni og Kolfinnu Baldvinsdóttir vegnaði ekki vel í prófkjörum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í gær. Báðum var hafnað. 15.3.2009 13:27
Frambjóðandi veit ekki í hvaða sæti hann lenti ,,Ég hef ekki frekar en aðrir sem höfnuðu neðar en 12. sæti ekki hugmynd um hvort ég hafnaði í 13. sæti eða 29. sæti. Þessi leynd er afar sérkennileg og alveg ástæðulaus," segir Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur og varaþingmaður. Hún sóttist eftir 4.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en var ekki meðal 12 efstu. 15.3.2009 13:15
Jón sigraði - Grímur varð sjötti Talningu atkvæða úr prófkjöri Vinstri grænna Norðvesturkjördæmi er lokið. Jón Bjarnason, þingmaður og oddvitaði flokksins í kjördminu, sigraði örugglega. Grímur Atlason fyrrum bæjarstjóri í Bolungarvík og núverandi bæjarstjóri Dalabyggðar hafnaði í sjötta sæti. 15.3.2009 12:43
Ólöf Nordal: Slakur árangur kvenna kemur á óvart Ólöf Nordal, sem hafnaði í fjórða sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Reykjavík, segir að það hafi komið sér á óvart að konur skyldu ekki fá betri kosningu í prófkjörinu í gær. Ólöf er eina konan í efstu sex sætunum 15.3.2009 12:18
Fjórum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins hafnað Fjórum núverandi þingmönnum var hafnað í prófkjörum sjálfstæðisflokksins í gær. Kosningaþátttaka var mun dræmari nú en fyrir tveimur árum eða sem nemur 20 prósentum. 15.3.2009 12:02
Línur skýrast í Norðausturkjördæmi Kosið verður um átta efstu sæti á lista Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi í dag. Kosning fer fram á kjördæmisþingi flokksins á Egilsstöðum en þingmennirnir Höskuldur Þórhallsson og Birkir J. Jónsson keppa um fyrsta sætið. Úrslit ættu að liggja fyrir í kvöld. 15.3.2009 10:59
Viðbúnaði á Vestfjörðum lokið Veðurstofan í samráði við Kristínu Völundardóttur, lögreglustjórann á Vestfjörðum, hefur afturkallað óvissustig á Norðanverðum Vestfjörðum og er því viðbúnaði lokið. 15.3.2009 10:33
Niðurstöður úr prófkjörum flokkanna Úrslit réðust í fjölmörgum prófkjörum í gær og í nótt. Illugi Gunnarsson hreppti efsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Reykjavík. Illugi fékk ríflega helmingi fleiri atkvæði í fyrsta sætið en keppinautur hans Guðlaugur Þór Þórðarson sem hafnaði í öðru sæti. Alls tóku tæplega 8 þúsund manns þátt í prófkjörinu en talningu lauk skömmu fyrir miðnætti í gær. Pétur Blöndal hlaut þriðja sætið og Ólöf Nordal fjórða. Þar á eftir komu þeir Sigurður Kári Kristjánsson og Birgir Ármannsson. Ásta Möller hafnaði í sjöunda sæti og Erla Ósk Ásgeirsdóttir í því áttunda 15.3.2009 10:06
Erilsöm nótt - þrír handteknir í samkvæmi í Árbænum Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og gistu alls tíu manns fangageymslur. Átök brutust út í samkvæmi í heimahúsi í Vallarási í Árbæjarhverfi eftir miðnætti. Karlmaður var fluttur á slysadeild mikið slasaður á handlegg eftir að hann kýldi í gegnum rúðu. Þrír gestir úr samkvæminu gistu fangageymslur í nótt. 15.3.2009 09:50
Talsverður erill hjá lögreglunni á Suðurnesjum Talsvert var um að vera hjá lögreglunni á Suðurnesjum í gærkvöldi og nótt. Um ellefu leytið í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um árekstur í Grindavík þar sem ökumaður ók af vettvangi. Lögreglumenn höfðu upp á manninum skömmu síðar en hann var grunaður um ölvun við akstur. 15.3.2009 09:20
Hálka víðsvegar um landið Á Suðurlandi er hálka og éljagangur á Hellisheiði, hálka í Þrengslum og á Sandskeiði annars hálka og snjóþekja í uppsveitum, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 15.3.2009 09:04
Skíðasvæðið í Tindastól opið Skíðasvæðið í Tindastól verður opið frá klukkan 11 til 17 í dag. Viggó Jónsson, umsjónamaður, segir að skíðafærið sé afar gott. ,,Um um að gera að taka fram skíðin og mæta í hvíta mjöllina sem hefur komið hér síðustu daga með látum." 15.3.2009 09:03
Ragnheiður Elín sigraði í Suðurkjördæmi Talsverð endurnýjun varð í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Ragnheiður Elín Árnadóttir, núverandi þingmaður Suðvesturkjördæmis, sigraði örugglega í prófkjörinu en hlaut 2192 atkvæði í fyrsta sætið. Árni Johnsen, varð í 2. sæti með 1576 atkvæði í 1.-2. sæti. 15.3.2009 08:37
13 ára með próf í veðurfræði Þrettán ára japanskur strákur er sá yngsti sem hefur náð prófi í veðurfræði þar í landi. Þetta þykir því merkilegra að veðurfræðiprófið í gríðarlega þungt í Japan. Aðeins 6,3 prósent þeirra sem taka prófið ná því. 15.3.2009 06:45
Bjarni varð efstur í Kraganum - Búið að telja Lokatölur liggja fyrir í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi. Ekki urðu breytingar á röðun efstu manna á listanum. Bjarni Benediktsson mun því leiða listann, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verður í öðru sæti og Ragnheiður Ríkharðsdóttir í því þriðja. 14.3.2009 22:42