Innlent

Nýskráningum bíla fækkar um 30 prósent milli ára

MYND/GVA

Nýjar tölur Hagstofunnar sýna að rúmlega 11 þúsund bílar voru nýskráðir á fyrstu átta mánuðum þessa árs en það er nærri 30 prósenta fækkun frá sama tímabili í fyrra. Síðastliðna 12 mánuði, til loka ágúst, voru nýskráningar bíla um 18 þúsund en það er um 14 prósenta samdráttur frá fyrra tólf mánaða tímabili.

Samanlögð greiðslukortavelta heimilanna fyrstu sjö mánuði ársins jókst um rúm fimm prósent miðað við sama tíma í fyrra. Kreditkortaveltan reyndist tólf prósentum meiri en debetkortavelta dróst hins vegar saman um eitt og hálft prósent á milli ára eftir því sem fram kemur í Hagvísum Hagstofunnar fyrir septembermánuð. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs án húsnæðis um 8,6 prósent sem veldur rúmlega þriggja prósenta raunlækkun á innlendri greiðslukortaveltu.

Hins vegar jókst greiðslukortavelta Íslendinga erlendis um rúman fimmtung á þessum sjö mánuðum samanborið við sama tíma í fyrra og erlend greiðslukortavelta hérlendis jókst um 12,5 prósent á sama tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×