Fleiri fréttir

Hrafnhildur Lilja jarðsungin í dag

Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir, unga konan sem var myrt í Dóminíska lýðveldinu þann 21. September síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju í dag.

Eldur í Álsey

Eldur kom upp í Álsey VE við Vestmannaeyjar skömmu fyrir hádegi í dag. Verið var að gera að skipinu þar sem það lá við bryggju og segir Gísli Óskarsson, fréttaritari Stöðvar 2 í Eyjum, að líklegast hafi kviknað í út frá neistaflugi. Að minnsta kosti eitt fiskikar bráðnaði en engin meiðsl urðu á fólki.

Gjaldeyriskreppan leysist mögulega í næstu viku

Svo gæti farið að gjaldeyriskreppa þjóðarinnar leystist í næstu viku. Stíf fundahöld eru um allan bæ og ef niðurstaða næst um helgina, gæti peningar lífeyrissjóðanna í útlöndum verið komnir heim seinnipartinn í næstu viku.

Hvetja landsmenn til að Ganga til góðs

Rauði krossinn hvetur landsmenn til að Ganga til góðs í dag. Rauði krossinn þarf um 2500 sjálfboðaliða til að ná takmarki sínu að ganga í hvert hús á landinu. Söfnunarstöðvar eru um allt land þar sem fólk mætir til að fá söfnunarbauka. Helst vantar sjálfboðaliða á höfuðborgarsvæðinu. Auglýsingar um söfnunarstöðvar eru í blöðum og eins er hægt að fá upplýsingar um þær á raudikrossinn.is.

Hundruð Íslendinga hafa streymt inn í nýja verslunarmiðstöð

Hundruð manna hafa streymt í nýjustu verslunarmiðstöð landsins, Korputorg, í morgun. Fréttastofa ræddi við verslunarstjóra húsgagnaverslunarinnar ILVA, Róbert Valtýsson, nú laust fyrir fréttir og hann sagði viðtökurnar framar vonum. Menn hafi ekki búist við miklu í þessu árferði.

Fangageymslur fylltust í nótt

Fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fylltust í nótt vegna mikillar ölvunar í borginni. Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir í nótt. Í einni þeirra hlaut karlmaður töluverða áverka í andliti og þurfti að leita á slysadeild til aðhlynningar.

Vinna að efnahagsaðgerðum um helgina

Almennt er búist við að stjórnvöld í samvinnu við lífeyrissjóði, verkalýðshreyfingu og samtök atvinnulífsins og fleiri muni reyna að setja saman aðgerðarpakka í efnahagsmálum um helgina.

Heimili og skóli taka undir með landlækni

Heimili og skóli, landssamtök foreldra, taka heilshugar undir þau tilmæli sem fram hafa komið í dag um hófstillta umræðu um efnahagserfiðleika, samdrátt og niðurskurð í atvinnulífinu.

Stjórnmálamenn missa tiltrú fólks

Stuðningur við ríkisstjórnina hefur hrunið og stjórnmálamenn virðast hafa misst tiltrú fólks, hvort sem þeir tilheyra stjórn eða stjórnarandstöðu. Aldrei hefur hlutfall þeirra sem ekki ætla að kjósa verið hærra. Þetta kemur fram í skoðanakönnum sem unnin var fyrir Stöð 2 í gær.

Aðgerða að vænta í byrjun næstu viku

Tryggvi Þór Herbertsson, efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, segir að aðgerðir til þess að stemma stigu við efnahagsvandanum sem nú er uppi, verði kynntar í byrjun næstu viku.

Börnin vilja Evru

Það á að taka upp evruna segja börn í sjötta og sjöunda bekk Salaskóla. Þau segjast finna fyrir því að verðlag fari hækkandi. Haukur Holm hitti unga efnahagsráðgjafa fyrir utan Stjórnarráðið í dag.

Örtröð í bankaútibúum

Mikil örtröð myndaðist í útibúum í dag þar sem fólk var að færa peninga úr sjóðum inn á sparnaðarreikninga. Viðskiptaráðherra ítrekaði í dag að innistæður almennings eru öruggar.

Þorsteinn segir einhug ríkja í stjórn Glitnis

Stjórnarformaður Glitnis hvetur hluthafa Glitnis til að samþykkja tilboð ríkisins. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag segist hann treysta því að ríkisvaldið muni koma til móts við hluthafana sem verða fyrir tjóni.

Þúsundum lítra af olíu stolið á Akureyri

Þúsundum lítrum af olíu var stolið úr tanki af vinnusvæði verktaka á Akureyri um helgina. Lögregla segir það færast í vöxt að eldsneyti sé stolið sem sé greinilegt kreppueinkenni.

Ekkert bólar á aðgerðum

Ekkert bólar enn á aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna efnahagsvandans, en viðskiptaráðherra og efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar segja þær væntanlegar. Lífeyrissjóðirnir gætu tvöfaldað gjaldeyrisvaraforða þjóðarinnar með því að færa innistæður sínar í útlöndum heim. Landlæknir hefur áhyggjur af sálarlífi landsmanna í þessu ástandi.

Sannkölluð sláturtíð hjá Hagkaup í Skeifunni

„Það hefur verið mjög mikið fjör í Skeifunni og mikil sláturtíð í gangi,“ segir Gunnar Ingi Sigurðsson forstjóri Hagkaupa aðspurður út í raðirnar í kjötborðið í Hagkaup í Skeifunni. Hann segir að erfitt sé að finna ódýrari máltíð en slátrið en keppurinn er seldur á 60-70 krónur. „Þú færð því ansi marga keppi fyrir fimm slátur eins og maður segir.“

Samþykkja vínveitingaleyfi fyrir KSÍ

Borgarráð hefur samþykkt umsókn Knattspyrnusambands Íslands um rekstrarleyfi fyrir veitingastað með vínveitingaleyfi í höfuðstöðvum sínum.

Þorsteinn Már hvetur hluthafa til að samþykkja tilboð ríkisins

Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis, hvetur alla hluthafa bankans til þess að samþykkja tilboð ríkisins. Hann segist treysta því að ríkisvaldið komi til móts við hluthafana sem verða fyrir tjóni og bjóði þeim „sanngjarnt úrræði“ sem geti dregið úr tjóninu.

Landlæknir varar við óábyrgri umræðu um efnahagsmál

„Umræða um samdrátt og niðurskurð í atvinnulífinu með beinum afleiðingum fyrir heimili og fyrirtæki er mjög hávær og rökin fyrir henni skýr. Þetta er alvarleg umræða sem snertir unga sem aldna og þar af leiðandi er mikilvægt að vanda orðaval til að valda börnum, ungmennum, veikum og öldruðum ekki óþarfa kvíða,“ þetta segir í frétt inni á vef Landlæknisembættisins.

Vill sækja um ESB-aðild strax

Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að Íslendingar verði nú þegar að sækja um inngöngu í Evrópusambandið og taka upp evru. Að hans mati á ríkisstjórnin að tilkynna strax að það verði gert.

Orkuveitan tryggir sér hagstætt lán

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í dag lánasamning við Evrópska fjárfestingabankann að fjárhæð 170 milljóna evra, jafnvirði rúmlega 25 milljarða króna, með 9,8 punkta álagi á millibankavexti í evrum. Lánið er til 20 ára.

Skilorðsbundinn dómur fyrir vítavert aksturslag

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi, sektað hann um 120 þúsund krónur og svipt ökuleyfi fyrir umferðarlagabrot og líkamsmeiðingar af gáleysi.

Færri umferðarslys þar sem fólk slasast

Umferðaróhöppum þar sem slys hafa orðið á fólki hefur fækkað nokkuð á höfuðborgarsvæðinu eða um 15 prósent síðastliðna sjö mánuði samanborið við sama tíma á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu og vísað í gögn Umferðarstofu.

Lokun bankanna ekki á dagskrá

Davíð Oddsson seðlabankastjóri neitar því að aðgerðir sem þýða myndu lokun bankanna um helgina hafi verið ákveðnar. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.

Rætt við ýmsa aðila

Viðskiptaráðherra segir að efnahagsástandið verði skýrt og bætt á næstu dögum. Hann segir að verið sé að ræða við ýmsa, en vill ekki gefa upp hverja, né hvenær niðurstaða fáist. Hann neitar því að ríkisstjórnin sé ráðalaus. Þá segir hann fráleitt að olíuskortur sé yfirvofandi á landinu. Forsætisráðherra vildi ekki ræða við fréttamenn að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.

Óhappahrina í hálku og snjó

Fjölmörg umferðaróhöpp urðu í gærkvöldi, eftir að það fór að snjóa víða á landinu og flughált varð á vegum og götum. Önnur óhappahrina varð í morgun og örtröð var á dekkjaverkstæðum.

Búist við að bensín- og olíuverð hækki í dag

Gera má ráð fyrir að íslensku olíufélögin hækki verð á bensíni og olíu í dag þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á olíu haldi áfram að hríðfalla á mörkuðum bæði vestan hafs og austan.

Fráleitt að tala um olíuskort

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði á ríkisstjórnarfundi fyrir hádegið að það væri fjarri sanni að olíuskortur væri yfirvofandi. Hermann Guðmundsson forstjóri N1 segir í viðtali við Viðskiptablaðið í dag að gjaldeyrisþurrð í landinu geru það að verkum að ekki sé hægt að flytja inn meiri olíu. Staðan hjá N1 sé þannig að olían eigi að duga í 30 - 40 daga að öllu óbreyttu.

Vildu fresta umræðu um fjárlög vegna óvissunnar

Fyrsta umræða um fjárlög næsta árs hófst á Alþingi í dag í skugga mikillar efnhagskreppu. Þingmenn Vinstri - grænna og Frjálslynda flokksins vildu hins vegar við upphaf þingfundar að umræðu um fjárlagafrumvarpið yrði frestað vegna óvissunnar í samfélaginu.

Fangar hvetja alþingi til að sýna gott fordæmi

Fangar fylgdust eins og þjóðin öll með setningu alþingis í gær. Stjórnmálamenn ræddu þar um þann vanda sem að þjóðinni steðjar og mikilvægi þess að allir legðust á eitt til að leysa vandann. Á heimasíðu Afstöðu, félags fanga birtist í dag tillaga til lausnar á vandanum, að alþingi stigi fram fyrir skjöldu og sýni gott fordæmi, öðrum til hvatningar.

Verkalýðshreyfingin talar fyrir daufum eyrum ríkisstjórnar

„Þetta undirstrikar það hversu grafalvarleg staða er komin upp hér á landi í efnahagsmálum,“ segir Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdarstjóri ASÍ aðspurður um ummæli Guðmundar Marteinssonar hjá Bónus á Vísi í morgun. Þar hvetur Guðmundur landsmenn til þess að birgja sig upp og versla íslenskar vörur þar sem fyrirtækið sjái fram á vandræði með aðgang að gjaldeyri og getur því ekki leyst út vörur. Gylfi er uggandi yfir ástandinu.

Deiliskipulag fyrir Laugaveg 4 og 6 samþykkt

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær breytingu á deiliskipulagi reits vegna Laugavegar 4 og 6. Breytingin var samþykkt með sex atkvæðum en Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, sat hjá við afgreiðslu málsins.

Bónus ráðleggur fólki að birgja sig upp og kaupa íslenskt

Búast má við því að skortur verði á innfluttum vörum í Bónus á næstunni. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir að aðgangur að gjaldeyri sé takmarkaður og því sjái Bónus fram á að á næstu vikum geti sú staða komið upp að ekki verði hægt að leysa út vörur.

Hringvegurinn lokaður um Moldhaugnaháls í Eyjafirði

Vegna ræsagerðar verður Hringvegur um Moldhaugnaháls í Eyjafirði lokaður frá kl.18 í kvöld og fram eftir degi á laugardag. Hjáleið er um veg 816 Dagverðareyrarveg segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.

Grunaður um fíkniefnaakstur

Ungur ökumaður var tekinn úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt, grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Fíkniefni fundust í bílnum auk ýmissa hluta, sem taldir eru vera úr innbortum. Hann gistir fangageymslur og verður yfirheyrður í dag.

Festu bíla sína á Kjalvegi

Tvær danskar konur og kínversk hjón festu bíla sína á Kjalvegi sent í gærkvöldi. Dönsku konurnar, sem voru vel búnar kölluðu eftir aðstoð og var björgunarsveit send eftir þeim og bílnum

Klippa þurfti ökumann út úr bifreið

Ungur maður slasaðist og þurfti að beita klippum til að ná honum út úr bílnum, sem rann út af í hálku á Reykjanesbraut á móts við Vífilsstaðaveg í gærkvöldi.

Sjá næstu 50 fréttir