Engir biðlistar lengur hjá dagforeldrum 16. mars 2009 03:00 Ólöf, sem situr í stjórn félags dagforeldra í Reykjavík, segist telja að leyfislausum dagforeldrum hafi fjölgað frá því í haust og hefur af því áhyggjur. Fréttablaðið/arnþór „
Það fækkar börnum hjá okkur, frá og með október, þegar heimgreiðslurnar koma á og bankahrunið verður. Það er eiginlega ekkert hringt og leitað eftir plássum," segir Ólöf Lilja Sigurðardóttir sem situr í stjórn Barnavistunar, félags dagforeldra í Reykjavík. Hún segist telja að leyfislausum dagforeldrum hafi fjölgað frá því í haust. „Það gerir bæði kreppan, fólk sem er að missa vinnuna, og heimgreiðslurnar. Ef ekki væri fyrir þær væri meiri hvati fyrir foreldra að koma inn í okkar kerfi," segir Ólöf. Atvinnuleysi geti ekki skýrt allan samdrátt hjá dagforeldrum þar sem fækkun barna hjá þeim sé umfram atvinnuleysistölur. Þá hafi samdráttur verið hjá dagforeldrum í Kópavogi árið eftir að heimgreiðslur voru teknar upp, þó að atvinnuleysi hafi þá verið lítið. „Dagforeldrum fækkar ekki," segir Ólöf. „Þeir eru bara með færri börn í ár. Ég gæti trúað að næsti vetur yrði erfiðari, en við vitum ekkert. Það kemur bara í ljós í október og nóvember þegar leikskólarnir taka börn frá okkur. Við vitum bara að fólk pantar ekki með fyrirvara lengur." „Það er háalvarlegt mál að fólk sé að gefa sig upp sem dagforeldra án þess að hafa tilskilin leyfi," segir Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, fulltrúi Samfylkingar í leikskólaráði Reykjavíkur. „Þetta snýst um að tryggja börnum öryggi og faglega umönnun. Við vöruðum við því fyrirfram að heimgreiðslur myndu ýta undir svarta starfsemi, og það hefur orðið raunin," segir Bryndís. „Við höfum kallað eftir að dagforeldrar láti vita um grunsemdir sínar um leyfislausa starfsemi," segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs Reykjavíkur. „Það hefur ekki orðið aukning á ábendingum og því höfum við ekkert í hendi um að þetta sé að aukast." Þorbjörg Helga bendir á að stór hópur barna hafi fengið inngöngu í leikskólana síðastliðið haust. „Við vissum að í haust fóru tæplega 300 börn á einu bretti inn í leikskólana. Dagforeldrar misstu þar 200 börn frá sér og eru að vinna þetta stökk upp."svanborg@frettabladid.is
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira